Vikan - 02.08.1973, Side 34
Hann þakkaði mér hrósið,
álvarlegur á svip.
„Faðir minn vann á Lissabon-
flugvelli áður en hann dó. Hann
kenndi mér,” sagði hann og ég
spurði hann hvort hann byggi i
borginni.
Hann veifaði hendinni i áttina •
aö ibúðahverfunum. ,,Ég bý hjá
móður minni. Ég á margar systur
og marga bræður”. Hann taldi á
fingrunum fyrir okkur. „Mária,
Josa, Filomena, Jose Anronio,
Amalia og ég er Manuel.”
Hann hló og við hlógum meö
honum. Annað var ómögulegt.
Það var eitthvað barnslega ein-
falt við hann og áhrifin af likjörn-
um fengu mig til þess að bjóðast
til að kaupa handa honum drykk.
Hann afþakkaði það af meðfæddri
háttvisi og lét sér nægja að sötra
svart kaffið, sem þjónninn hafði
fært honum.
Ég býst við að Edna hefði litiö á
hegðun mina sem ósæmilegt dað-
ur, en mér stóð á sama. Ég
skemmti mér reglulega vel og
það var ekki fyrr en við fórum og
hann stóð upp til þess að bjóða
okkur góða nótt, að ég áttaði mig
á þvi, að Lára hafði ekki sagt eitt
einasta orð við hann.
begar við fórum upp i hótellyft-
unni, sá ég á svip hennar, að hún
hafði skemmt sér vel á sinn
þögula hátt. Ég vissi lika að hún
myndi ekki minnast á Manuel við,
móður sina. Þegar hún sagðist
ekki ætla að liggja með henni I
sólbaði morguninn eftir, fannst
mér eins og ég hefði unnið ofurlft-
inn sigur. Lára var ekki eins ofur-
seld vilja móður sinnar og ég
hafði haldið.
Niðri á ströndinni voru fiski-
mennirnir að flokka afla sinn I
sandinum. Nokkrir höfðu þegar
lokið flokkuninni og unnu kapp-
samlega við að bæta netin spöl-
korn frá. Meðal þeirra var
Manuel.
Fallegt andlit hans varö allt að
einu brosi, þegar hann sá okkur
koma og þegar Lára settist i
sandinn hjá honum og fóf að
hjálpa honum að bæta netið,
laumaðist ég i burtu.
Ég tek guð til vitnis, að ég ætl-
aði ekki að gera henni neitt illt.
Mér var orðið hlýtt til hennar og
ég sagði seinna við sjálfa mig, að
það hafi verið af þvi að ég gat
ekki horft upp á hana missa af lif-
inu. Það vakti mér ánægju og ugg
i senn, þegar hún sagði mér siöar
um daginn, að hún ætlaði að hitta
manuel um kvöldið.
Edna dró enga dul á, hvað henni
fannst um það. „Ég sagði henni
að hún væri fffl, en hún hlustaði
ekki á mig. Ég hef áhyggjur af
henni”.
Sjálf var ég ekki of viss i minni
sök, þótt að ég væri að reyna að
sannfæra Ednu. „Ég er viss um,
að hann er hættulaus og Lára er
enginn krakki. Hefur hún aldrei
veriö með piltum?”
Edna leit á mig undrandi og
skelkuð. Augnaumgerðin var öll
málðuð heiðblá. „Lára hefur
aldrei haft neinn áhuga á svo-
leiðis og það hefur aldrei neinn
karlmaður sýnt henni áhuga og
auk þess, ef nokkuð er að marka
það sem hún segir, þá er hann
fiskimaöur, venjulegur útlendur
fiskimaður”.
Það erum við sem erum útlend-
ingarnir”.
Edna snökti. „Þaö er ekki henni
likt að óhlýðnast mér.”
Ég fann til örlitillar sektar-
kenndar og fannst ég bera
ábyrgðina á þessu ævintýri að
nokkru leyti svo ég lá i sólbaði
með Ednu það sem eftir var dags-
ins. Ég reyndi að dreifa huga
hennar.
