Vikan - 26.10.1972, Síða 10
RflUDfl
PRINSESSAN
OG
ARKITEKTINN
Svetlana dóttir Stalíns kynntist Wesley Peters,
lærisveini og eftirmanni hins fræga banda-
ríska arkitekts Franks Lloyds Wrights. En
henni féll ekki lífiS meðal hámenningarlegra
listamanna. Draumur Kremlarprinsessunnar
var að verða dæmigerð borgaraleg húsmóðir,
kona manns sem kæmi heim stundvíslega á
hverju kvöldi eftir vinnu frá níu til fimm . . .
Þegar. dóttir Jósefs Stalíns,
Svetlana Allilúéva, giftist Will-
iam Wesley Peters, aðalarki-
tekt Frank Lloyd Wright-stofn-
unarinnar, var það ástæða til
mikils fagnaðar í Taliesin West,
þar sem ekkja Wrights og læri-
sveinar halda áfram starfi höf-
uðmeistara bandarísks arki-
tektúrs í anda hans. Sú óbug-
andi frú Wright og állir félag-
ar og lærisveinar Peters veittu
þeim blessun sína, svo að allt
virtist benda til þess að hjónin
ættu fyrir höndum auðugt og
ánægjulegt líf í þvi einstæða
samfélagi, sem Wright-hjónin
höfðu komið á fót í eyðimörk-
inni, tuttugu og sex mílur fyr-
ir utan Phoenix í Arizona.
Brúðkaup þetta þótti auðvit-
að ekki hvað sízt tíðindum
sæta með tilliti til 'þess hver
brúðurin var. Þá sögu má hefja
er Svetlana Allilúéva gekk inn
í bandaríska sendiráðið í Nýju-
Delhi, eftir að hafa flutt ösku
unnusta síns heitins, Brijesh
Singh, til þorpsins hans í Ind-
landi. Hún baðst leyfis til land-
vistar í Bandaríkjunum. Svet-
lana hafði þekkt Wesley Peters
í aðeins tæpar þrjár vikur er
þau voru vígð saman eftir ritú-
ali kvekara í stórfenglegri dag-
stofu frú Wright í Taliesin.
Þetta þótti yfirtak mikill róm-
ans.
Atburðurinn þótti ekki ein-
ungis tíðindum sæta vegna
brúðarinnar, heldur og brúð-
gumans. Sérstaklega átti þetta
við um þá, sem kynnzt höfðu
Wesley Peters sem ungum
manni er hann varð fyrsti
lærisveinn Wrights í hinu upp-
runalega Taliesin í Spring
Green, Wisconsin. Peters hafði
þá orðið ástfanginn af og
kvænzt dóttur frú Wright, og
svo undarlega vill til að sá
kvenmaður hét einnig Svetlana.
1946, þegar þessi fyrri Svet-
lana Peters var tuttugu og níu
ára, var hún eitt sinn á leið til
Spring Green í opnum jeppa
ásamt börnum sínum tveimur,
fjögurra og tveggja ára, og
ófrísk að því þriðja. Af ein-
hverjum ástæðum lenti bíllinn
út af veginum og ofan í á, og
fórust þar Svetlana og yngri
drengurinn. Sá eldri, Brandoch
Peters, féll út úr bílnum áður
en hann lenti í ánni og slapp
ómeiddur, og þótti það ganga
kraftaverki næst. Þeir sem
voru viðstaddir síðari hjóna-
vígsluna mundu þennan hræði-
lega dag og höfðu þekkt Wes-
ley Peters þau tuttugu og fjög-
ur ár, sem síðan voru liðin. Á
þeim tíma hafði hann aldrei
kvænzt aftur. Nú gátu vinir
hans naumast tára bundizt; svo
mjög hrærðust þeir yfir ham-
ingju hans.
Athöfnin hlýtur einnig að
hafa vakið miklar tilfinningar
hjá Olgivönnu Lloyd Wright,
sem nú var komin yfir sjötugt.
Hér var tengdasonur hennar,
fyrsti og fremsti fylgismaður
hins virta manns hennar og
næstráðandi hennar sjálfrar í
Taliesin að kvænast hrífandi
konu, sem ofan á það var nafna
dóttur hennar. Þetta var kona
sem hafði hrifið heiminn með
hugrekki sínu og hreinskilnum
lýsingum á uppvexti sínum í
landi, sem faðir hennar hafði
ríkt yfir.
Það er því hætt við að mikil
hryggð hafi lagzt á sálir fólks-
ins í Taliesin tveimur árum
eftir hjónavígsluna, er Svet-
lana, þá fjörutíu og sex ára, og
tíu mánaða gömul dóttir henn-
ar fluttu inn í sextíu og fimm
þúsund dollara hús sem hún
hafði keypt nálægt Pleasant
Valley. Hún lét í ljós þá furðu-
legu hugmynd að William
Wesley Peters, þá orðinn fimm-
tíu og níu ára, gæti allt í einu
tekið upp á því að lifa eins og
hver annar venjulegur banda-
rískur heimilisfaðir og útborga-
búi, og sagðist ekki þola
„kommúnulífið" í Taliesin og
„einræðið", sem hún kveður
þar ríkja.
„Mér geðjast ekki að lífs-
máta hans,“ sagði hún. „Eg
vildi óska að hann gæti tamið
sér meiri reglu og meira einka-
líf. Hann verður sextugur í
júní, og hefur fulla þörf á að
lifa eitthvað út af fyrir sig.
Hvers vegna getur hann ekki
farið á skrifstofuna og komið
heim á ákveðnum tíma eins og
aðrir? Hvers vegna þarf hann
að lifa svo óeðlilegu lífi?“ Og
um Taliesin sagði dóttir Stal-
íns: „Þetta er undarlegur stað-
ur, þar sem enginn á neitt sjálf-
ur. Þar er allt á annan veg en
annars staðar í landinu. Þar er
allt sameiginlegt, tekjurnar,
maturinn, allt daglegt líf. Ég
þoli það ekki lengur. Ég leita
einkalífs og friðar og meira
ráðrúms fyrir mig sem ein-
staklings." Þar með var orðið
ljóst að hjónaband þeirra Wes-
ley Peters og Svetlönu hafði
verið á misskilningi byggt.
„Þetta er harmleikur," sagði
Peters. „Fyrir Svetlönu, fyrir
dóttur okkar, og fyrir mig.“
Og undir það taka allir á
Taliesin. Þar er talað vel um
Svetlönu -—• og af varúð. Það
er augljóst að fólkið þar vill
ekki særa hana á nokkurn hátt.
En sjálft er það sárt vegna
þess að henni tókst ekki að
skilja það og kærleika þess,
sem henni var boðinn. Og því
sárnar einnig að svo skyldi
fara með hjónabandið, sem
annars virtist næstum eiga
heima í ævintýri.
Meðal persónanna í harm-
leik þessum, sem áreiðanlega
hefði verið upplagt éfni fyrir
Shakespeare, er lykilpersónan
hvorugt þeirra Peters eða
Svetlönu, heldur miklu frem-
ur Frank Lloyd Wright sjálf-
ur, þótt hann sé- búinn að
liggja í gröf sinni á annan ára-
tug, eða síðan 1959. í þessari
sögu gegnir hann hliðstæðu
hlutverki og faðir Hamlets í
harmleiknum um Danaprinsinn
óða. Frank Lloyd Wright og
Framhald á bls. 47.
10 VIKAN 43.TBL.