Vikan - 13.09.1973, Blaðsíða 12
Hún minntist sumarsins fyrir þrjátiu
árum, þegar allt var svo bjart. Þegar þau
lágu hlið við hlið á sólbökuðum klettun-
um og létu vel hvort að öðru. En síðan
voru liðin þrjátíu sumur og enn hafði hún
ekki gleymt honum ....
Vein? óp? Or iðgrænum
draumheimi, hlýjum og vingjarn-
legum, böðuðum i mildu skini
gylltra sólargeisla, hrökk Inga
upp til skuggalegrar og grá-
kaldrar hálfmeðvitundar.
— Ég er að koma. Eg kem
strax, mamma min!
Það var fyrst, þegar hún sat á
rúmstokknum með fæturna þreif-
andi eftir inniskónum á köldu
gólfinu, sem það rann upp fyrir
henni, að það var liðið nærri eitt
ár siðan mamma þurfti siðast
hennar hjálpar við.
Mamma var dáin. Elzta dóttir
hennar, Inga, var frjáls, hún gat
lifað sinu eigin lifi. Loksins. Það
hafði hún hugsað á sjaldgæfu
augnabliki sannleikans, þegar
jarðarförinni var lokið, og hún
ver ein eftir i rúmgóða, tveggja
hæða einbýlishúsinu. Loksins.
Þannig gat maður sem sagt
hugsað. En aldrei að segja aldrei.
Það var um að gera að komast frá
hugsuninni. Gleyma, að hún hafði
verið hugsuð. Þangað til henni
skaut upp aftur. Óvænt á miðri
nóttu.
En hvað var það, sem hafði
vakið hana? Henni fannst hún
heyra óp... eða öllu heldur vein.
Það var kannske allt saman bara
draumur. Nú var að minnsta
kosti þögn i húsinu. Bezt að leggja
sig og reyna að sofna aftur....
Nei, þar heyrðist það aftur!
Það var einhver, sem kveinaði.
Leigjandinn? Stúlkan niðri?
Guð munn góður! Henni liður
kannske illa! Inga hentist niður
stigann og yfir anddyrið. En
þegar hún kom til dyra leiguher-
bergisins, var allt hljótt. Hún lyfti
hendinni, reiðubúin að banka.
Ætti hún, gat hún þrengt sér inn
á...?
Neí, kannske ekki. Kannske
hafði stúlkan bara haft leiðin-
legar draumfarir. Það er til fólk,
sem hefur svoleiðis. Og nú heyrð-
ist ekki bofs.
Þá var bara að brölta upp aftur
og reyna að festa blund á ný. Hún
vissi, að það gæti reynzt erfitt.
Kannske glas af mjólk og smurt
brauð? Með slæma samvizku
gekk hún inn i eldhús, tók fram
mjólk og brauð og settist á háa
eldhússtólinn við eldhúsborðið.
Náttverður, hún vissi, að hann
var ekki góður fyrir linurnar. Og
hún var of þybbin. Það var henni
ekki til mikillar hjálpar, þó að hin
indæla frú Palm i kjólaverzlun-
inni segði, að hún væri akkúrat
passleg og gæti vel bætt við sig
nokkrum kilóum... Jæja, ein
brauðsneið gerði hvorki til né frá.
Og mjólk var góð fyrir taugarnar.
Hún sat og tuggði og hugsaði
um fyrsta sunnudagsmorgun
stúlkunnar í húsi hennar. Hvernig
hún, Inga, i skyndilegri þrá eftir
mannlegu sambandi hafði dúkað
borð og borið fram kaffi, ristað
brauð og sett appelsinumar-
melaðið i litlu postulinsskálina.
Siðan hafði hún bankað á dyr
stúlkunnar. — Hvort hún vildi
kaffi, svona á sunnudags-
morgnum bragðaðist það oft vel,
sem fært væri i rúmið...? Hún sá
fyrir sér litið dökkt höfuð
stúlkunnar, sem reis frá kodd-
anum — eins og ormur i varnar-
stöðu — föla andlitið með
skeifuna, ólundarlegu neðri vör-
ina og augun sem eins og
dökknuðu af ilisku undir svörtum
augnahárum. — Nei takk. Hún
vildi ekkert. Vildi bara sofa takk.
Að auki var hún vön að borða ekki
á morgnana...
Inga hafði hörfað frá og
muldrað einhverja afsökun um
leið.
