Vikan - 29.01.1976, Side 25
1
Láttu hann svara þessari spurningu.
Elskar hann þig, vegna þess aö
þú...
á) ert full kynþokka?
b) býrð til gððan mat?
c) ert skemmtilegur félagi?
d) sýnir hluttekningu?
2
Hringir hann eða heimsækir þig...
a) á hverjum degi?
b) tvisvarádag?
c) vtð og við, en ekki reglulega?
d) eða verður þú að hringja til hans?
3
Leiftra augu hans skærast...
a) alltaf, þegar hann sér þig, sama
t hverju þú ert?
b) þegar þú ert sérlega vel til höfð?
c) þegar hann hefur fullan disk af
góðum mat fyrir framan sig?
d) alltaf, þegar hann sér aðlaðandi
stúlku?
4
í samkvæmum...
a) er hann stöðugt meðþér?
b) blandar geði við alla gestina, en
kemur alltaf tilþtn aftur?
c) daðrar hann við allar stúlkumar
í samkvceminu?
d) etur hann og drekkur allt kvöldið?
5
Ef hann kæmi aö þér að kyssa
einhvern annan í veislu, myndi hann
a) efna til illinda?
b) krefjast þess að þú kœmtr heim
með sérstrax?
c) finnast það gaman?
d) standa hjartanlega á sama?
6
Ef þú kæmir aö honum að kyssa
einhverja aðra, myndi hann...
a) hiœja og eyða þvt?
b) roðna af skömm?
c) reyna að Ijúga sig út úr því?
d) eða, hefur hann engan áhuga
á öðrum stúlkum ?
7
Þegar þiö eruð tvö ein, er hann...
a) svo ofsafenginn, að þú átt fullt
t fangi með að verjast honum?
b) mjög ágengur, en þú fœrð það
ekki á tilfinninguna, að hann muni
taka þig með valdi?
c) ástúðlegur, ekki ástríðufullur?
d) svolítið t svalara lagi?
8
Þegar þið eruð ein, talar hann
einkum um...
a) sjálfan sig ?
b) þig?
c) kynitp
d) hjónaband?
9
Ef hann byði þér heim, væri ástæð-
an sú...
a) að hann langaði til að þú hittir
foreldra sína?
b) að hann langaði til að hrósa elda-
mennsku móður sinnar?
RÓMEÓ
easANóun?
Er maðurinn í lífi þínu nútíma Rómeó, sem elskar enga
nema þig? Eða er hann Casanóva nútímans, sem
leikur sér að þér? Nú á dögum getur það verið harla
erfitt fyrir stúlku að meta, hvort manni, sem sækist
eftir ástum hennar, er alvara, eða hvort hann er aðeins
að skemmta sér. Þetta próf á að hjálpa ykkur að
komast að því, stúlkur mínar. Svarið spurningunum
og sjáið, hvort þeir elska ykkur í rauninni, eða hvort
þeir eru þara að bæta einni enn í safnið.
c) að hann hefði ekki efni á þvt að
bjóða þér út?
d) að hann vissi, að foreldrar stnir
kœmu ekki heim fyrr en seint?
10
Ef hann kæmi óvænt í heimsókn og
þú værir í verstu druslunum þín-
um, ómáluð o.s.frv., myndi hann...
a) glotta áncegjulega?
b) roðna af undrun?
c) leggja á flótta?
d) ekki taka eftir því?
11
Ef þið væruð á baðströnd og rétt
hjá ykkur lægi „topplaus" stúlka í
sólbaði, myndi hann...
á) ekki taka eftir henni?
b) veita henni athyg/i, en látast
ekki gera það?
c) tala um hana það sem eftir vceri
dagsins?
d) ganga til hennar og spjalla við
hana?
12
Ef hann kemur seint á stefnumót...
á) brosir hann afsakandi?
b) biðst mikillega afsökunar?
c) segir, að þú megir þakka fyrir, að
hann skyldi yfirleitt koma?
d) tceki hann ekki eftir því, að hann
vceri seinn?
13
Ef hann kæmi alls ekki, væri það
líklegast af því...
