Vikan - 10.02.1972, Síða 48
en sálir þeirra munu finna frið
á himnum.
Það rann upp fyrir mér að
einmitt í dag var 2. september
og þegar mér datt það í hug,
fannst mér ég heyra daufan
klukknahljóm. Mér fannst það
hlyti að vera ímyndun, þangað
til ég sá drenginn lyfta höfðinu
og hlusta. Ég heyrði aftur
hljóminn. En þá varð mér ljóst
hvað það var. Það var hljóð frá
flotbauju, sem gaf frá sér þetta
hljóð, við breytta vindátt, eða
það gat verið í sambandi við
flóð og fjöru.
Við héldum áfram og hljóðið
frá baujunni fylgdi okkur. Það
var dapurlegt að heyra þetta
hljóð í þokunni.
En svo heyrði ég annað hljóð;
það var Querol, sem kallaði á
Jacky.
• — Querol! öskraði ég.
— Ert það þú, Ross?
Rétt í því komum við auga
hvor á annan. Querol var greni-
lega fullur angistar.
— Hafið þið orðið varið við
nokkuð? spurði Querol og ég
hristi höfuðið.
— Skýlið hlýtur að vera hér
i nágrenninu, sagði hann. — Við
erum nú komnir á suðurodda
Kananga. Það er tilgangslaust
að við dreifum okkur, það er
betra að við höldum saman.
Það leið ekki á löngu þar til
við komum auga á skýlið milli
þokubakkanna. Við annan enda
þess sáum við leifarnar af gamla
vitanum, sem bar við himinn.
— Hvað eigum við nú að
gera? t.autaði Querol, frekar við
sjálfan sig en okkur hina. —
Eigum við að halda áfram,
eða...? Ef Leigh skyldi nú
gruna að við vitum hvar hann
er...
Það var dauðaþögn og ekkert
sem bar þess merki að nokkur
maður væri í skýlinu. Querol
hikaði. — Ef þau eru í skýlinu,
hafa þau heyrt þegar við köll-
uðum. Hversvegna svara þaú þá
ekki? Hversvegna koma þau
ekki út?
Við horfðum í angist á hljótt
og eyðilegt skýlið. Ég reyndi
af alefli að hlusta eftir minnsta
hljóði og mér fannst ég heyra
eitthvert þrusk. Það var einna
iíkast ískri í dyragætt. Ég hafði
ekki augun af gættinni og sá að
hurðin mjakaðist um hárs-
breidd.
— Þau eru þar, hvíslaði ég.
— Öll þrjú? hvíslaði Querol,
— eða Leigh einn?
Ef Leigh væri þar einn, þá
voru Jacky og Jonathan liklega
látin. Það var aðeins ein leiði til
að komast að hinu rétta og það
vissi Querol líka. Hann beít á
vörina. Mér varð hugsað til
Jacky, sem var svo grannvaxin
og smágerð, hjálparvana ... Og
hvað Leigh gæti hafa gert
henni.
Skyndilega þaut Querol af
stað frá runnagróðrinum, sem
hafði skýlt okkur og hljóp yfir
auða svæðið, sem var á milli
okkar og skýlisins.
— Jacky! öskraði hann.
Það ynr hleypt af skoti frá
. gættinní. Það lenti í jörðinni
og þeytti upp miklu skýi af
sandi og möl, hálfum meter
fyrir framan Querol. Var þetta
skot til varnaðar? Ég flýtti mér
eftir Querol, til að halda aftur
af honum, en of seint. Annað
skot felldi hann til jarðar. Hann
snerist á hæl og greip um. öxl-
ina, áður en hann féll.
— Hættu þessum leik, djöf-
ulsins skepnan þín, öskraði ég.
— Hættu, hættu . . Ég fleygði
mér niður við hliðina á Querol.
Hann !eit upp, eins og hann
vildi ekki trúa þessu. — Hann
skaut á mig.
— Hvar hitti hann þig?
— í hægri öxlina.
— Ég kem strax aftur! í reiði
minni ætlaði ég að halda áfram
að skýlinu. En Querol greip í
mig. — Ertu brjálaður? Það
þýðir ekki að fara að neinu óðs-
lega núna! Hann andaði djúpt
og stundi af sársauka. Ég lagðist
nokkuð treglega á kné við hlið
hans. Það komu ekki fleiri skot
frá skýlinu.
Mooney og drengurinn komu
nú varlega í áttina til okkar,
frá runnunum, sem áður höfðu
veitt okkur skjól.
