Vikan - 05.12.1974, Qupperneq 27
— Slepptu mér!
— Ég er gömul kona...
— Hvað ertu gömul?
— Attatíu ára? kallaði hún.
— Attatiu... endurtók ég, og það
fór hrollur um mig — áttatiu á ný-
ársnótt?
— Já...
— Klukkan... klukkan tólf?
— Já, já, sagði hún og kinkaði
áköf kolli. Þá fór klúturinn frá
andlitinu og ég sá stórnefjaðan
karlmann með penna milli tann-
anna, en ekki gamla kerlingu.
Ég hrópaði upp yfir mig af
skelfingu og sleit mig lausan. En
maðurinn náði i mig aftur og við
slógumst.
— Ég skal kenna þér! öskraði
hann ög lamdi mig i höfuðið með
krumlunum. — Ég skal kenna
þér!
En ég greip yfrum hann og brá
fyrir hann fæti. Og við duttum
báöir I skurðinn. Ég fann, hvernig
kaldur snjórinn lagðist að likama
minum. Ég barði frá mér, en
hann kaffærði mig i snjónum, svo
að mér lá við köfnun. Ég tók á
öllu, sem ég átti til, og hrópaði. I
örvæntingu:
— Þú skalt fá peningana þina,
Gvendur!
Þá hvarf hann. Og ég reis upp
neri á mér augun og þurrkaði
bleytuna framan úr mér.
- Framan við rúmið mitt stóð
lögmaðurinn með tómt vatnsglas
i hendinni.
— Hann er vist háfættur! sagði
hann. *
— Ert þetta þú? spurði ég.
— Já, þetta er ég... Hvert þó I...
þú sefur þó ekki með hnjáskjólin?
Þú ert vist áreiðanlega hrifinn af
þeim.
— Við drukkum... drukkum dá-
litið i gærkvöldi. -
— Ja, það gerðum við!... Og þú
vannst i lomber!
— Vann ég? spurði ég glaðvak-
andi. — Hvað mikið?
— Áttatiu...
— Krónur?
— Nei, nei. Aura, gamli minn.
Aura! sagði lögmaöurinn, sneri
sér við og gekk út úr svefnher-
berginu.
Ég sat uppi i rúminu minu og
hugsaði um það, hve lifið væri
erfitt. Fólk skilur mig hreint
ekki...
En stuttu seinna opnuðust
dyrnar ofurlitiö, tvö augu horfðu
glettnislega á mig, og djúpur
bassi söng:
Gamli vinur, farðu á fætur
og flýttu þér!
Peninga aö gjalda Gvendi,
gef ég þér.
Og svo kom fallegt umslag
fljúgandi og lenti næstum i andlit-
inu á mér.
Þegar ég hafði gengið úr
skugga um.hvað i umslaginu var,
minntist ég jólatrésins frá kvöld-
inu áður og raulaði fyrir munni
mér:
Góð eru jólin,
góð hnjáskjólin.
Bestur þó lögmannsdrjólinn.
★
Canon
Ef þér kaupiö Canon-
vasavéL þá er ekki
tjaldað til einnar nætur.
Sendum
í póstkröfu
Einkaumboð/
varahlutir, ábyrgð og þjónusta.
Skrifvélin
Suðurlandsbraut 12, simi 85277.
badedas
Eftir Badedas Vítaniins bað
mun yður liða sérstaklega vel.
Skinn yðar mýkist og verður ferskt,
liflegt, og blóðið rennur
eðlilega um likamann.
Umboð H
A.TuHnius heildverzlun
49. TBL. VIKAN 27