Hún óskaði, að hún hefði aldrei
leigt út biáa gestaherbergið til
nýja lyf jafræðinemans, ungrar
ókunnrar stúlku frá höfuðborg-
inni. Eftir dauða mömmu hafði
hún helzt viljað selja húsið og fá
sér minni bústað, nær bankanum
þar sem hún vann. En það var
ekki svo auðvelt að fá hæfilega
ibúð nú á dögum, ekki einu sinni i
litlum bæ eins og Kulleras. Og
svstrunum og mönnum þeirra
fannst ekki ráðlegt að selja núna,
verðið átti eftir að hækka, hélt
Einar, um leið og nýja skipulagið
yrði samþykkt og iðnaðarlóðir
yrðu éftirsóttari. Auðvitað vilja
þau fá eins mikið og hægt er fyrir
fasteignina i smábænum, það
eina sem mamma hafði látið eftir
sig. Það var bara eðlilegt. Það
var kannske ekki jafn eðlilegt, að
þau voru ekki reiðubúin að skjóta
saman nokkrum krónum til við-
halds húsinu. Það var i slæmu
ástandi, það þarfnaðist
málningar, þakið lak við skor-
steininn. Hún þarfnaðist smá
leigutekna, hafði hún hugsað. Og
að auki, þegar það var Eyvindur,
sem bað hana....
— Ég verð að fá huggulega ibúð
fyrir nýja lyfjafræðinemann
minn, hafði hann sagt. Þú veizt.
Sú sem var á undan, flutti vegna
þess, að hún var óánægð með litla
herbergið yfir apótekunu. Það
hefur nú dugað siðan á dögum
tengdapabba... En kröfurnar
aukast. Ég bjó þar nú sjálfur einu
sinni. Eins og þú kannske
manst...
Hún mundi. Það var eins og hiti
færi um hana, ennþá eftir 30 ár.
sumarið það. Svo spennandi, svo
hlýtt, svo ljúft. Svo ólikt öllum
öðrum sumrum. Það sumarið
talaði bærinn um nýja lyfjafræði-
nemann, sem var með dóttur
læknisins... nei, það var ekki
fallega Marianne eða litla glað-
væra Berit, heldur sú elzta, þessi
stóra klunnalega, sem var ný-
byrjuð i bankanum. Stór og
klunnaleg, já. En hún sá sjálfa sig
i þokukenndum spegli stúlkna-
herbergisins: ungmeyjarljómi
yfir háum kinnbeinunum, rauð-
leitur gljái i brúnu hárinu, áköf
undrandi dökk augu. Næstum þvi
fögur. Tuttugu og tveggja ára.
ung og ástfangin. Einnig elskuð.
A sólbjörtum stundum á hlýjum
klöppum skerjagarðsins, á allt of
stuttum leynilegum nóttum i litla
þrönga herberginu yfir
apótekinu. Þefurinn, apóteks-
þefurinn, sem nú var varla til,
þegar næstum þvi öll lyf eru
framleidd i verksmiðjum, smaug
upp i litla herbergið með súðinni.
Hún gat enn fundið hann, og það
minnti á stæltan likama Eyvindar
við hennar, varir hans yfir henni,
hið heita hvisl hans við kinn
hennar: Ingalunda, Ingalunda,
Ingalunda....
Það var hið hlægilega gælunafn
hennar. Félagarnir héldu þvi
fram, að það hafi verið hún sjálf,
sem sagði það fyrsta daginn i sjö
ára bekk. Það gagnaði ekki, að
Inga Lund mótmælti. Frá þeirri
stundu hét hún Ingalunda i
bekknum. Og um leið og Mari-
anne byrjaði i skólanum, — það
leið ekki á löngu, þvi hún var bara
einu ári yngri, — fylgdi nafnið
henni heim. Foreldrarnir byrjuðu
að nota það, þvi þeim þótti það
sniðugt. Sjálf kunni hún ekki við
það, fyrr en Eyvindur lét það
hljóma eins og gælu, sumarið það
fyrir þrjátiu árum. Ingalunda . . .
Titrandi andvai;p, glöð undrun
vegna sætleika fyrsta fundarins.
Það sumarið giftist Marianne
Einari i lok ágúst. Stórt kirkju-
brúðkaup. Marianne var sem
Framhald á bls,,i4
Smásaga eftir Ulla Hornberg
12 VIKAN 37. TBL.