Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 13.09.1973, Qupperneq 23

Vikan - 13.09.1973, Qupperneq 23
i KREM 3/4 ltr. mjólk 125 gr. sykur 2 egg 3 eggjarauður 75 gr. hveiti 1 vanillustöng. Skrcyting: flórsykur rifsber. Fletjið smjördeigið út. i fer- kant ca. 20 cm. breið- an og lengd bökunarplötunnar. Skerið hann jafnan á allar hlið- ar og skiptið honum að endi- löngu. Pikkið kökurnar met gaffli og bakið i ca. 20 minútur. Ef kökurnar skyldu bakast meira á efri hliðinni má snúa þeim við og baka siðustu 5 min- úturnar með botninp upp. Þegar kökurnar eru siðan teknar af eru þær settar á hreina bökunarplötu og heita platan sett yfir og þrýst niður af gætni, svo kökurnar falli dálitið saman. Ef þetta er ekki gert brotna þær svo auðveldlega þegar þær eru orðnar kaldar. Kremið: Látið suðuna koma upp á mjólkinni blandaðri sykr- inum. Þeytið eggin og eggja- rauðurnar, hveitið og vanilluna saman. Hellið dálitlu af sjóð- andi mjólkinni gætilega saman við eggin og siðan öllu i pottjnn og látið hitna aftur en látið ekki sjóða. Hrærið i meðan kólnar. Leggið siðan kökurnar saman með kreminu og skerið þær út i jafnstórar kökur, sáldrið flór- sykri ofan á, og setjið þurr og hrein rifsber ofan á. RIFSBER Mesti hluti rifsberjauppsker- unnar fer i saft ðg hlaup. En ný rifsber eru góð þegar hið súra bragð þeirra hefur vanizt. Rifs- ber eru mjög auðug af C-vita- mini og innihalda 100 gr. af berjum 30 mg. af C-vitamini. Rifsber eru lika góð i kökur og ábætisrétti og einnig má frysta þau. RIFSBERJAKÖKUR Smjördeig: 200 gr. hveiti 8 msk. kalt vatn 200 gr. smjör Hnoðið hveitið saman með vatninu, og látið biða á köldum stað. Fletjið deigið út i ferkant og stráið hveiti undir en eins litlu og af verður komizt með. Skerið siðan smjörið niður i fin- ar sneiðar, (má nota ' ostaker- ann) og setjið á helming deigs- ins og brettið hinn helminginn yfir, og gfletjið út. Siðan er deigið flatt út en gætið að smjör- ið fari ekki út úr. Brettið nú deigið aftur og þá i þrennt, og er þetta endurtekið þrisvar sinn- um. Látið biða á köldum stað. Þetta deig má nota i alls konar kökur, og má t.d. baka úr þvi smjördeigsbotna og tartalettur. I eftirfarandi kökur er svo þetta deig notað: Smjördeigið sem að ofan get- ur. HRíSGRJÓN OG RIFSBER 2 bollar laussoðin köld hrisgrjón 3—400 gr. rifsber, sykur 1 tsk. vanillusykur 1/4 ltr. þeyttur rjómi Stráið sykri yfir rifsberin eftir smekk og hrærið i svo að sykur- inn bráðni. Blandið soðnum hrisgrjónunum saman við og bragðað til með vanillusykri. Breiðið þeyttan rjóma ofan á og stráið nokkrum rifsberjum ofan á. eldhús vikunnar UMSJÓN: DRÖFN H. FARESTVEIT HÚSMÆÐRAKENNARI

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.