Vikan


Vikan - 20.08.1970, Side 34

Vikan - 20.08.1970, Side 34
NÝ ELDAVÉL GERÐ HE6624. 4 hellur, þar af 1 með stiglausri stillingu og 2 hraðsuðuhellur, stór ofn, 56 lítra, yfir- og undirhiti fyrir steikingu og bökun, ijós í ofni. Faest með eða án glóðar- steikar elements (grill). — Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð. VIÐ ÖÐINSTORG - SlMI 10322 ATHUGIÐ Ef þú ert að byggja eða þarft að bæta og jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum við það hagkvæmt að líta við hjá okkur, því að sjón er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali. Gott verð. LITAVER 1SVEB22-M 30280-322 G2 STJD RNUSPÁ*^ w Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú fórnar vinum þínum nokkru af tíma þínum og uppskerð ríkulegt þakklæti. Þér berast fjárupphæð- ir sem þú hafðir ekki gert ráð fyrir í bili. Verkum þínum mun miða mjög vel áfram. Varastu ofát. 80? Nautsmerkið (21. apríl -- 21. maí): Framkomu þinni verður nokkuð áfátt undir sér- stökum kringumstæðum. Reyndu að gera það fyrir ættingja þína sem þeir ætlast til af þér. Þú verður fyrir smávegis óhappi á ferðalagi. Heillalitur er blár. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Vinnufélagi þinn svíkst undan merkjum og sýnir töluvert kæruleysi sem kemur nokkuð hart niður á þér. Þú færð óvænta kaupuppbót sem þú notar á mjög skynsamlegan hátt. Heil'atala er fimm. w? Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Gættu heilsu þinnar eins vel og þú hefur vit á. Er- lend persóna kemur nokkuð við sögu þína, líklegt er að þú þurfir að sjá um uppihald hennar að ein- hverju leyti. Þú færð óvæntar fréttir í vikulokin. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú færð kærkomið tækifseri til að ná þér niðri á ákveðinni persónu. Einn yfirmanna þinna sýnir þér verðskuldað traust og skaltu nota þér hagstæðan byr út í yztu æsar. Líkur á skemmtilegu ferðalagi. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Einhverjir erfiðleikar verða í sambandi við per- sónu sem þú hefur í þjónustu þinni. Þú gerir mjög góða verzlun sem yrði þó ennþá betri ef þú hefðir fleiri með í ráðum og ef til vill fleiri hluthafa. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Utanaðkomandi aðstæður valda því að þú verður að fresta ferðalagi um sinn. Þú færð sérstakt tæki- færi til að láta ljós þitt skína. Þú kynnist persónu sem þú dáir sérstaklega fyrir fagra framkomu. 4? Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Vertu fremur spar á ráðleggingar þínar, það er ekki víst að allir líti sömu augum á silfrið og þú, bíddu þar til þú verður beðinn ráða. Þú munt eiga mjög skemmtilegt kvöld með félögum þínum. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Atvikin haga því svo til að þú verður potturinn og pannann í ákveðnum hópi. Notaðu þér vel tæki- færi sem þú færð til að ferðast og öll boð þar að lútandi þótt ferðalögin dragist eitthvað á langinn. & Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Það er fremur dauflegt yfir einkalífinu og þú eyðir kvöldunum heima við verkefni sem þú verður að leysa af hendi. Þrjár persónur verða þó til að halda þér félagsskap og varpa nýrri birtu á tilveruna. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Vinkona þín sem er snillingur í að lenda í vand- ræðum leitar nú enn einu sinni til þín. Persóna, sem þér er ekkert um gefið, sýnir þér óþægilega mikinn áhuga. Þú rifjar upp gömul kynni við eldri mann. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú tekur þátt í bralli með félögum þínum sem þið eigið eftir að súpa seyðið af síðar. Varastu að dvelja nokkuð að ráði fjarri heimili þínu. Þú verður fyrir alveg sérstöku happi á laugardag. 34 VIKAN 34. tbi.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.