— Ef við reynum að komast
þangað, sagði Querol með erf-
iðismunum og benti i áttina að
skýlinu, — þá reynir hann að
murka okkur niður, hvern af
öðrum. Hann getur svo sem gert
það núna.
Drengurinn titraði, ekki af
kulda, heldur af hræðslu. Moon-
ey, sem ekki var ljóst hvað skeð
hafði, spurði aftur og aftur;
— Hvað er að þér, Hektor?
Meiddirðu þig? Hvað er að?
En hann grunaði líklega fleira
en honum var fyllilega ljóst.
Augu hans voru full af tárum.
Querol hvíslaði að mér: —
Við verðum að koma okkur í
skjól. Við getum ekkert annað
gert eins og stendur. Við verð-
um ...
Hann þagnaði vegna þess að
það ískraði aftur í dyragættinni.
Ég leit þangað. Það var Jona-
than sem kom fram í gættina.
Jonathan? En ég sá strax að
Leigh var á bak við hann og
ýtti honum fram.
— Querol skipstjóri! Heyrið
þér til mín? Jonathan reyndi að
tala hátt og skýrt, en rödd hans
titraði af hræðslu.
— Já, stundi Querol, en ég
tók undir og sagði ákafur: —
Já, já!
— Við erum ómeidd, sagði
Jonathan. — En við verðum að
láta Leigh í friði. Hann þarf að
ætla sér tíma. Ef þið komið nær,
skýtur hann mig. Og Jacky lika.
Það segir hann að minnsta kosti.
En svo missti Jonathan stjórn á
sér. — Flýtið ykkur í burtu,
öskraði hann í örvæntingu sinni.
— í guðsbænum, flýtið ykkur
burt!
Leigh þreif þá til hans og dró
hann inn í skýlið. Dyrunum var
lokað, en samt var 6kilin eftir
rifa, ég sá að hún var háefilég
fyflr byssuhlaup.
Querol reis með erfiðismun-
um upp á hné. — Hjálpið mér,
stundi hann, — við verðum að
láta hann sjá að við förum eftir
skipunum hans. Flýtið ykkur
áður en hann fer aftur að
skjóta!
Ég gat hjálpað honum á fæt-
urur og lagði arm hans yfir öxl
mína. Mooney studdi hann hin-
um megin. Við skjögruðum svo
að runnagróðrinum, þar sem
við vorum líka nokkuð vel fald-
ir í þokunni. Það dimmdi æ
meir og það var ekki dimm-
viðrið, heldur var farið að halla
degi.
— Þokunni er að létta, sagði
Mooney og það var vonarneisti
í rödd hans.
En hverju breytti það? Ég
lét drenginn styðja Querol og
gekk á undan þeim.
— Hvert ertu að fara, Ross?
kallaði Querol á eftir mér.
— Við getum leitað skjóls í
kapellunni. — verið þar í nótt,
sagði ég.
— Kapellunni? Fannstu
hana?
— Já, sagði ég.
Ég leit upp í dimman him-
inninn, en rétt í því klauf eld-
ing skýjaþykknið og lýsti allt
í kringum okkur, en hvarf svo
strax aftur. í nokkur augnablik,
en kom svo fram á ný. Þá vissi
ég hvað þetta var, það var ekki
elding, heldur vitinn á Kumul.
— Hamingjan sanna, hvílík
heppni, sagði Mooney. Og í
skininu frá vitanum, sem lýsti
okkur eins og himneskur kynd-
ill, komumst við klakklaust til
kapellunnar.
En þegar líða tók á nóttu varð
ég vondaufur. Þarna var kalt
og rakt og nóttin virtist óend-
anleg. Við höfðum lagt Querol
á fúnu plankana og vafið mottu-
ræksninu saman til að stinga
undir höfuð hans. Hann vildi
ekki láta mig hreyfa við sárinu.
— Það er hætt að blæða, sagði
hann ,— og þú getur ekkert
gert við kúluna. Láttu það bara
vera!
Ég velti því fyrir mér hvort
ég ætti ekki að sækja sjó, til
að þvo sárið úr, en þarna var
ekki nokkurt ílát, enda var það
líka sjálfsmorðstilraun að reyna
að komast fram af klettabrún-
inni i þessu myrkri. Það var
ljóst að Querol var með hita,
en hann reyndi samt að gera
áætlun fyrir næsta dag.
— Við verðum að komast að
því hvort bátur Jonathans ligg-
ur ekki í einhverri víkinni,
48 VIKAN 6. TBL.