Vikan - 02.08.1973, Blaðsíða 37
talaö. Það er ekki bara orðið sem
segir söguna. Sá sem skrifar fyrir
sjónvarp verður að skilja það, aö
mynd og orð veröur aö tvinna
saman. Stundum segir myndin
miklu meira en langt talað mál:
Áhorfandinn sér mann ganga
eftir götu. Þessi maður rekur
augun I sofandi kött þar i garði.
Hann hendir steini I köttinn. Þetta
segir okkur miklu meira um
manninn en þótt hundrað manns
öskruðu: Maðurinn er sadisti!
— Hvað finnst þér um að rit-
höfundar séu dregnir i dilka eftir
pólltik?
— Fáránlegt! Hjá pólitískum
blindingjum liggur alltaf allt I
augum uppi, þvf þeir sjá ekkert
nema þaö myrkur sem þeir vaða
I. Sumir virðast halda, að enginn
sé rithöfundur, bindi hann ekki
trúss sitt við komma. Minnir
þetta óneitanlega á kaþólsku
kirkjuna, þegar hún sagði, 'að
eingin væri trúaöur sem ekki væri
kaþólikki. Ég er alltaf hræddur
um menn sem trúa á einhvern
einn stóran sannleik, og falla svo
allir að sama feigðarósi eftir
þessum eina farvegi sem trú
þeirra játar. Ég held að það sé
skylda hvers rithöfundar að leita
nýrra leiða. Hann verður að
þreifa sig áfram, reyna að finna
sinar eignin slóðir, eigin skilning.
Sjáðu Halldór Laxness! Hann
hefur fylgt ótal stefnum, játast
ótal skoðunum, en hann hefur
alltaf verið slikur listamaður, að
hann hefur ekki hikaö við aö
kasta þeim öllum fyrir róöa.
Hann hefur metið það sem var
gott í þeim. Þess vegna hefur
hann aldrei dagað uppi i stein-
runnum kenningum. Einmitt af
þeim sökum held ég, að „Kristni-
hald undir jökli”, sé ein hans
bezta bók. Þar finnur maöur
þessa miklu breidd og næman
skilning á mannlegum örlögum.
— Ætti ég að bendla mig viö ein-
hvern isma, einhverja kenningu,
þá væri það helzt kenning, sem
franska skáldið Alfred Jarry, höf-
undur „Bubba kóngs” setti fram.
Fræðikerfi hans er fylgt af
mörgum enn í Paris og viðar, og
kallast Patafysik. Patafysikin
hefur raunverulega aðeins eina
grundvallarreglu. Sú regla segir:
Allir hlutir og fyrirbrigöi eru
undantekningar frá reglu, sem
ekki er til.
Hefur þú lengi ætlað þér að
skrifa leikrit?
— Ég fór út I þetta nám gagn-
gert vegna þess aö mig langaöi til
að skrifa leikrit og sviösetja leik-
verk annarra.
— Hvernig fékkstu áhuga á
leikhúsinu? Hefur móöir þin
kannske vakiö hann?
— Nei, það furðulega er, aö þótt
móðir min sé leikkona, þá heillaði
leikhúsið mig ekki sem barn. Ég
var raunverulega mjög frábitinn
leikhúsi framan af. Ég orti og
Sjóvá
Hvort sém þér farið langt eða skammt — og hvert
sém þér farið, til Spánar eða Sigluf jarðar,
Bandaríkjanna eða Bildudals, þá er ferðaslysatrygging
SJÓVÁ nauðsyn.
Ferðaslysatrygging SJÓVÁ greiðir bætur við dauða af
slysförum, vegna varanlegrar örorku og vikulegar
bætur, þegar hinn tryggðl verður óvinnufær
vegna slyss.
Ennfremur er hægt að fá viðbótartryggingu, svo að
sjúkrahúskostnaður vegna veikinda eða slysa,
sem sjúkrasamlag greiðir EKKI, er innifalin
í tryggingunni
Ferðaslysatrygging SJÓVÁ er nauðsynleg, ódýr og
sjálfsögð öryggisráðstöfun allra ferðamanna.
Ferðaslysatrygging SJÓVÁ er tryggur förunautur.
Dæmi mn iðgjöld af ferðaslysatrygglngum SJÓVÁ:
(Söluskattur og stimpilgjöld innifalin).
TlMALENGD dAnarbætub ÖRORKl BÆTUR DAGPENINGAR A VIKU IÐGJALD
14 dag:ar 1.000.000.- 5.000.- 551.-
17 dag:ar 1.000.000.- 5.000,- 596.-
1 mánuður 1.000.000.- 5.000.- 811.-
SJÚVÁTRYGGINGARFELAG
ÍSLANDS
H
F
INGÓLFSSTRÆTI 5 REYKJAVÍK
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
SÍMI 11700
31.TBL. VIKAN 37