Vikan

Issue

Vikan - 13.09.1973, Page 29

Vikan - 13.09.1973, Page 29
stundum að taka lagið, en ég þagði alltaf. Eg man lika eftir þvi að fólk sagði oft: „Það er leiðin- legt með hann Sigga litla, að hann -skuli ekki geta sungið”. Þetta grófst inn i mig og ég leið mikið fyrir þetta. En Erling bróðir minn sagði oft, að ég myndi taka við af honum. Það var eins og hann vissi, að hann yrði ekki langlifur. Svo var það fyrsta búskaparárið mitt, á gamlárskvöld 1937, að við hjónin vorum boðin i gleðskap. Þarna var ekki margt fólk sam- ankomið, en húsmóðirin spilaði mikið á orgel og hún skikkaði alla viðstadda til að syngja eitt lag. Af þessu varð hin bezta skemmtun, þvi að þetta gekk svona upp og of- an eins og von var. Ég vildi nú helzt reyna að koma mér hjá þessu, þvi að ég hafði ekki reynt að syngja frá þvi á skólaskemmt- uninni, en siðan voru liðin sjö eða átta ár. Ég lét þó tilleiöast og þeg- ar konan spurði mig, hvað ég ætl- aði að syngja, hugsaði ég með mér að þaö væri bezt að byrja þar sem maður endaði og sagðist ætla að syngja „Hátt ég kalla” eftir Sigfús Einarsson, ef hún gæti spilað það. Hún bjóst við að kom- ast fram úr þvi og ég söng lagið. Það var eins og alla setti hljóða. Það litla, sem var af brjósthýru i fólkinu, virtist fjúka út i veður og vind og einhver sagði: „Nú, hann getur þá sungið”. Ég heFd, að ég hafi orðið mest hissa sjálfur. Þeg- ar ég hafði sungið lagiö, sagði húsfreyjan við mig: „Þetta er mitt uppáhaldslag og það verð- uröu aö syngja yfir mér, þegar ég dey”. Ég hélt nú, að ekkert væri sjálfsagöara. En svo einkenni- lega atvikaðist, að þessi kona varð bráðkvödd áður en vika var liöin frá þessu gamlárskvöldi. Þá var þetta svo ferskt og minnis- stætt öllum, sem þetta höfðu heyrt, og voru margir hennar nánustu ástvinir, að það var gengið fast á mig að ég stæði við þetta Ioforð. Mér var illa við að gera þetta og treysti mér alls ekki til þess. Svo fór þó að lokum.að ég setti i mig kjark og ákvað að ganga á milli bols og höfuðs á þessu og hringdi i Sigfús Einars- son, sem þá var dómkirkjuorgan- isti. Hann var allra manna kröfu- haröastur og oft mjög harður i dómum og óvæginn. Heldur var Sigfús þurr á manninn i siman- um. Ég sagöi honum ekki til nafns mins, en tildrög þess að ég hringdi I hann. Hann sagöi, að ég gæti reynt aö koma niöur I dóm- kirkju daginn eftir klukkan þrjú. Mér leiö ekkert vel það sem eftir var dagsins og svaf litið um nótt- ina. Daginn eftir mætti ég á til- settum tima og þar var Sigfús fyrir og heldur kaldranalegur fannst mér. Hann spurði mig hvað ég ætlaöi að syngja og ég sagði honum aö það væri „Hátt ég kalla” eftir hann sjálfan. Ekkert Sigurður og Lárus Ingólfsson i reviu. ingaraf þá verandi eiganda henn- ar, sem var Valgerður Guð- mundsdóttir. Merin hafði gengið milli manna I ein tvö ár og ég held að ég hafi verið tólfti eða fjórt- ándi maðurinn, sem fékkst við hana. Ég hef sjaldan orðið fyrir meiri vonbrigðum, en þegar ég kom á bak henni I fyrsta skipti. Það var ekkert hægt aö fá út úr henni, henni var óreitt og ógerlegt að teyma hana. Hún stóð bara kyrr og þegar ég ætlaði að