Þetta sama kvöld var dansleik-
ur f samkomusal hótelsins og!
hjónin tvö frá Solihull buðu okkur
að slást i hópinn með sér. Ég
kenndi stings i brjóstinu þegar ég
gekk yfir dansgólfið, sem var lýst
upp af marglitum ljósum. Aldrei
hefði ég saknað mannsins mins
eins mikið.
Lára var úti með Manuel — úti i
hlýrri dimmri nóttinni. Ég minnti
sjálfa mig á að hún var greind
stúlka og enginn hætta væri á að
hún gætti sin ekki. Ég minntist
þess, hve sæl hún var þegar hún
fór á fund hans um kvöldið og eitt
andartak fylftist ég afbrýðisemi i
hennar garö.
Lára d.eildi herbergi með
móður sinni og ég var að búa um
rúmið, þegar barið var að dyrum
og Edna kom inn. Hún gerði sér
það til erindis aö fá lánað nætur-
krem.
„Hún er komin”, sagði hún, „og
hún hefur lagst meðhonum. Ég sé
þaö á henni. Ég sagði henni, aö
hún væri kjáni og veiztu hverju
hún svaraði?”
Mig langaöi ekki til aö vita,.
hverju Lára haföi svaraö. Ég
furðaði mig á skynsemisskorti
móður hennar, en þaö var engin
leið að stöðva Ednu.
„Auðmýktu mig ekki mamma.
Það sagði hún”.
Löngu eftir að hún fór, löðrarrdi
i kremi, lá ég vakandi og sá vesl-
ings Láru fyrir mér. Móöir henn-
ar hafði traðkað á viðkvæmustu
og heilögustu tilfinningum henn-
ar.
Þessa nótt grét ég i koddann
minn, en þau tár voru ekki felld
vegna sjálfrar min.
Manuel hætti að stunda véið-
arnar og hann og Lára voru sam-
an öllum stundum og ég sá hvaö
henni leið. Hún var hamingju-
söm, en kveið ósegjanlega fyrir
kveðjustundinni.
Hún sagði okkur ekkert, en einu
sinni sá ég þau standa niður við
höfnina. Þau virtust eiga harla
fátt sameiginlegt. Lára var
ósmekklega klædd og langt frá
þvi að vera aðlaðandi, en Manuel
grannur og spengilegur. Hann
horfði samt á hana með aödáun
og hlustaði á það sem hún var að
segja.
Hún hélt áfram að vera jafn
þegjandaleg við okkur og þegar
við vorum á leiðinni á flugvöllinn
siöasta daginn, fór svo litið fyrir
henni, að mér stóð ógn af þvl.
Edna og ég gáfum hvor annarri
heimilisföng okkar og lofuðum að
skrifa. Ég missti sjónar á þeim I
látunum við aö komast I gegnum
tollinn.
Eldri sonur minn og kona hans
voru á flugvellinum til þess að
taka á móti mér. Ég vissi aö ég
var komin heim aftur og var fegin
þvi.
Edna og ég skrifuðumst ekki á.
Við vissum báðar mæta vel, aö
við áttum ekkert sameiginlegt, þó
aö við heföum umgengizt mikið i
þessar tvær vikur.
Ég sankaði að mér nýjum verk-
efnum. Ég fór á kvöldnámskeið I
portúgölsku og leirkerasmíði. Ég
sat hjá barnabörnunum á kvöldin
og ef ég vaknaði fálmandi i hjóna-
rúminu á nóttinni, þurfti enginn
að vita það.
Um jólaleytið kom bréfið.
Rithönd Ednu var eins og. hún
var sjálf, stórkarlaleg án þess að
vera ljót og mjög örugg. Lára bjó
I London og var gift — Manuel.
Þau bjuggu I einu herbergi I
Earls Court og Edna kvaðst
mundu veröa mjög fegin, ef ég
færi að heimsækja þau. Hún var
þess fullviss, aö þetta væru
hræðileg mistök.
Manuel vann á veitingahúsi á
kvöldin og Lára kenndi i einhverj-
um „lélegum skóla'. Edna sagðist
vera mest hissa á hvað þaö dræg-
ist, að Lára birtist aftúr i
Manchester, reiðubúin að játa að
hún hefði gert ægilegt glappaskot.
