Vikan


Vikan - 10.02.1972, Side 14

Vikan - 10.02.1972, Side 14
STJÖRNUSPÁ FYRIR ALLT ÁRIO 21/3 — 20/4 Viðhorf þín til annars fólks breytast sjálfsagt á árinu, og þú sýnir manneskju, sem þú stendur í ástasambandi við, vaxandi alúð og umhyggju. Sem stendur ertu alltof upptekinn af eigin hugs- unum og tilfinningum til að geta sett þig í spor ástarinnar þinnar, en í janúar skeður dálítið, sem ruskar dálítið við þér. Þú ert leiður á því hversdagslega og leitar að lífsreynslu, sem gert geti þér léttara í skapi og fengið þig til að gleyma, en ef þú lifir af mikilli ákefð og hraða, verðurðu að reyna að komast í takt við sjálfan þig ekki seinna en í vor. í febrúar færðu skemmtilegt verkefni, en starfið kemur til með að útheimta mikinn sjálfsaga og einbeitingu, svo að þú færð lítinn tíma til dagdrauma. — Astarvandamál, sem nú kunna að virðast óleys- anleg, verða þér aðeins áhyggjuefni í nokkra mánuði í viðbót. Og í júlí vinnurðu á sjálfum þér sigur, sem gefur þér hamingju, er þú áttir ekki von á. í októberlok tekurðu erfiða ákvörð- un og ferð að skipuleggja framtíðina, en þangað til verðurðu að þreifa þig áfram skref fyrir skref. VOGIN 24/9 — 23/10 Þú hlakkar mjög til þess að geta veriö með elskunni þinni og þarfnast mikillar tilfinninga- legrar svörunar til að geta verið hamingjusam- ur í upphafi árs. Þú vilt gjarnan láta annast þig og hefur gaman af að vera laus við alla ábyrgð. En þú verður að taka afstöðu til þess, sem kann að koma fyrir þig undir vorið, og missir af góðu tækifæri ef þú ert framtakslítill um of. Þú hef- ur síður en svo háar hugmyndir um sjálfan þig, en láttu ekki á þv£ bera. Þú ert áreiðanlega greindari og gáfaðri en þú sjálfur heldur; það færðu staðfest i október. Tilfinningalíf þitt er stormasamt; reyndu að ná stjórn á því og bland- aðu ekki svo mjög geði við aðra að þú týnir sjálfum þér. Þú ferðast ekki mikið á þessu ári, en getur aukið reynslu þína á annan hátt. Haust- ið verður viðburðaríkt. Þú vilt helzt skilja allt, sem fyrir kemur og hefur góða athyglisgáfu, en þú mátt ekki vera svona latur. Undir árslok kynnist þú manneskju, sem þú lærir mikið af og sem líka gæti reynzt þér góður vinur. 21/4 — 21/5 Þú nýtur nú kannski þegar frjálsræðis sem er innra með sjálfum þér og gerir ábyrgð þína léttari og heiminn bjartan og fallegan í augum þínum. Notaðu vetrarmánuðina vel og haltu fast við það, sem þú hefur ákveðið. Þú hefur tekizt á hendur erfitt verkefni og efast kannski stund- um um getu þína til að leysa það af hendi, sér- staklega í marz, þegar ýmiss konar vandamál, einkum efnahagsleg, hlaðast upp. En láttu þau ekki buga þig, heldur notaðu greind þína og frumleika til að leysa þau. Þú ert alltaf ívið sterkari fyrir en þú heldur. Það sem þú þarft er öruggt frambúðarsamband við aðra manneskju, en ert hræddur um að missa stjórn á tilfinning- um þínum. Þess vegna heldurðu honum/henni, sem þú elskar mest, í nokkurri fjarlægð, eða þá að þú lætur hann/hana ganga gegnum erfitt próf. En þú heldur þetta ekki út lengur en fram í ágúst. Og þegar þú hefur einu sinni tekið þína ákvörðun, verður henni varla breytt. í haust færðu tækifæri til ferðalags, þar sem þú getur öðlazt