beita hana hörðu, lét hún sig bara detta. Ég var með hana hálfan vetur og mér gekk furðu fljótt að komast yfir þessa 'Synti I henni. Þá vildi Valgerður feyna að koma Sigurður sem Páll þræll i Tyrkja- -Gúddu. henni I keppni og ég gerði það, þó að ég væri þvi mótfallinn. A þeim kappreiðunum sigraði hún hest, sem verið hafði sigurvegari i mörg ár. Þá vildu margir kaupa Glettu en Valgerður setti á hana fjögur þúsund krónur, sem var geysimikið varð á þeim tima, þvi að þá var hægt að velja úr hestum fyrir tvö til þrjú þúsund krónur. Þess vegna varð ekki af kaupum. Ég skilaði Glettu af mér i júni og mér fannst hún aldrei verða eins góðaftur. Veturinn eftir eignaðist ég hana svo af tilviljun. Rétt fyrir jólin eða á milli jóla og nýárs, hitti ég Valgerði niðri á Hlemm- torgi, sem nú heitir en var gas- stöðin þá. Hún bað mig að selja fyrir sig gráu merina, þvi að hún væri að fara i ljósmæðraskólann og sig vantaði peninga. Það hittist þannig á, að ég var með þúsund krónur á mér og ég bauð Valgerði tvö þúsund krónur fyrir gripinn. Helminginn sagðist ég borga strax og afganginn eftir nýárið. Valgeröur gekk að þessu. Ég bætti svo verðlaununum frá þvl um vorið við, svo að ég fékk Glettu fyrir 2350 krónur. — Hvernig samdi ykkur eftir það? — Agætlega. Að visu gerði hún mér dálitla skrá»veifu á lands- móti 1954. Ég var þá nýbúirfn að taka undan henni folald og hún var i hestalátum. Það var búiö aö dæma og við áttum að riða ejnn Framhald á bls. 39 söngnum stóö, svo að ef ég hefði ekki kunnað þetta utanbókar, hefði mér ekki komið að neinu haldi að hafa blað, þvi að ég sár bara svart. Ég slampaðist i gegn- um þetta og þar með var ég byrj- aöur. Álitamál er, hvort Sigurður er frægari fyrir sönginn eða hesta- mennskuna. Hann sagðist vera með þeim ósköpum fæddur, að þegar i bernsku var hann utan i öllum kofum og skúrum, þar sem hross voru nálæg, I von um að komast á bak. Þetta varð til þess, að bræður hans neituðu að sitja við sama borð og hann á máltið- um, þvi að þeim var illa við lykt- ina, sem fylgdi hestaáhuganum. Sigurður setti það ekki fyrir sig og hefur alla tið stundað hesta. Frægust allra hrossa, sem Sig- urður hefur átt, er án efa Gletta. Hún er íslandsmeistari i skeiði, fræg kynbótahryssa og með af- brigðum kynsterk. öll afkvæmi hennar hafa fæðzt dökkleit, en með aldrinum orðið ljós eða grá eins og móðirin. Gletta var kynj- uð vestan úr Dölum og var orðin átta vetra, þegar Sigurður sá hana fyrst. — Ég sá hana skeiða undir sjálfri sér og tók hana til tamn- Sigurður I hlutverki sinu I „Sein yður þóknast”. gaf kempan út á það. Svo settist hann við hljóðfærið og byrjaði að spila og ég söng lagið, þó að hjart- slátturinn væri alveg að æra mig og ég næði varla andanum. Að laginu loknu leit Sigfús snöggt á mig og þá hugsaði ég: „Jæja, þá er það búið”. Þá spurði hann mig að nafni og ég sagði honum það. Hann vildi, að ég syngi lagið aft- ur. Ég gerði það og þá held ég að mér hafi gengið betur. Það varð svo úr, að ég söng við athöfnina. Ég sá hvorki né heyrði á meðan á 37. TBL. VIKAN 29

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.