Vikan


Vikan - 05.12.1974, Side 9

Vikan - 05.12.1974, Side 9
er okkar leiöarljós „Þú skalt vera stjarna min, drottinn, yfir dimm höf yfir djúpa dali og eyöimerkur ég geng i geisla þinum og eitt sinn mun geisli þinn veröa aö gullstiga, þar sem ég geng upp fagnandi skrefum.” I. Þannig lýkur litilli bók, sem kom út fyr- ir tveimur árum og ber heitiö „Trúarleg ljóö ungra skálda.” Þetta litla ljóö og fleiri i þessari bók bera þess vitni, aö jóla- boöskapurinn á ennþá sterk itök I hinni ungu kynslóö á Islandi. Þrátt fyrir allt, sem aflaga fer, þrátt fyrir allt myrkrið, sem ekki tekur á móti ljósinu,sem komiðer i heiminn til aö upp- lýsa hvern mann, þá eru þeir samt marg- ir, ég vil ætla fleiri, sem vilja taka undir meö skáldinu unga: „Þú .skalt vera stjarna min, drottinn.” Þú skalt lýsa mér gegnum lifið, láta bjarma þinn falla á sporin min, veginn minn, svo aö ég megi ganga I geisla þinum ævina á enda og að leiöarlokum megi ég ganga fagnandi skrefumum gullstigann, sem þú hefur lagt mér inn i eilifbina. Enn einu sinni er jólastjarnan i augsýn. Ennþá finnum viö birtu jólanna koma til okkar, inn i lif okkar og heimili. Við finn- um, aö drottinn Kristur er fæddur inn i mannheim til aö vera frumglæðir ljóssins handa vegvilltu mannkyni.sem enn er aö gæla viö myrkriö, en á sér samt þá þrá og þá von aö finna ljósiö og vaxa guöi og himninum nær. II. Ennþá heyrum viö söguna um frelsar- ann, sem fæddist af fátækri móöur og var lagöur 1 jötu, af þvi að þaö var ekki rúm fyrir hann i hibýlum manna. Sá atburöur vakti ekki neina athygli fyrst i stað, nema hjá fáum, fátækum og umkomulitlum mönnum. En samt er það almennt viöur- kennt, að þessi viöburöur, svo hljóölátur sem hann var, hafi markaö mestu tima- mótin, sem oröiöhafa i sögu mannkynsins á þessari jörö. Frá þessum viöburöi er runnin'voldugasta hreyfingin, sem komið hefur fram á jöröinni. Frá jötunni i Betle- hem barst nýtt ljós og nýr boðskapur út um heiminn, boöskapur um friö og kærleika meöal manna, boöskapur um kærleika guös og velþóknun hans yfir mönnunum, boöskapur um þaö, aö maö- urinn væri guös barn og aö llf mannsins ætti sér eiliföartakmark og gildi. Jólabarniö, Jesús Kristur, sýnir okkur mönnunum hiö fullkomna, háa og heilaga lif og þaö markmið, sem guö á sér meö manninn og vill stefna honum til. Svo að þvi marki verði náö, lætur jólastjarnan geisla sina bera birtu á veg kynslóðanna, sem koma og fara um þessa jörö. En samt hefur vegur kynslóðanna oft veriö farinn i myrkri, oft veriö ataöur bióöi, hatri og grimmd. Þeir hafa verið margir, sem ekki hafa tekið á móti ljósinu og úthýst honum, sem til eignar sinnar var kominn. En hvernig hefur þessu verið háttaö hjá islensku þjóöinni? Hefur stjarna jólanna fengiö aö bera birtu inn á veginn hennar? 1 974 ár hafa Islendingar játað trúna á Jesúm Krist og miöaö löggjöf sfna og menningu viö þær hugsjónir og lifsskoö- anir, sem hann flutti mönnunum. Kynslóö eftir kynslóö hefur stjarna jólanna skinið þessari þjóö, flutt henni birtu og yl, hjálp- aö henni til aö finna guö kærleikans, sem hefur leitt hana og varöveitt 1 sinni náö og mildi og gerir enn á þessu þjóöhátiöarári. Vissulega erum viö ennþá fjarri markinu. Viö erum breyskir og ófullkomnir menn og búum ekki frelsaranum, boöskap hans og kirkju þaö rúm i lifi okkar og menn- ingu, sem honum ber og okkur sæmir sem kristnum mönnum, svo framarlega sem viö viljum ekki láta spor okkar vera geng- in í myrkri og auön, heldur I ljósi þess drottins, sem jólin gefa okkur. En þrátt fyrir allt þá hefur boöskapur jólanna ennþá mikil áhrif á lif okkar, samfélag okkar og