Vikan - 21.08.1975, Side 18
Á Vesturgötu 36A búa hjónin
Sigrún Ragnarsdóttir og GIsli
Amason, deildarstjóri I forsætis-
ráðuneytinu, ásamt tveimur
börnum þeirra. Nú eru 15 ár liöin
frá því að Sigrún var kjörin feg-
urðardrottning tslands, þá aðeins
17 ára gömul. Við hittum hana að
máli og báðum hana að segja
okkur örlltið frá þátttöku sinni I
keppninni.
— Nú oröið lít ég á þátttöku
mlna I keppninni seni nokkurs
konar bernskubrek. En í þá daga
voru viðhorfin gagnvart þessu
önnur en nú. Mér bauðst ljómandi
tækifæri til ferðalaga og ævin-
týra, sem þá voru ekki á hverju
strái. Það var ekkert, sem mælti
á móti þvl, að ég tæki þátt i
keppninni, og ég vissi, að þarna
var um einstakt tækifæri að ræöa.
— Ég vann við afgreiöslustörf I
versluninni Regnboganum i
Bankastræti um þaö leyti sem
keppnin fór fram hér heima, en
hætti þar, þegar ég fór til Banda-
rlkjanna i alheimskeppnina.
Haustið áður varð ég 18 ára og
nógu gömul til að taka þátt i
Evrópukeppninni I Libanon, þar
sem ég dvaldist I 10 daga. Ég
hafði aldrei komið út fyrir land-
steinana áöur og varð yfir mig
hrifin, enda tilganginum með
þátttökunni náð. Ég kynntist
mörgum stúlkum i ferðinni og sá
margt nýtt og framandi. Til
dæmis hafði ég aldrei séð sjón-
varp áður.
— Eftiraðég komheim.hélt ég
áfram að vinna I Regnboganum,
þangað til ég hélt til Bandarikj-
anna, þar sem ég ætlaði að dvelj-
ast I 1 mánuð, en kom ekki heim
fyrr en eftir 10 mánuði.
— Keppnin á Langasandi var i
senn erfið og spennandi. Við
þurftum að fylgja ákveðinni dag-
skrá frá morgni til kvölds, og
m.a. þurfti ég að flytja ræðu á
ensku um sögu tslands. En ég
hafði mjög gaman af þessu, enda
þótti meiri upphefð í þvi fólgin að
taka þátt i keppninni ytra en hér
heima.
— Eftir að ég hafði náð sæmi-
legum árangri, þ.e. orðið i
fimmta sæti, var ekki lengur um
það að ræða að halda beint heim,
þvi að mér var boðið að taka þátt i
tiskusýningarferðalagi til Aust-
urlanda, sem ég og þáði. Það var
Mr. Charlie, sem þarna var
staddur á vegum International
keppninnar frá Tokyo,.sem valdi
6 stúlkur til þessa af þeim 62, sem
þátt tóku i keppninni. Við áttum
heilmikið ferðalag fyrir höndum,
og m.a. héldum við sýningar á
Filippseyjum, i Kina og Tokyo.
Ég hafði ágætan förunaut, frú
Olive Swanson, sem er vesturis-
lensk, og fyrir vikið var ferðin
skemmtilegri. Góður andi var i
hópnum, og allt gekk átakalaust
fyrir sig, og ég iðraðist þess
aldrei að hafa tekið þátt i þessu.
Ferðirnar voru greiddar fyrir
okkur, en auk þess fengum við
eitthvað smávegis greitt fyrir
sýningarnar. En peningarnir
skiptu ekki megin máli, heldur
ánægjan og það að fá tækifæri til
að skoða sig um i heiminum og
auka víðsýiyna. A heimleiðinni
kom ég við á Hawaieyjum, þar
sem ég átti dýrlega daga.
— Þrátt fyrir freistandi tilboð,
hvarflaði það aldrei að mér að
setjast að úti, hugurinn stefndi
alltaf heim. Ég á ánægjulegar
minningar um ævintýralegt ár,
sem aldrei hafa haft neikvæð
áhrif á mig.
Arið 1960 var Sigrún Ragnars-
dóttir kjörin Ungfrú tsland. A
þessari mynd sjást stúlkurnar
fimm, sem þá komust I úrslit.
Þær erú, talið frá vinstri: Guö-
laug Gunnarsdóttir, Sigrún
Ragnarsdóttir, Svanhildur
Jakobsdóttir, Inga Árnadóttir og
Sigrún Sigurðardóttir.
18 VIKAN 34. TBL.