Vikan - 10.02.1972, Side 4
f------------V
MIÐÆPRENTUN
Takiö upp hina nýju aöferö og látið prenta
alls konar aðgöngumiða, kontrolnúmer, til-
kynningar, kvittanir o.fl. á rúllupappír. Höf-
um fyrirliggjandi og útvegum með stuttum
fyrirvara ýmis konar afgreiðslubox.
LEITIÐ UPPLÝSINGA
HILNIRhf
Skipholti 33 - Sími 35320
V------------------------J
PéSTURINN
Leikskóli
Elsku Póstur minn!
Nú verð ég að leita á náðir þln-
ar eins og svo margur hefur
gert og fengið greinargóð svör.
Ég er 20 ára ólofuð sveitastúlka
og mig langar í leikskóla. Mér
finnst vera tími til kominn að
fara að hugsa um framtíðina, en
ég veit ekki hvert ég á að snúa
mér, þó ég hafi augastað á Leik-
félagi Reykjavíkur. Viltu svara
fyrir mig eftirfarandi spurning-
um:
1. Hvert á ég að snúa mér?
2. Hvað er námið langt?
3. Er heegt að komast á kvöld-
skóla?
4. Hverjar eru námsgreinar?
5. Hvaða próf eru nauðsynleg
til innritunar?
Með fyrirfram þakklæti.
María.
Eins og þú hefur áreiðanlega
lesið í blöðum, þá lagði Leikfé-
lag Reykjavikur niður skóla sinn
fyrir nokkrum árum til að reka
á eftir ríkisleiklistarskóla og
skóli Þjóðleikhússins hefur ekki
tekði inn nemendur í nokkur ár
heldur, þótt forráðamenn Þjóð-
leikhússins hafi látið að þvi
liggja nýlega að það gæti
breytzt áður en langt um líður.
Allavega skaltu vera vel á varð-
bergi og fylgjast með fréttum af
þessu í blöðum og öðrum fjöl-
miðlum. Nám í þessum tveimur
skólum hefur verið 3 ár og í
flestum tilfellum hefur gagn-
fræðapróf nægt til inngöngu. Þá
hafa nokkrir aðilar, til dæmis
Ævar R. Kvaran, rekið einka-
skóla sem hefur verið vel sóttur
og er öruggt mál, að gott væri
fyrir þig. að hafa farið á slíkt
námskeið áður en þú ferð í
raunverulegan skóla. Eins hefur
Leikfélag Akureyrar verið með
námskeið og ættir þú því að
byrja á að skrifa þeim~og biðja
um upplýsingar. Svo óskum við
þér góðs gengisl
Einum of erfiður
Kæri Póstur!
Ég er ein af þeim stúlkum sem
eru i vanda. Ég er meS strák
sem viS skulum kalla X,. hann
er seytján ára en ég er fimmtán.
Ég er svaka skotin í X, en á erf-
itt meS aS hemja hann. Hann
er einkabarn, sem hefur alltaf
fengiS allt sem hann vill. Þegar
viS förum í bíó, vill hann alltaf
vera úti í horni en ekki hjá
krökkunum. Ég vil ekki láta
undan, er ég gamaldags? HvaS
kostar Vikan í áskrift?
HvaS á ég aS gera, elsku Póstur?
Arna.
P.S. HvaS lestu úr skriftinni?
Er ekkert athugavert við hann
annað en það, að hann vill sitje
út af fyrir sig, þegar þið farið
í bíó? Ef það er ekki fleira, eig-
um við nú erfitt með að sjá að
vandamálið sé alvarlegt. Nú er
það svo að fjöldi fólks, einkum
þess yngra, virðist fara í bió
fremur til að vera í félagsskap
heldur en að horfa á myndina;
kvikmyndagagnrýnandi eins höf-
uðborgardagblaðsins kallaði bí-
óin fyrir skömmu samkomustað
unglinganna. Ekki erum við að
lasta það, einhvers staðar verða
þessir aumingja rollingar að
koma saman, ekki sízt núna eft-
ir að Glaumbær er brunninn,
hvað þá á stöðum úti um land,
þar sem aldrei hefur verið neinn
Glaumbær. Hins vegar gæti þetta
hátterni vinar þíns bent til þess
að hann væri með greindari og
athugulli mönnum og hefði til
dæmis áhuga á og bæri skyn á
kvikmyndalist. Sé svo, er ekki
nema eðlilegt að hann vilji sitja
í friði úti í horni, þar sem hann
getur notið myndarinnar ótrufl-
aður, í stað þess að vera í arga-
þrasinu f miðjum sal. Svo eru
menn auðvitað misjafnlega fé-
lagslyndir, og auðvitað hvorki
betri né verri fyrir það.
Nú, svo getur Ifka verið að þetta
séu einhverjir stælar í drengn-
um, ef honum hefur verið spillt
með eftirlæti, eins og þú gefur
í skyn. Málið veltur í heild á
þvi, hversu vænt þér þykir um
hann og hvað þú treystir þér til
að þola honum. Að reyna að
breyta honum að ráði er hæpið,
enda gætu tilraunlr i þá átt
flokkast undir frekju og yfir-
ráðaffkn af þinni hálfu. Þú ert
ekkert gamaldags þótt þú látir
ekki undan, og ekki heldur þótt
þú gerir það. Áskriftargjaldið
fyrir Vikuna er tvö þúsund ofl
tvö hundruð krónur á iri, ein*
4 VIKAN 6. TBL.