Vikan - 05.12.1974, Side 84
H.F ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON REYKJAVÍK
ekkert lík. Síðan klæddi Georges
ltk nunnunnar i búninginn og
skildi það eftir rétt hjá
klaustrinu, svo ók hann yfir það,
svo þetta liti út sem slys.
Nú hafði ég aðeins áhyggjur af
einu og það var frú Desgranges.
Ég vissi ekki hve mikið hún vissi
og ég vildi ekki hætta á það, að þú
hittir hana aftur. Ég fór til að
hitta hana, en þá komst ég að þvi,
að hún var farin til Spánar, það
frétti ég hjá nágrönnum hennar.
Og þa fékkst þú þá flugu, að finna
frú Desgranges og fórst til
Boniface, til aö vita hvort hann
gæti ekki aðstoðað þig við að
finna frú Desgranges. Ég vissi
llka hvernig hann myndi bregðast
við: hann myndi visa til min:
Gautier veit þetta allt saman og
þér hafið liklega lika talað við
móöursystur yðar, systur Marie-
Claire. Ég gat ekki hætt a það. Ég
hringdi ekki heldur til að sjá til
þess, að hann byði þér að snæða
með sér hádegisverð, ég þekkti
svo vel venjur hans. Með þvi að
segja þér, að þú værir boðinn til
hádegisverðar hjá honum, vissi
ég, að þú kæmir of seint til að ná
honum á l(fi, því að ég var búinn
að senda Georges til að sálga
honum. Þá var ég lika búinn að
segja Paul, að þú myndir fara til
gamla bæjarins, til að hitta frú
Desgranges. Um kvöldið.sendi ég
Paul og Georges til að aka á þig.
Þegar þetta misheppnaðist, þá
lagði ég á ráðin um aðra árás á
þig i höllinni, en i það skiptið, sá
ég svo um, að Helen væri ekki
viðstödd. Hann brosti. — En einu
sinni ennþá slappst þú úr greipum
okkar, David.
Siðar heyrði ég að þið Helen
hefðuð farið burt úr borginni. Mér
var ljóst, að þú haföir ekki gefið
upp vonina, að ná fundum frú
Desgranges. Ég ákvað þvi að fara
hingaö, heim til Boniface og fjar-
lægja öll sönnunargögn, ef
einhver væru. Ég var búinn að
hugsa mér að koma annarri
mynd fyrir á vegginn fyrir
morgundaginn. Það var sannar-
lega óheppni, að þú skyldir rekast
hingaö i kvöld.
David lokaði augunum andar-
tak. Það komst ekkert annað að I
heila hans, en hvernig hann gæti
varaö Helen við þessari hættu.
Hvernig átti hann aö sjá við
Gautier?
— Finnurðu til i handleggnum?
spuröi Gautier.
— Ef svo er, þá ætlar þú senni-
lega aö losa mig viö allan
sársauka. Hvernig a það að fara
fram? Eitt slysiö ennþá.
Hann heyröi fótatak fyrir
framan dyrnar. Helen myndi ekki
hirða um að fara hljóölega, hana
grunaöi ekki það sem hér fór
fram.
Gautier stóð snögglega upp til
að hafa gætur á dyrunum og hélt
byssunni samt i réttum skorðum.
— Mundu það, sagði hann, —
engar viövaranir.
Helen kom inn. Hún hélt á
tappalausri vinflösku og þrem
glösum i poka. Hún brosti
glaðlega til mannanna tveggja.
— Sæll Jaques, sagöi hún. — Er
David búinn að segja þér frá
ævintýri okkar? David, þú sagðir
<Svo hringdi ég til Pauls Derain.
Ég skipaði honum að ná í Ge-
orges, eiganda bensinstöðvarinn-
ar, vegna þess að ég vissi að þeir
höföu áöur eldaö saman grátt silf-
ur, og sagði honum að fara til
hússins. Ég sagði honum, að
nunnanhefði staðfest, að þú værir
sonur Carriers og aö ég hefði
óvart orðið til að svipta hana lifi.
Ég lét I það skina, að ég vissi
hitt og þetta um hann og að hann
ætti mikiö undir þagmælsku
minni og skipaði honum að láta
Georges hjálpa sér við að fjar-
lægja likið. Hann var búinn að sjá
þig á hótelinu og sagði mér, að þú
værir á leið til að hitta mig. Ég
flýtti m,ér af skrifstofunni, til að
forðast að hitta þig strax, en þá
komst þú mér i opna skjöldu.
Ég hélt þú hefðir gefið frá þér
að skoða húsið strax og ég bauð
Helen heim, til að dreifa huga
þinum. En svo komst þú eftir
klukkutima, með þær rosafréttir,
að þú hefðir fundið lik af konu i
húsinu.
Ég þóttist ætla að hringja til
Pinets, en hringdi raunverulega i
Paul, sem var á bensinstöðinni
hjá Georges, til að vita hvað hefði
skeð. Þeir höfðu þá séð að frú
Desgranges var I húsinu og litlu
siðar séð þig koma þangað og
álitu of hættulet, að láta sjá sig,
svo þeir óku aftur til stövarinnar.
Ég sagði þeim að flýta sér
þangað aftur og fjarlægja likiö,
meðan þú værir heima hjá mér.
Það tókst. Likið af systur Marie-
Claire og fötin hennar, sem ég
hafbi stungið undir dýnuna, var
komið heim til Georges.
Ég ætti nú eiginlega að bæta þvi
við, að Georges ætlaði sér að hafa
mikiö fé út úr Paul, þegar honum
tæmdist hinn mikli arfur. Mér
létti stórlega, þegar við fórum svo
til hússins og þú sást það sjálfur
með eigin augum, að þar var
84 VIKAN 49. TBL.