Vikan - 19.06.1975, Blaðsíða 3
r
i
KYNIANNA
)IN
Rætt við Halldóru Eldjám forsetafrú.
Fyrrum sátu danskir amtmerin
og fógetar á Bessastöðum á Alfta-
nesi, og fyrir um það bil tveimur
öldum var reistur þar á staðnum
myndarlegur bústaður handa
þcim dönsku embættismönnum,
scm fóru með stjórn á islandi I
umboði danakonungs. Hús þetta,
sem er sleinhús, á sér nierkilega
sögu. éar var Bessastaðaskóli til
húsa og seinna bjuggu þar Bessa-
staðabændur, og síðan islenska
lýðvcldið var stofnað hefur það
verið bústaður forseta islands, en
Sigurður Jónasson gaf islenska
rikinu jörð og hús á Bessastöðum
fyrir forsetabústað. Þá teiknaði
Gunnlaugur Halldórsson arkitekt
móttökusal og blómaskála, sem
bætt var við húsið, og hann haföi
jafnframt umsjón með þeim
breytingum og lagfæringum, sem
gerðar voru á eldri húshlutanum.
í tiö Asgeirs Asgeirssonar var
enn bætt við bústaðinn, þegar
byggð var bókhlaða, sem Gunn-
laugur teiknaði einnig. Þar er nú
varðveitt bókasafn, sem forscta-
cmbættinu var gefið fyrir
nokkrum árum, en mestur hluti
þess er úr bókasafni Boga
ólafssonar. llúsgögn i forseta-
bústaðnum voru flest keypt I
Englandi undir lok siðari heims-
styrjaldarinnar, og málverkin,
scm prýða bústaðinn eru flest I
eigu Listasafns islands.
Eins og flestir vita hafa þrir
forsetar setið á Bessastöðum,
þeir Svcinn Björnsson, sem var
fyrsti forseti lýðveldisins, Asgeir
Asgeirsson, sem kjörinn var
forseti árið 1952, og Kristján Eld-
járn, sem kjörinn var forseti árið
1968 og tók viö embætti sama ár.
Kristján nam fornleifafræði við
Kaupmannahafnarháskóla árin
1936 — 1939, og siðar stundaöi
hann nám I heimspekideild
Iláskóla tslands, þaðan sem hann
lauk meistaraprófi i islenskum
fræðum sama ár og lýðveldið var
stofnað. Ari siðar gerðist Kristján
safnvörður á Þjóðminjasafninu,
og árið 1947 tók hann við embætti
þjóðm injavarðar, sem hann
gegndi þar til hann tók við em-
bætti forseta tslands. Kona
Kristjáns og forsetafrú er Hall-
dóra Eldjárn, en þau hjónin
giftust áriö 1947. Þau eiga fjögur
börn, en af þeim eru ekki nema
yngri sonurinn, Ingólfur Arni,
lengur heimilisföst hjá foreldrum
sinum.
Fyrir nokkru heimsóttum við
t blómaskálanum sáum við þennan myndarlega fálka.
25. TBL. VIKAN 3