Vikan - 02.08.1973, Blaðsíða 5
FÆÐING A JÓNSMESSUNÓTT
Kæri póstur!
Nú langar mig að forvitnast
svolitiö. Þann 3. júni var þáttur i
útvarpinu um Jónsmessu og
Jónsmessunótt. En það var
ekkertsagtumhvaðþaðþýddi að
fæðast á Jónsmessunótt. Eða er
þaö kannske ekkert merkilegt?
Þetta er nú svo stutt bréf, að þú
hlýtur að birta það. Bróðir minn
er nefnilega fæddur á Jóns-
messunótt kl. 1/2 1.
Jæja, fyrirfram þökk.
Bless.
Hér áður fyrr var það trú
manna, að Jónsmessunótt væri
einhver merkilegasta nótt ársins
og var til mikil hjátrú i sambandi
við hana. Nú orðið hefur hjátrúin
minnkað, en enn finnast gamlir
menn sem spá um tiðarfar eftir
veráttu i kring um Jónsmessu. i.
Þjóðháttabók Jónasar frá
Hrafnagili er ekki getið um neina
þjóðtrú I sambandi við barnsfæð-
ingu á Jónsmessunótt.
PLOKKAÐAR AUGABRUNIR
Kæri póstur!
Ég er aö hugsa um að leita
ráöa hjá þér, og vona ég fastlega
að bréfiö lendi ekki i ruslakörf-
unni.Ensvoermál meövexti,að
um daginn tók systir mln mig i
gegn og fór að plokka augna-
brúnirnar á mér, þvi þær voru svo
agalega loðnar og breiðar. Svo nú
verö ég að plokka þær á hverjum
degi, þvi hárið vex svo hratt, og
þegar ég er búin að píokka þær,
þá koma svo mikil sár á eftir og
ég verð alveg eldrauð á eftir. Ég
er með svo mikla minni-
máttarkennd út af þessu, að ég
greiði hárið alveg yfir augna-
brúnirnar svo að þær sjáist ekki.
Eins og um daginn þá fór ég i
snyrtivörubúö til að spyrjast fyrir
um meðal, sem mér var sagt, að
fengist þarna viðvikjandi þessu,
en það var bara hlegið að mér,
svo nú þori ég ekki aö spyrjast
fyrir um þetta lengur, og nú ætla
ég aö biðja þig að svara nokkrum
spurningum:
1. Er nokkuð til nokkuð meöal
til að eyða hárunum? Hvar fæst
það, og hvaö heitir þaö?
2. Er hægt að fá gervi-
augnabrúnir og hvar fást þær?
3. Eöa er til eitthvaö tæki til aö
nota við þetta?
Nú kæri póstur vona ég, að þú
gefir mér góð svör viö þessu og
það fljótt og enga útútsnúninga,
þvi mér liður ekki vel. ' P.S.
Hvernig er skriftin og hvaö lestu
úr henni? Hvernig eiga
steingeitin, kvenkyn og vatns-
beramerkið, karlkyn saman?
Miss Barzelia
Það er eingin ástæða til að vera
með minnimáttarkennd vegna
þykkra augnabrúna þvi þú getur
vertð viss um, að þú ert alls ékki
sú! eina, sem hefur áhyggjur af
sliku og kannske að ástæðu-
lausu. Þetta afgreiðslufólk i
snyrtivöruverzlunni hlýtur aö
vera meir en litiö skritið og litt
hlutverki sinu vaxið ef það hlær
að viöskiptavinum sinum.
Svör:
1. Ekki vitum við til, aö til sé
eitthvert sérstakt efni til eyðingar
augnabrúnum, en að Ifkindum er
hættulegt að nota háreyðingar-
efni, sem ætluð eru til aö eyða
hárum af öðrum likamshlutum.
2. Liklegast er hægt að grafa
upp gerviaugnabrúnir einhvers
staðar, t.d. hjá förðurum leikhús-
anna, en notkún gerviaugnabúna
hversdags vitum við ekki um.
3. Til eru augnabrúnapiokk-
arar I flestum snyrtivöru-
verzlunum. Reyndar er bezt fyrir
þig að fara til snyrtisérfræðings,
þvi svona vandamál hljóta að
heyra undir þá starfsstétt.
Steingeitin og vatnsberinn eiga
ekki vel saman og er þér jafnvel
ráðlegt að gefa allan slikan
kunningskap upp á bátinn.
Skriftin er snotur og bendir til
bliðlyndis og tilgerðarleysis.
— Við konan mín erum
eiginlega alltaf ósammála
og ég ætla að segja henni
það einhvern daginn!
PIRA-SY STEM
' 7,1 Bíl
Bezta lausnin er tvimælalaust
PIRA-SYSTEM
Ódýrt, traust, engin skrúfa eða
nagli í vegg.
Sendum verð og myndalista hvert á
land sem er.
HUSGAGNAVERZLUN
REYKJAVÍKUR
Brautarholti 2, sími 11940.
óskareiðhjól karla og kvenna.
Velamos reiðhjól drengja og telpna.
24” og 20” með hjálparhjólum.
Ódýr og góð hjól.
Öminn
Spitalastig 8 — simi 14661