á) að hann hefði lenl t slysi?
b) að hann hefði orðið að vinna
yfirvinnu?
c) að hann hefði farið út með
annarri?
d) að hann hefði gleymt stefnumót-
14
Og ef þú kæmir of seint, yrði hann..
a) áhyggjufullur?
b) fullur grunsemda?
c) eins og ekkert hefði gerst?
d) farinn?
15
Ef hann hringdi til að bjóða þér út
og þú værir lasin, myndi hann...
a) krefjast þess, að þú hringdir til
lceknis?
b) koma til að stytta þér stundir?
c) óttast, að þú hefðir smitað sig?
d) segja þér að hringja, þegar þér
vceri batnað, og leggja svo á?
16
Þegar þið eruð saman....
á) kemur hann kceru/eysis/ega fram
við þig?
b) sýnir þér fulla kurteisi?
c) sýnir hann þér óskipta athygli?
d) cetlast hann til þess, að þú
sýnir honum óskipta athygli?
17
Vill hann, að þú klæðist...
á) eggjandi?
b) fallega án þess að vera eggjandi?
c) af handahófi?
d) etns lítið áberandi og hcegt er?
18
Þegar aðrir menn daðra við þig, eða
dást að þér,...
a) verður hann fokreiður?
b) verður hann fúll?
c) verður hann áncegður?
d) tekur hann ekki eftir því?
19
Hvað tvennt af eftirfarandi kann
hann best við í fari þínu?
á) augun?
b) fceturna?
c) hárið?
d) kímnigáfuna?
é) brjóstin?
f) hvaðþú ert heimilisleg?
g) skapgceðin?
h) til/itssemina við hann?
20
Ef hann færði þér gjöf, væri hún
líklega...
a) súkkulaðipakki?
b) eitthvað smávegis fatakyns - t.d.
hanskar?
c) eitthvað viðkvcemnislegt - t.d.
blóm eða ilmvatn?
d) eitthvað ncergöngult - t.d. stuttan
náttkjól?
NIÐURSTÖÐUR
52 stig eða fcerri. Hann er áreið-
anlega Casanóva, sem skiptir eins oft
um kærustu og skyrtu. Hann daðrar
við allar laglegar stúlkur, sem á vegi
hans verða, og því kynþokkafyllri,
sem þær eru, þcim mun eftirsóknar-
vcrðari eru þær frá hans bæjardyrum
séð. Hann elskar þig ekki I raun-
inni og er áreiðanlega ekki tilbúinn
til að stofna heimili. f hans augum
ert þú ekki annað en leikfang handa
honum, þegar hann er I skapi til
þess að hafa gaman af þér, en hann
fleygir frá sér, þcgar honum býðst
annað bctra.
53 - 84 stig. Hann er í rauninni
ekki Casanóva, en hann er heldur
ckki tilbúinn til að stofna heimili.
Það gæti þó komið með tímanum.
Sem stendur elskar hann þig fremur
vegna þess hvcrnig þú lítur út og
hvernig þú klæðist en fyrir það,
hvernig þú raunvcrulega ert. En
hann gæti fengið raunvcrulega ást
á þér, þcgar fram líða stundir.
Gcfðu honum tíma, en láttu þig
ekki dreyma of rómantíska drauma
um hann strax.
85 - 116 stig. Hann er Rómeó —
elskar þig innilega og ákaflega og
án þcss að geta nokkuð við því
gert. Hann clskar þig fyrir það, sem
þú ert, en ckki aðcins vegna útlits-
ins. Hann langar ekki bara til að
sofa hjá þér. Hann þráir að vera
með þér allt lífið og þola með þér
súrt og sætt. Hann myndi hætta
lífi sínu fyrir þig. Þú ættir að halda
þig að honum.
117 stig og þaðan af fleiri. hann
er áreiðanlega ekki Casanóva, en því
miður er hann ekki heldur Rómeó.
Kannski finnst þér hann elska þig,
og kannski heldur hann, að hann
elski þig, en í rauninni elskar hann
engan nema sjálfan sig. Hann hefur
líklega hjónaband í huga, en hann
mun ekki líta á þig sem jafningja
sinn. Hann vantar cinhvcrn til að
bíða sín, stjana við sig...aðra móður!
Gerðu það upp við þig, hvort það
er það, sem þú vilt. Ef svo cr
ekki, ættirðu að láta hann sigla
sinn sjó.
Stigataflan er á bls. 31.
TTrwwrrr