Ég fylltist forvitni, svo mikilli
aö ég ákvað að fara og heimsækja
þau. Ég þekkti þetta hverfi i
London með öllum gráu götunum
og ömurlegu húsunum og hugsun-
•in um feimna bliölynda stúlku
eins og Láru þar, var ekki upp-
örvandi.
Daginn eftir fór ég með troð-
fullri neöanjarðarbrautinni út I'
Earls Court og gekk næstum
endalausa götu áður en ég fann
rétt hús.
Herbergið var á fimmtu hæð.
Stigarnir voru ekki teppalagöir
og eldunarþefur barst frá öllum
dyrum sem ég fór fram hjá.
Dyrnar opnuðust um leið og ég
bankaöi'Manuel stóð i gættinni. í
fyrstu hélt ég að hann þekkti mig
ekki aftur, en svo brosti- hann
ánægjulega.
„Madame! En hvað er gaman
að sjá þig. Lára kemur rétt strax
heim. Komdu inn. Það er farið að
rigna. Komdu inn og seztu”.
Herbergiö leit hræðilega út.
Rúmið stóð I einu horninu og æva-
forn eldavél við einn vegginn. Það
sauð i potti á henni og hitinn var
þjakandi. Manuel gekk að elda-
vélinni og hrærði i pottinum.
„Ég elda alltaf matinn”, sagði
hann. „Aður en ég fer til vinnu.”
„Hann sneri imynduðum bakka
yfir höfði sér. „Ég er þjónn, skil-
uröu?”
Ég skildi hann allt of vel. Ég sá
hann fyrir mér ganga um béjna i
troðfullu veitingahúsi. Ég sá hann
berjast við að halda jafnvaégi á
bakkanum meðan dökkur
hörundslitur hans fölnaði og hann
sjálfur gugnaði.
Og ég minntist hans eins og
hann hafði verið á ströndinni. Ég
sá sólina skina á hann þar sem
hann sat og hnýtti netin.
Manuel lagði á bo^ðið og þegar
ég sagðist ekki vilja borða, virtist
honum misboðið.
„Stanzlaus rigning”, sagði
hann um leið og dyrnar opnuðust
og Lára kom inn. Kápan hennar
var blaut af vætunni og hún hélt á
innkaupatösku I hendinni.
Hún sá mig ekki strax, þvi að ég
sneri baki i dyrnar. Hún lét pinkl-
ana detta á gólfiö og hljóp beint i
fangið á Manuel. Hann tók blið-
lega um höfuð hennar og kyssti
hana og ég heyröi hann hvisla:
„Amo-te” og þó ég hefði ékki
kunnað orð I portugölsku, hefði
ég samt vitað að hann var að
segja henni að hann elskaöi hana.
Hann sneri sér að mér, ekki
vitund vandræðalegur, og sagði:
„Við höfum svo litinn tima sam-
an, aö ég segi þetta alltaf’við hana
um leið og hún kemur heim úr
vinnunni”.
Ég stóö upp og rétti Láru hönd-
ina. „Lára”, sagöi ég. „En hvaö
þú litur vel út. Mér finnst svo
gaman að sjá, hvaö þið eruð ham-
ingjusöm”.
Og ég meinti hvert orð af þvi
sem ég sagði.
Lára var gjörbreytt. Undir-
lægjusvipurinn og hlutleysiö var
horfið. Háriö þyrlaðist enn ógreitt
um höfuðið og -hún notaði engin*
■ fegrunarlyf, en þegar ég sá
hvernig Manuel horfði á hana,
skildi ég allt til hlitar.
Ég sjálf er ekki sérlega aðlað-
andi i útliti, er ólánlega vaxin og
þaö rétt grillur i augun á mér bak
við þykk gleraugun.
Samt var það einmitt svona
sem maðurinn minn hafði alltaf
horft á mig.
Og loksins rann upp fyrir mér
ljós.
HRAÐFERÐ... ______________
Frh. af bls. 33
framt lýstu þau yfir stofnun nýs
rikis, Nutopia, og sögðu einnig að
papplrsþurrkurnar væru þjóðfáni
34 VIKAN 31.TBL.