Vikan


Vikan - 04.06.1970, Blaðsíða 26

Vikan - 04.06.1970, Blaðsíða 26
4 Frú Blavatsky var rússnesk aðalskona, sem gerðist bandarískur ríkisborgari og varð mikill brautryðjandi austrænna trúarfræða og hvers kyns launspeki í nýja landinu. Hræddir og yfirspenntir þegnar hins bandaríska tækniþjóðfélags leita í stríöum straumum á náðir allrahanda launspeki, spíritisma, stjörnuspeki, aust- rænnar dultrúar og galdra. Mestu andstæður innan þessarar hreyfingar eru hipp- arnir, sem afneita hruna- dansi tækniþjóðfélagsins og hreinir djöfladýrkendur, sem líta svo á að Satan sé hinn eini og sanni guð athafnamanna. Sú var tíðin að íslendingar þóttu kunna talsvert fyrir sér í fornum fræðum, eins og það er orðað í þjóðsögum, og allt fram á þennan dag hefur fjöldi manns hér á landi lifandi áhuga á ýmiss konar laun- speki. Það orð er hér haft sem þýðing á enska heitinu occultism, er á þeirri tungu virðist notað sem samnefni yfir spá- mennsku í spil og kúlur, lófalestur, spíri- tisma, djöfladýrkun, galdra og annað þð, sem í daglegu tali er kallað yfirnáttúrlegs eðlis. Upp á síðkastið virðist dulrænn áhugi íslendinga einkum hafa beinzt að einu af- brigði launspekinnar, spíritismanum, en einnig hafa margir mikla trú á fyrirboð- um í draumum, stjörnuspádómum, lófa- lestri og fleiru af því tagi. Islenzkar völv- ur eru ennþá til í góðu gengi, eins og sýndi sig bezt nú nýverið er ein þeirra spáði engu góðu fyrir síðasta tunglskoti Banda- ríkjanna — og kom fram! Það var kann- ski varla við öðru að búast; sá Apolló var merktur einkennistölunni 13 og til að bæta gráu ofan á svart var honum skotið á loft þrettánda dag mánaðar! En fjarri fer því að launspekiáhuginn sé bundinn við íslendinga eina þessi árin. Fyrir skömmu var í Vikunni sagt frá eins konar ásatrú í Brasilíu, sem er mjög menguð göldrum og gerningum og nýtur sívaxandi fylgis. Að vísu má segja að ekki sé annars að vænta í vanþróuðu landi eins og Brasilíu, þar sem meirihluti fólks heyr hverja mínútu síns lífs tvísýna bar- áttu við hungur og pestir. Hitt kemur ef til vill undarlegar fyrir sjónir að í há- tæknilegustu iðnaðarþjóðfélögum heims, Bandaríkjunum og Bretlandi, veður nú allrahanda launspeki uppi sem aldrei fyrr, þótt í fljótu bragði væri hægt að ætla að allt svoleiðis væri löngu útdautt í jafn rækilega vélvæddum efnishyggju- paradísum og þessi stórveldi eru. En þeg- ar betur er að gáð örlar á eðlilegum or- sökum. Engilsaxar eru að erfðavenju trú- hneigt fólk og ekki eingöngu í kristnum skilningi orðsins. Þeir eru að miklu leyti af keltneskum uppruna en Keltar höfðu þegar í fornöld orð á sér sem miklir trú- menn og voru jafnframt taldir fjölkunn- ugir í meira lagi. I Bretlandi hefur svarti- galdur verið við lýði á öllum öldum og er langt í frá niðurlagður enn. Félags- og sálfræðingar, sem rannsaka þetta merkilega fyrirbæri, sem mikill uppgangur launspekinnar síðustu árin er, telja hér vera um að ræða leið fjöldans til flótta frá þeirri yfirgengilegu streitu og taugaspennu, sem líf svo að segja hvers einstaklings í tækniþjóðfélögum, og þá sérstaklega Bandaríkjunum, er gagntekið af. Þar við bætist að daglegt líf í Banda- ríkjum dagsins í dag er mengað ofbeldi og linnulausri hræðslu við það; veldur þvi glæpafaraldurinn sem gert hefur stór- borgir landsins hættulegri villtustu frum- skógum, kynþáttaóeirðir og mórölsk hnignun í kjölfar Víetnamstríðsins. Frá þessu hektíska, yfirspennta hvers- dagslífi flýr nú sívaxandi fjöldi Banda- ríkjamanna á náðir einhvers konar drauma og dulúðar. Hippahreyfingin margumtalaða er í ætt við þessa stefnu, en í henni kveður mikið að áhuga á aust- rænum trúarbrögðum; Katmandu, höfuð- 4 Ein kunnasta aðferð spákvenna við að sjá fyr- ir óorðna atburði er að rýna í þar til gerðar kristalskúlur.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.