Vikan - 29.07.1971, Side 43
DEALER AID MATS No. 1-68-R
BEAUTIFUL EYES
C/^£ougfi,$nc.
MEMPHIS, TENN. 38101
OCTOBER, 1968
DUO-TAPER BRUSH
yHÖjjygúm OLTRR LRSH
MAGIC MASCARA
B5aaag== ii! MAGIC MASCARA REFILL I ULTRQ SHftDOUJ *C ULTRRBROUJÍU
.JÍcu^IÆms, ULTRRLRSH 1 1 ) ^ tfgsamiam
ULTRA LASH REFILL
PÉTUR PETURSSON, HEILDVERZLUN HF.
SUÐURGÖTU 14.
þessari tilhneigingu í sænsk-
um vikublöðum. Þar er ár og
síð og alla tíð verið að kenna
fólki, hvernig hægt sé að reka
saman borð og stóla úr kassa-
fjölum og mála þetta svo í
skrautlegum litum. Er ekki
bara verið að snobba niður á
við“?
„Kannski má segja það. En
þessi breyting stendur auðvit-
að mikið í sambandi við unga
fólkið og viðhorf þess. Ef ég
má aftur taka dæmi úr hús-
gagnaiðnaðinum, þá voru fram
leidd í Svíþjóð sérstök ein-
föld og ódýr húsgögn ætluð
námsfólki og fólki sem er að
byrja búskap. Markaðurinn
reyndist hinsvegar miklustærri
en upphaflega var áætlað og
kom það til af því, að allskonar
fólk frá 25 ára aldri til fimm-
tugs, keypti þessa hluti til að
vera með á nótunum, taka þátt
í þessari nýju hreyfingu en
auðvitað líka vegna þess, að
hér var um ódýra framleiðslu
að ræða“.
„En sem sagt, það er mikil
breyting á lífsviðhorfi fólks í
Svíþjóð um þessar mundir“?
„Alveg tvímælalaust. Það eru
allir skapaðir hlutir teknir til
endurmats og fólk efast afskap-
lega mikið um margt af því,
sem áður var talið eftirsóknar-
vert“.
„En hefur þá eitthvað ann-
að komið í staðinn sem stöðu-
tákn“?
„Ekki beinlínis. Ekki einstak
ir hlutir eða eignir a.m.k.
Menntun hefur kannski komið
í staðinn. Það er litið miklu
meira upp til manns sem get-
ur eitthvað og kann eitthvað
sérstakt en þess er komizt hef-
ur yfir eignir. Af þeim ástæð-
um er ekki fráleitt að álykta,
að í uppsiglingu sé nokkurs-
konar yfirstétt menntamanna
og sérfræðinga. Það er mikil
virðing borin fyrir sérþekk-
ingu og getu“.
„En þú ert arkitekt og mér
skilst að þú sért kominn hing-
að til lands vegna þess að þú
hefur hannað einhver húsgögn,
sem hér eru á markaðnum".
„Það er rétt að ég hef hann-
að og' fengið einkaleyfi á sér-
stöku hillukerfi, sem nefnt er
eftir sjálfum mér og kallað
Pirasystem. Það eru uppistöð-
ur úr málmi og tréhillur. Þetta
er einfalt kerfi, fljótlegt að
breyta því og í rauninni má
segja að það sé partur af þeirri
viðleitni í sænskum húsgagna-
iðnaði, sem ég nefndi áðan.
Stefnan er einungis sú, að gera
þetta ódýrara og ódýrara, þann-
ig að hver einasti maður geti
notað það. Heima í Svíþjóð
höfum við getað lækkað verð-
ið á þessari framleiðslu og það
er út af fyrir sig merkilegt, að
verðlag á sænskum húsgögn-
um hefur yfirleitt farið lækk-
andi á undanförnum árum
þrátt fyrir gífurlega verð-
bólgu“.
„En samt er auðvitað alltaf
til fólk, sem vill eiga dýra
hluti, handunna“?
„Það er frekar fátítt, en það
er til. f Svíþjóð fást innfluttt
húsgögn frá Ítalíu, Þýzkalandi,
Danmörku eða Finnlandi og
verðlag á þeim er algerlega ó-
sambærilegt. f Svíþjóð er sér-
hæfingin mikil og margar
verksmiðjur framleiða ein-
göngu húsgögn handa hótelum,
skrifstofum og fyrirtækjum.
Einnig þar miðast allt að því
að gera framleiðsluna einfalda
og ódýra. Áður fyrr tíðkaðist
að hafa djúp leðursófasett á
skrifstofum, en það er að mestu
úr sögunni og víðast er það
svo, að forstjórinn situr í sömu
gerð af fjöldaframleiddum stól
og vélritunarstúlkan til dæm-
is“.
„Þú starfrækir þá verk-
smiðju í Svíþjóð, þar sem þú
framleiðir hillurnar".
„Meira en það. Pirasystem er
framleitt í fjórum löndum, Sví-
þjóð, Finnlandi, Þýzkalandi og
Columbiu, en auk þess er það
selt í fimmtán löndum. Ef mið-
að er við tölu á hvern íbúa,
veirður fsland númer eitt.
Reyndar eru aðeins uppistöð-
urnar fluttar inn og þó hvorki
30. TBL. VIKAN 43