Vikan - 05.12.1974, Blaðsíða 86
nokkra manneskju, ef þú heföir
ekki otaö mér út i þetta.
— Faröu heim, Paul, og biddu
þar eftir lögreglunni, þú sleppur
hvort sem er ekki.
Hann sagöi, eiginlega virðulega:
— Helen hefur á réttu að
standa, Jaques. Við vorum asnar,
aö halda að viö kæmumst upp
meö þetta. Við verðum nú að
horfast i augu við raunveru-
leikann.
— Ætlar þú þá að viðurkenna
allt, sem þú hefur gert fyrir
lögreglunni? spurði Gautier.
— Já.
— Asni, sagði Gautier og skaut
hann.
Hann féll viö fætur Helen. Hún
gaf ekki frá sér nokkurt hljóð.
Hún hrökk aðeins svolitið við,
þegar hún heyrði skothvellinn.
David hljóp til hennar og lagði
arminn um axlir hennar.
— Ég gat ekki látið hann haga
sér þannig, sagði Gautier. —
Finnst ykkur það? Og nú hefi ég
fengið sökudólginn upp i
hendurnar. Ég kem hér inn,
þegar ég heyri skothvelli og sé að
Paul hefur skotið ykkur bæði, ég
ræðst á hann og get þrifið af
honum byssuna, til að nota hana
gegn honum sjálfum. Ég get sagt
að ég hafi verið að koma frá þvi
að borða.
Þau horfðu á hann, án þess að
segja nokkurt orð.
— Mér þykir fyrir þvi, að þetta
skyldi þurfa að enda svona, sagði
hann. — Helen min góð, skilur þú
það ekki? En þetta tekur fljótt af,
ég skal ekki tefja timann lengi.
Helen varóstöðug á fótunum. —
Jaques, mig langar svo i
sigarettu. Þú getur ekki neitað
mér um það?
— Þú ert stórkostleg, Helen,
sagði Gautier. — Að sjálfsögðu
má'ttu fá þér sigarettu. En
hreyfðu þig varlega.
Helen beygði sig eftir töskunni
Paul virti hana fyrir sér. Hann
reyndi eftir fremsta megni aö
vera rólegur. Hann var ósköp
drengjalegur, en þaö var eins og
hann væri að reyna að sýnast
mannalegur, þessar siðustu
mlnútur lifs sins.
Hann sneri sér aö Gautier.
Hrúts
merkið
21. marz —
20. aprll
Gættu þess vandlega
að láta ekki peninga
og annað veraldar-
vafstur eyðileggja
fyrir þér allt, sem þér
er kærast, ást þina og
vonir. Lifið er stutt, en
ástin löng. Mundu það,
og þá mun þér vel
farnast.
Nauts-
merkiö
21. april —
21. mai
Þú verður hrifinn —
jafnvel ástfanginn af
manneskju, sem þú
kynnist i þessari viku.
En gættu að þér og
hugsaðu svolitið fram
I timann, áður en þú
hefst nokkuð það að,
sem þú sérð kannski
eftir seinna.
22. mai —
21. júni
Nú skaltu gera miklar
breytingar á öllu lif-
erni þinu. Það er orðið
timabært fyrir þig að
skipta um vinnu. Þú
gerir ekki annað en
vinna sama verkið
upp aftur og aftur og
það heldur aftur af
þroska þinum.
22. júni —
22. júll
Nú er mikið að gera
hjá þér, og þér finnst
þú ekki sjá út úr öllum
verkgfnunum, sem
bföa þin. Ráðstu ó-
trauður gegn þeim. Ef
þú bíður lengur, hlað-
ast bara enn fleiri upp,
og þú gætir gefist upp
við allt saman, en til
þess er engin ástæða.
24. júir
24. ágúst
Mikilvægasti dagur
vikunnar er laugar-
dagur. Þá berast þér
trúlega mörg bréf,
slminn þagnar varla
allan daginn, og
á laugardagskvöldið
verður þér boðið i sér-
staklega skemmtilegt
samkvæmi.
24. ágúst —
23. sept.
Þú ert svolitið við-
kvæmur þessa dag-
ana. Þó hefur ekkert
sérstakt komið fyrir,
þetta eru bara skap-
brigöi, sem þú ræður
ekki við. Varastu að
reita aðra tjl reiði, þvi
aö þaö veldur þér ein-
göngu hugarangri eins
og nú stendur á.
86 VIKAN 49. TBL.