Vikan - 29.07.1971, Side 4
Pira
Iflvar fæst
■ársysten
Pira-System fer sigurför um heiminn eins og fram kemur
í samtali við uppfinningamanninn, Olle Pira, hér í blaðinu.
Hús og skip hefur einkaumboð fyrir Pira System. það er
selt í verzluninni í Norðurveri, Hátúni 4A. Allt annað, sem
selt er undir þessu nafni annarsstaðar, eru eftirlíkingar,
sem ber að varast.
PIRA SYSTEM — Einkaumboð á íslandi: Hús og skip,
simi 21830.
FORELDRARs
Hver vill veröa valdur aö örkuml eða
dauða barna sinna ?
Sýnið varúð og setjið CLIPPA-SAFE barna
öryggisbelti í bifreiðina.
(sjá bls. 22)
Söludreifing:
Sverrir Þóroddsson & Co.
Tryggvagötu 10, Reykjavíó. — Símar: 23290 — 26390.
David L. C. Pitt,
Hafnarfirði.
P0STURINN
Dýralækningar
Kæri Póstur!
Ég er 15 ára og hef lengi ætlað
að skrifa þér. Ég hef mikinn
áhuga á dýralækningum og mig
langar til að þú svarir fyrir mig
nokkrum spurningum um það
efni.
1. Hvað er það langt nám? (fyr-
ir utan menntaskóla)?
2. Er það mjög erfitt nám?
3. í hvaða landi er bezt að
læra dýralækningar?
4. Þarf að vera hér í lækna-
deild háskólans áður en maður
fer utan?
Hvernig er skriftin og hvað lestu
úr henni? Atli Vigfússon.
Skriftin er nokkuð góð miðað
við aldur, en ekki nógu snyrti-
leg — og það er það helzta
sem hægt er að lesa úr henni.
Að loknu menntaskólanámi
munu dýralækningar vera fimm
og hálfs árs langt nám við há-
skóla. Flestir íslendingar til þessa
hafa stundað nám í Noregi
(Oslo), en einnig hafa nokkrir
verið í Þýzkalandi og Danmörku
og um þessar mundir lærir einn
í Edinborg. Námið er sagt mjög
erfitt og alltaf gefast nokkrir
upp á því, en að fara í lækna-
deildina hér væri einföld að-
ferð til að lengja námið og
myndi lítið sem ekkert koma að
gagni.
„Ýmsirstunda úfinn
sjó..
Kæri Póstur!
Mig langar til að byrja á því að
þakka þér fyrir allt gott lestrar-
efni. Ég er mjög hrifin af VIK-
UNNI og les hana spjaldanna
á milli. En nú langar mig til að
fá þig til að skera úr um svo-
lítið fyrir mig. Það er þannig
að maðurinn minn heldur því
fram að það sé búið að birta
botnana við fyrripartinn sem er
svona: „Ymsir stunda úfinn sjó,
en aðrir kellu sína ", Ég
held því aftur fram að þeir hafi
ekki birst og þykir undarlegt ef
ég hef misst af þeim þar sem
ég bíð spennt eftir að þeir komi.
Nú spyr ég þig, ágæti Póstur,
hvort búið sé að birta þá eða
ekki og í hvaða blaði þeir hafi
verið eða í hvaða blaði þeir
verði?
Svo langar mig til að vita hvort
þið kaupið smásögur og hvað
þið borgið fyrir þær.
Með þakklæti fyrir allt gott,
AEG.
Nei, þessi seinnipartur hefur
ekki birst enn, því miður, en
um leið og eitthvað rýmkast í
blaðinu, birtum við þáttinn „Síð-
an síðast" og þar verSur væntan-
lega þessi seinnipartur — og
fleira. MaSurinn þinn skuldar
þér því minkapels og Majorka-
ferS og eins þarf hann endi-
lega aS fara meS þig út eitt
kvöldiS.
Jú, viS kaupum smásögur — ef
okkur líkar þær og þá er verS-
iS samkomulag á milli höfundar
og ritstjóra blaSsins.
Charlottenborg
og smásögur
Kæri Póstur!
Ég reyni alls staðar að fá VIK-
UNA lánaða. Því miður kaupa
foreldrar mínir blaðið ekki og
sjálf hef ég ekki efni á því þar
sem ég er atvinnuleysingi. Nú
hef ég nýlega komist yfir bunka
af blaðinu síðan í fyrra. Allt
efnið finnst mér gott (fyrir utan
smásögurnar). Sérstaklega voru
sögurnar „Gleymdu ef þú get-
ur" og „Hennar keisaralega tign"
góðar. VIKAN er eitt af þessum
fáu ópólitísku blöðum og þar
með eitt af þeim lesandi.
Palladómar Lúpusar eru mjög
skemmtilegir og vel ritaðir. Hef-
ur einhverntíma verið birt grein
um Einar Olgeirsson í þeim
þætti? Ef svo er, þá hvenær?
Hvar er hægt að fá það blað?
Jæja, loksins kem ég að efn-
inu. Slðast í maí voru birtir
blaðadómar um sýningu (s-
lenzkra listamanna sem tóku þátt
í sýningu í Charlottenborg í
Danmörku. Ég veit ekki hvort
Charlottenborg er borg eða safn,
en ef það er safn, er það þá í
Kaupmannahöfn. Ætli sé hægt
að fá þessi blöð? Hvar fæ ég
þau? Ekki vísa mér á bókasafn,
því ég vil eiga þau.
Ég vona að þú svarir mér, þótt
4 VIKAN 30. TBL.