Vikan - 02.08.1973, Síða 4
P0STURINN
Ef Ui trt afl:
BYGGJAt
BREYTA
EBA BfETA
ba líttu vH í LíttvtrL
tnrí bad ktfnr ávallt
borpafl sii
LITAVER
Símar 32262 - 30280 oo 30A8Q
Grensásveoi 22 - 24
BRJOSTSTÆKKUNARTÆKI
Kæri póstur!
Ég hef aldrei leitað ráöa þinna
áöur, en ég og vinkona min erum
þroskaöar á allan hátt nema
brjóstin eru svo litil og óþroskuð.
Okkur langar þvi til aö biöja þig
aö gefa okkur gott ráð. En
hvernig er með brjósta--
stækkunartæki? Eru þau örugg!
Haldast brjóstin alltaf i þeirri
stærö, sem maöur vill hafa? Viltu
gjöra svo vel að gefa mér upp
verlun, sem selur svona vöru.
Svo þakka ég fyrir hjálpina.
Tværivanda
Úti i löndum eru þeir farnir aö
sprauta einhverjum efnum i
brjóst kvenna til aö stækka þau.
En sú aðgerð er bæði dýr og
hættuleg. Til eru nokkur húsráð
um brjóstastækkun, td. að fara i
sund, gera æfingar og fleira i
þeim dúr. Hægt er að koma vexti i
brjóstin með hormónasprautum,
en læknar munu vera mjög tregir
til siikra aðgerða, og ráðleggja
sjúklingum sinum, I þessum
tilvikum ungum stúikum, að biða
nokkur ár og sjá, hvort þau vaxi
ekki af sjálfu sér.
Það tæki, sem þú eða þið kailið
brjóstastækkunartæki munu
iiklegast vera nuddtæki, er hér
hafa verið á markaðnum um
nokkurt skeið. Hægt er að fá með
þeim einhvern aukabúnað ætlað-
an til brjóstanuddunar, en þar
mun einkum vera um að ræöa
útbúnað til að stinna upp slöpp
brjóst. Þau tæki fást m.a. hjá
verzlunni Borgarfelli I Reykja-
vík.
Annars má taka þaö fram, að
litil og þétt brjóst eru oft fallegri
en stór og þung, svo þið þurfið
ekkert að skammast ykkar fyrir
Hkamsvöxtinn.
ANDAGLAS
Kæri póstur!
Viö erum hér tvær vink’onur, og
okkur langar til aö vita hvort eitt-
hvaö sé aö marka andaglas. Viö
höfum farið nokkrum sinnum og
alltaf náö sambandi viö sama
manninn. Sumt, sem hann hefur
sagt er rétt, sem viö höföum ekk-
ert vitaö um, og margt rætzt.
Okkur finnst þetta mjög undar-
legt, þvi viö rétt styöjum á glasiö.
Hvaö heldur þú, aö þaö geti
veriö?
P.S. Hvaö lestu úr skriftinni og
hvernig eiga krabbi og dreki
saman og dreki og naut?
Elsa
Það eru uppi margar og mis-
jafnar skoðanir um „andaglas”
og aðra skylda „gtarfsemi”.
Pósturinn vill ekki leggja neinn
dóm á, hvort eitthvað sé til i þvi,
sem kallað er „andaglas" eða
spíritisma almennt, og aldrei hef-
ur hann heyrt um samband við
einhvern I gegnum andaglas,
hvað þá ráðleggingar frá sam-
bandsaöila. Annars væri ráðlegt
fyrir ykkur að hafa Samband við
Sálarrannsóknarfélag islands, ef
þið hafið mikinn áhuga á svona
fyrirbrigðum.
Skriftin er mjög þokkaleg og
bendir til yfirvegunar og vaud-
virkni. Krabbi og dreki eiga ekki
vel saman, en samband sporð-
dreka og nauts er mikið betra.
UM ALÞJÓÐLEGAN
GJALDEYRI.
Kæri lesandi!
Brýn nauðsyn hvetur mig til að
leita til þin. Getur þú gefiö mér
upplýsingar um, hvort til sé þaö
yfirlit eöa sú bók, sem inniheldur
allan erlendan gjaldeyri með öll-
um smáatriöum s.s. frá
bandarikjado^llar niöur I cent og
dime og gjaldeyri allra landa.
Það þarf ekki endilega aö vera
isl. verö á þeim, bara kynning á
þeim. Hvar get ég fengiö hana
(bók eöa skrá) eða hvernig leitað
mér upplýsinga um þessa hluti.
Hvar get ég leitaö mér
upplýsinga um jóga-heimspeki og
iökun hér á landi.
Fyrirfram þökk fyrir svariö.
T
A þessum siöustu og verstu
timum er ekkert hér i heimi jafn
hverfullt og gjaldeyrisskráning
einstakra mynta frá degi til dags.
Seðlabankinn gefur út daglega
yfirlit um stöðu nokkurra
gjaldmiðla gagnvart islenzku
krónunni. En upplýsingar um
heiti elnstakra gjaldmiðla getur
þú fengið I vasabókum, sem
gefnar eru út rétt fyrir jól.
I bókabúöum er eflaust að finna
cinhverjar bækur um jóga, ef
ekki á islenzku þá á einhverju
norðurlandamálanna. Guðspeki-
félag tslands gæti frætt þig
eitthvað nánar um svona mál.
Einnig var gefinn út bókaflokkur
á islenzku fyrir nokkuð mörgum
árum um austurlenzka hcimspeki
og þýddi Gunnar Dal rithöfundur
einhverjar þcirra.
4 VIKAN 31.TBL.