menningu. Þrátt fyrir allt tómlætiö og jafnvel andúö gegn kirkj- unni, þá hefur hún samt áhrif til betrunar, fegrunar og friöar i samfélagi okkar mannanna. Fyrir áhrif og boöskap jóla- barnsins, sem kirkjan miðlar okkur, hef- ur mannúö og mannskilningur náö fót- festu. Við höfum lært aö bera viröingu og lotningu fyrir gildi og helgi mannlifsins. Viö höfum lært aö vernda og likna hinum veiku og smáu og láta ekki hnefarétt og of beldi gilda i samskiptum manna. Fyrir áhrif jólabarnsins hafa tslendingar vanist þeirri hugsun, að hvert mannslif sé heilagt, að allir menn séu fæddir jafnir og eigi sama réttinn til lifsins og hamingj- unnar. Þannig hafa áhrif jólanna, boöskapur þeirra um friö, ljós og kærleika, háft mót- andi áhrif, sem hann þarf aö hafa á okkur sem kristna þjóö. Enn höfum viö ekki tek- iö á móti ljósi jólanna, nema aö nokkru leyti. Ennþá bregöur myrkri á margra spor og margra lif. Þaö er dapurlegt tim- anna tákn, aö nú á öld allsnægtanna og hagvaxtarins skuli stööugt fleiri leita sér eiturs I staö ljóss og gleöi. Þaö er stööugt aö veröa áþreifanlegri stgöreynd, aö þrátt fyrir alla velmegun- ina hiö ytra, þrátt fyrir allt, sem hægt er aö fá keypt fýrir fallandi krónu um þessi jól, þá eykst ekki hamingja mannsins, lifsgleöi hans og lifsfylling I sama hlutfalli og fjöldi krónanna, eöa auknar tekjur og hagvöxtur. Þess skyldum viö íslendingar minnast aö liönu þjóöhátiöarár-i, aö manngildi hvers einstaklings, helgi og llf hverrar mannssálar, veröur aldrei metiö til fjár, aldrei meö réttu vegiö á vóg þeirrar krónu, sem stööugt minnkar og fellur. Maöurinn veröur veginn á vog þeirra verömæta, sem hafa eiliföargildi, mældur á mælistiku þess ljóss, sem komiö er i heiminn til þess aö reka myrkriö og ótt- ann burt úr lffi mannanna, en fylla þaö friöi og gleö'i. Þaö ljós var i heiminum allt frá upphafi lifsins, og heimurinn var orö- inn til fyrir það. III „Ljósiö skin i myrkrinu, og myrkiö hef- ur ekki tekið á móti þvi. Hann kom til eignar sinnar, og hans eigin menn tóku ekki viö honum. En öllum þeim, sem tókií viö honum, gaf hann rétt til aö veröa guös börn, þeim, sení trúa á nafn hans.” Svo segir I guö’sþjállihu, sem er yfirskrift þessarar hugleiöingar. Ég er viss um þaö, lesandi góöur, aö þú vilt ekki tilheyra þvi myrkri, sem ekki tekur á móti ljósinu. Þú vilt ganga i geisla drottins. Þú vilt taka á móti þvi sanna og eilifa ljósi, sem komiö er i heiminn til þess aö upplýsa þig og helga og hjápa þér til aö veröa betri og sannari maöur. A þessum jólum fæöist drottinn Jesús Kristur á ný inn i líf okkar. Hann kemur til aö gefa okkur ljósiö og hamingjuna, gleöina og friöinn. En hann kaliar okkur til að vera guös börn, kallar okkur til aö vera samverkamenn sinir i þágu hins góöa og bjarta I lifi mannanna. Jólabarn- iö, frelsarinn, sem „varö hold á jöröu og býr með oss”, kallar okkur, kristiö fólk, kristna þjóö, til aö bera jóLaljósiö, jóla- fögnuöinn, jólahamingjuna, i lifi okkar og breytni, á heimilum okkar, i fjölskyldulifi og I mannlegum samskiptum yfirleitt. Viö erum kölluð til aö eyöa eitri og myrkri úr mannlifinu, en fylla þaö friöi og gleöi. Viö getum lagt liösinni okkar til aö bera boöskap og fögnuö jólanna inn i menningu og mannlif okkar blessuöu is- lensku þjóöar. Þess vegna skulu spor okkar á komandi tiö vera gengin i skini ljóssins, sem komiö er I heiminn, skini þess drottins, sem er okkur leiöarljós og lifsins stjarna. Aö lokum mun geislinn hans veröa aö gull- stiga, þar sem viö megum ganga upp „fagnandi skrefum.” Gleöileg jól. 49. TBL. VIKAN 9

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.