Vikan - 20.03.1975, Síða 11
leitaö þér upplýsinga hjá þeim.
Sama er aö segja um sönginn.
Hann veröur að læra lijá söng-
kennurum. Hvort Pétur i Pelican
hefur fest ráö sitt, veit ég ekki, en
ég get mér þcss til, aö hann sé á
þritugsaldri. Spurningunni um
tviburamerkiö treysti ég mér
ekki til að svara afdráttarlaust,
en krabbar, sporödrekar og
vatnsberar cru oft ágætir vinir
tvibura. Cr skriftinni þinni les ég,
að þú sért nostursöm við sjálfa
þig, snyrtileg og sæmilega til
fara, en þú ert svolítiö löt þess ut-
an. Þú ert fimmtán ára.
Húsmæðraskóli.
Kæri Póstur!
Viö þökkum þér allt gamalt og
gott og vonum, að þú svarir þess-
um spurningum fyrir okkur.
1. Hvaö þarf að vera gömul til
að komast i húsmæðraskólann á
Laugarvatni?
2. Hvað tekur námið langan
tima?
3. Þarf að sækja um með viss-
um fyrirvara?
4. Er hægt að stunda námið á
sumrin, eða er þetta eingöngu
vetrarnám?
5. Hvað helduröu, að það kosti?
6. Hvað heldurðu, að við séum
gamlar, og hvað lestu úr skrift-
inni?
Vonumst eftir birtingu, Póstur
góöur.
Stina og Imba.
Áldurstakmark til inngöngu i
húsmæöraskóla er yfirleitt sextán
til sautján ára, en undantekning-
ar munu vera geröar á þeirri
reglu. liúsmæöraskólinn á Laug-
arvatni mun vera einn fárra hús-
mæöraskóla á landinu, sem nýtur
góörar aðsóknar, og þvi er rétt aö
sækja um skólavist þar meö
nokkrum fyrirvara. Nám þar er
eingöngu stundað á veturna, en
ekki þori ég aö geta mér til um
hvaö skólavistin kostar. Allar
nánari upplýsingar getiö þiö á-
reiöanlega fengiö hjá Jensinu
Halldórsdóttur forstööukonu
skólans I slma 99-6110. Þiö eruð á
fimmtánda ári, og úr skriftinni
má lesa nokkurn dugnað.
Astir og hjúkrun.
Kæri Póstur!
Ég hef aldrei skrifað þér áður.
Ég vona, að þetta lendi ekki I
ruslakörfunni.
Það eru tveir strákar hrifnir af
mér, en ég er með öðrum þeirra
og hann með mér, en ég held ég
elski hann ekki lengur. Ég held ég
elskihinn strákinn meira. Annars
er ég ekki viss.
1. Hvaö get ég gert I þessu?
2. Hvar er besti hjúkrunarskól-
inn?
3. Hvernig get ég stytt hjúkrun-
arnámið?
4. Ef ég fell, fæ ég ekki að taka
prófið aftur?
5. Hvað miklu þarf maður að ná
til þess aö ná hjúkrunarprófi?
6. Hvernig eiga vatnsberinn og
vogin saman? Hvað heldurðu að
ég sé gömuí? Hvað lestu úr skrift-
inni? Ég vona, að þú getir svarað
þessu fyrir mig.
Tina.
Pósturinn er ekki viss um,
hvorn strákinn þú elskar meira.
Sennilega elskaröu hvorugan, og
þú ættir einna helst að gefa þá
báöa upp á bátinn, enda ertu allt
of ung til þess aö vera aö gefa þig
aö strákum. Þú getur ekki stytt
hjúkrunarnámið. Þaö gerir eng-
inn nema háttvirt alþingi. Sem
stendur starfa tveir hjúkrunar-
skólar hérlendis, og geri ég ráö
fyrir, að báðir séu þetta ágætir
skólar og engin ástæöa til þess aö
gera upp á milli þeirra. Aöur en
þú sækir um inngöngu, skaltu
læra aö skrifa almennilega.
Vatnsberi og vog eiga aldeilis
prýöilega saman. Þú ert ellefu
eöa tólf ára.
Led Zeppelin og lagio
Elsku Póstur (og háttvirta rusla-
fata)!
Ég vil byrja á þvi að þakka Vik-
unni fyrir sæmilegt efni. Það,
sem mér liggur á hjarta, er það,
að mig langar að vita, hvaöa
hljómsveit spilar lagiö Dayar-
maker, þvi ég hef veðjað 5 þúsund
krónum upp á, að það sé Led
Zeppelin. Ég vona, að þú getir
leyst úr þessu fyrir mig. Og svo i
lokin: Hvernig fara saman naut
(stelpa) og bogmaður (strákur)?
Hvað lestu úr skriftinni?
Virðingarfyllst,
1 + 1 froskur = 2
Það er ekki eins og þú sért á
nástrái aö veöja bara fimmþús-
undkalli um jafn ómerkilegan
hlut. Háttvirt ruslakarfan heföi
eiginlega átt aö fá þetta bréf
ómatreitt. En þaö vill nú svo til,
aö ég veit þú hefur á réttu aö
standa, þetta lag er á plötu meö
Led Zeppelin, sem heitir Houses
of the Holy. Ég vona, aö þú farir
samt ekki aö krefjast fimmþús-
undkallsins, þaö er hægt aö vinna
sér inn slikan pening á heiöar-
legri hátt. Naut og bogmaöur eiga
ekkert afskapiega vel saman.
Skriftin bendir til þess, aö þú haf-
ir létt og gott skaplyndi.
jíí, simTai vio btgrunu og nun senc
Ijósmyndir af þeim húsgögnum sem
itar ásamt sýnishornum áklaeða a
ýsingum um verð og gæði, £
18900 Laugavegi 26
51030 Reykjavík
K í 1 -
!C3» 1 ' * ^
<J * —
12. TBL. VIKAN 11