Vikan - 29.07.1971, Blaðsíða 49
ÞAÐ VARÐ AÐ LOSA HANN ÚR BÍLNUM
MEÐ LOGSUÐUTÆKI
Það var í beygju á veginum við Silverstone fyrir utan London, að
Ronnie Petersen ók á 150 km hraða í March-Alfa bílnum sínum.
Hemlarnir stóðu á sér, og hann ók inn í moldarbarð. Hann sat með-
vitundarlaus við stýrið, þegar komið var að honum, og það þurfti
að logsjóða stykki úr bílnum til að ná honum út. Hættan var sú, að
bíllinn gat logað upp á svipstundu. En Ronnie varð bjargað; hann
slapp með heilahristing og brotinn úlnlið. Þetta er í fjórða sinn, sem
hann ekur bíl í klessu þetta árið. Myndin er af flakinu, þegar verið er
að koma því inn á viðgerðarverkstæði.
ÁTTRÆÐUR OG ENN í DANSTÍMUM
Francis Partos er áttræður og hann hefir verið í danstímum reglu-
lega í tuttugu ár. (Hér á myndinni er hann með kennslukonu sinni).
Nýlega fékk hann verðlaun á danssýningu, og það var konan hans,
sem er 62 ára, sem dansaði með honum. Hann segir, að unga fólkið
hafi ekki hlegið nema rétt snöggvast.
Þetta er stærsta myndavél í heimi. Hún vó 600 kg. og var smíðuð í Chicago árið 1900. Það þurfti 15
manns til að taka á hana og platan vó 24 kg. (130x240 cm).
S0NUR DAYANS
ER KVIKMYNDA-
LEIKARI
Kvikmyndaleikarinn Assaf Day-
an er sonur hins harðskeytta,
eineygða varnarmálaráðherra
Israelsmanna. Hann er nú stadd-
ur ( Hollywood. Hann segir: „Ég
er kvikmyndaleikari, en fyrst og
fremst er ég ísraelsmaður".
Þegar Dayan hinn ungi er spurð-
ur, hvern hann kjósi sem með-
leikara, þá svarar hann, að það
sé Omar Sharif. En kvenna-
ljóminn mikli er Egypti og það
er ekki vel hentugt, þegar gall-
harðir ísraelsmenn eiga f hlut.
30. TBL. VIKAN 49