Vikan - 29.07.1971, Blaðsíða 5
ég kaupi ekki blaðið. Og að
lokum langar mig að vita þetta:
Mega allir senda ykkur smásög-
ur og birtið þið þær sem eru
nógu góðar? Borgið þið fyrir
þær? Sendið þið til baka þær
smásögur sem eru of lélegar?
Með fyrirfram þakklæti og von
um birtingu, HM.
í~------------—H
Þar sem Einar Olgeirsson sat
ekki síðasta þing, skrifaði Lúp-
us ekki pailadóm um hann í
þetta sinn. Hitt er annað mál,
að árið 1956 kom út bók eftir
Lúpus, „Sjá þann hinn mikla
flokk", sem var samsafn palla-
dóma er áður höfðu birzt í biað-
inu Suðurland. Þar var Einar Ol-
geirsson tekinn fyrir.
Sýningin sem þú minnist á var
haldin í Charlottenborgarhöll i
Kaupmannahöfn og þessi blöð
færð þú á afgreiðslum dagblað-
anna. Smásögur kaupum við,
séu þær hentugar, sendum aðrar
til baka og semjum um verðið.
Simplicity
Vika mín!
Vilji maður panta snið hjá sníða-
þjónustu VIKUNNAR, er þá ekki
nóg að senda greiðslu við mót-
töku? Guðríður Þórðardóttir.
A
Því miður: A pöntunarseðlinum
stendur: „Vinsamlegast sendið
mér sniðið, sem ég krossa fram-
an við, í þvi númeri sem ég til-
greini. Greiðsla fylgir með í á-
vísun/póstávísun/frímerkjum. ."
Þori ekki...
Kæri Póstur!
Ég ætla að skrifa þér nokkrar
línur og biðja þig að ráða úr
vanda fyrir mig eins og svo
marga aðra.
Þannig er mál með vexti að ég
er hrifinn af stelpu og ég veit
að hún VAR hrifin af mér, en
nú veit ég ekki hvar ég hef
hana. Ég er bara svo feiminn
að ég þori lítið að tala við hana
— og hvað þá að bjóða henni
upp á böllum. A síðasta balli
dansaði hún vangadans við ann-
an strák og það líkaði mér nátt-
úrlega ekki. Samt var alltaf eins
og hún væri að gæta þess að
ég sæi að hún væri að dansa
við aðra.
Elsku Póstur minn, hvernig á ég
að fara að því að vekja athygli
hennar á rnér á ný?
Og ENGA útúrsnúninga. Gerðu
það fyrir mig, Póstur minn, að
birta þetta bréf. Einn í rusli.
Pósturinn sjálfur á við vanda-
mál að stríða: Hann skilur ekki
með nokkru móti hvaða „útúr-
snúninga" fólk er sýknt og heil-
agt að saka hann um. Jæja,
svona gengur það. Enginn er
fullkominn.
Pósturinn á hinsvegar mjög gott
ráð handa þér: Hertu upp hug-
ann, hringdu í píuna og spjall-
aðu við hana. Komdu henni í
skilning um að þú sért hrifinn
af henni og hristu svo dug-
lega af þér deyfðina á næsta
balli og bjóddu henni upp. Ef
hún vill eitthvað með þig hafa
ætti það að koma fljótlega í
Ijós.
Stjörnuspeki
Kæra Vika!
Getur þú vísað mér á einhvern
sem getur lesið úr stjörnukorti
eða stjörnuhring. Mig vantar
eitthvað heimilisfang og eins
langar mig að vita hvað slíkt
muni kosta.
Með fyrirfram þökk, Laufaásinn.
Því miður vitum við ekki um
neinn sem fæst við slíka spá-
dóma hér á landi, en við þiggj-
um með þökkum allar slíkar upp
lýsingar og lofum að birta þær.
I.IOHI H ,
>, FERÐAFELAGAE
KASSETTUTÆKI
ERÁ PHILIPS
1. EL 3302 — rafhlöðu kassettu segulbandstæki,
2. N 2202 —„DE LUXE” rathlöðu kassettu segulbandstæki
3. N 2204 —rafhlöðu/220 v kassettu segulbandstæki,
4. N 2205 — ,.DE LUXE" rafhlöðu/220 v kassettu
segulbandstæki.
Auðvitað 4 gerðir, svo þér getiö valið rétta ferða-
félagann til að hafa með, hvert sem yöur hentar.
Lítið við hjá næsta umboðsmanni og veljið yður
Philips kassettutæki. Það mun henta yður.
HEIMILISTÆKI
HAFNARSTRÆTI 3 - SÍMI 20455
30. TBL. VIKAN 5