Vikan - 09.12.1971, Qupperneq 37
Jóns Sigurðssonar: Eigi víkja.
Fyrir neðan stjörnuna: 17. júní
1944. “
Eins og sjá má af ofanskráðu
eru augljós tengsli þessa æðsta
heiðursmerkis okkar við ridd-
arareglur miðaldanna, og næg-
ir að benda á orðustigin í því
sambandi. Það kemur óneitan-
lega dálítið ankannalega fyrir
sjónir, því að á íslandi tíðkað-
ist aldrei riddaraskapur. En
það sem á að gefa orðunni ekta
íslenzkan svip er fálkinn, ill-
fygli það er við höfðum um
hríð í skjaldarmerki okkar og
Heimdellingar hafa enn til
sama brúks.
f „Forsetabréfi um starfs-
háttu orðunefndar“, útgefnu
þrítugasta og fyrsta desember
1945, er klausa sem enn frekar
bendir á skyldleikann við regl-
ur miðalda. f fjórða kafla stend-
ur: „Orðunefnd getur, í sam-
ráði við stórmeistara, kvatt
orðubræður saman við hátíð-
leg tækifæri eða þegar merki-
legt mál, sem orðubræður varð-
ar, er á döfinni. — Ef henta
þykir, setur stórmeistari slík-
um fundum og samkomum regl-
ur, í samráði við orðunefnd."
Hér er að heyra að þeir, sem
sæmdir eru fálkaorðunni, séu
þar með inngengnir í sérstakt
bræðralag, líkt og forverar
þeirra í krossferðunum.
Næsti kafli í þætti Ríkishand-
bókarinnar um fálkaorðuna er
„leiðbeiningar um, hvernig bera
skuli heiðursmerki." Þar segir
svo:
„Heiðursmerki eru að jafnaði
ekki borin, nema er menn klæð-
ast hátíðabúningi (kjólfötum,
hátíðaeinkennisbúningi eða
hempu).
I.
íslenzk heiðursmerki.
A. Riddarakross fálkaorðunn-
ar og önnur opinber heiðurs-
merki skal bera á brjóstinu
vinstra megin (í hnappagati á
kjóljakka eða á móts við það).
Séu merkin fleiri en eitt, skal
bera þau samhliða, raðað frá
hægri til vinstri í þessari röð:
riddarakross fálkaorðunnar, al-
þingishátíðarpeningur (1930),
lýðveldishátíðarpeningur
(1944), heiðurspeningur til
minningar um Svein Björnsson
forseta, afreksmerki hins ís-
lenzka lýðveldis, heiðursmerki
Rauða kross fslands."
Ennfremur segir:
„Það er aldrei ótilhlýðilegt
að bera heiðursmerki í fullri
stærð, en ekkert er því til fyr-
irstöðu að bera smámerki
(miniature) við allflest tæki-
færi.
það allra
nýjasta
frá Candy
BRAVA 8/4
UPPÞVOnA-
VÉLIN
Skólavörðustíg,
sími 13725
Farseðlar ti!
/ vetur
Só/arfri i skammdeginu
Allar nánari upþlýsingar veitir:
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL
PÓSTHÚSSTRÆTI 2, REYKJAVÍK
SÍMI 2 69 00
49. TBL. VIKAN 37