nýja reynslu er kemur þér vel í starfinu. SPORÐDREKINN 24/10 — 23/11 Árið hefst með meiriháttar breytingu í lífi þínu; þú þarft að aðlagast nýjum kringumstæð- um og þýðir ekkert að streitast gegn því. Hversu vel sem þú kannt við þínar gömlu venjur og hugsunarmáta verðurðu að láta þetta lönd og leið, og í vor færðu þetta launað með sterkri frelsiskennd. Þú sérð og skilur ástæður annarra og gortar gjarnan af skarpskyggni þínu, en hvað þínar eigin ástæður snertir áttu mikið eftir ólært, og það getur elskan þín kennt þér. Ferða- lag í júní verður þér til góðs, og kannski kanntu betur að meta góða vini eftir að hafa verið einn um nokkurt skeið. Þér líkar ekki að nokkurs sé krafizt af þér, en gerir sjálfur miklar kröfur til annarra og vænti þér mikils af þeim. Þetta er auðvitað ekki sanngjarnt, en það skilurðu ekki fyrr en í haust, þegar þú kemst í þá aðstöðu að eiga völina og kvölina. Þú getur bætt efnahag þinn, en fjárfestu ekkert nema að vel athuguðu máli. Vertu varkár í októberbyrjun, sérstaklega ef reynir á sjálfstraust þitt. Þú verður virðingar aðnjótandi í árslok, en úr allt annarri átt en þú hefur búizt við. 22/5 — 21/6 Ákveðin lífsreynsla gerir þig sterkari fyrir og kannski ívið alvörugefnari í upphafi árs, en láttu það ekki villa þér sýri og vertu þögull um það takmark, er þú hefur sett þér. í apríl skaltu komast hjá ónauðsynlegum rökræðum og halda aftur af kímnigáfunni. Þú gætir misst góðan vin, sem ekkert vill frekar en hjálpa þér. Þig dreym- ir rómantískt um hvernig tvær manneskjur eigi að lifa saman, en hætt er við að blákaldur raun- veruleikinn reynist eitthvað á annan veg. Eigin- lega ertu talsvert heimtufrekur, en ef þú getur slegið af kröfunum og vonunum og reynir að lifa í núinu verður samlíf þitt hamingjuríkara. Þú ert óþolinmóður og eirðarlaus og alls ekki eins auðvelt að lynda við þig og þú heldur, en þú þarfnast trúnaðarmanns. í sumar gætirðu fengið nýtt starf, sem gæfi meiri möguleika en það sem þú gegnir nú, en þá verðurðu að læra að tjá þig. Og í september verðurðu kannski bú- inn að öðlast það þrek, sem þarf til að sætta sig við eigin veikleika. Umheimurinn gæti þér þá virzt vinsamlegri en fyrr. BOGMAÐURINN 24/11 —21/12 Þú berð þig óskaplega illa í ársbyrjun og sérð hvorki Ijósan punkt á vinum þinum né elskunni þinni. En þú þarfnast þeirra og verður að lok- um að viðurkenna að þú ert ekki sú stolta og sjálfstæða persóna sem þú reynir að vera. Þvert á móti, annað fólk er þér mjög mikilvægt og þú lærir dálítið, sem aðeins lærist í samfélagi við aðra, og það breytir þér. Þú gerir þér það ljóst eftir dálítið stormasamt tímabil i marz. í sumar færðu tíma til að ljúka áríðandi verkefni, og áreynslan verður þér holl. Þú þarfnast útrásar fyrir orku þína og hefur gaman af að fást við erfið verkefni, sem fljótlega gefa eitthvað i aðra hönd. En peningar eru ekki nóg til að gera þig ánægðan. Þú gleðst af því að hjálpa öðrum. í október verða ástir þínar í góðu gengi og þú sérð sjálfan þig i nýju ljósi. Kringumstæður þínar breytast ekki á ytra borði, en i árslok sérðu þær í allt öðru ljósi en þú gerir nú. 14 VIKAN 6. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.