Vikan - 29.01.1976, Page 42
ÞEIR SÁU FLÍSINA í
AUGA NÁUNGANS,
EKKI BJÁLKANN í
AUGA SJÁLFS SÍN!
Hebbi leggur spilin á borðið fyrir Babbl....
„Þeir sáu flísina í auga náung-
ans, ekki bjálkann í auga sjálfs sín,
þetta held ég sé nærtækasta
svarið við þessari spurningu
þinni."
Þannig svaraði Herbert Guð-
mundsson, þegar Babbl spurði
hann hvers vegna slitnað hefði upp
úr samstarfi hans og þeirra fjór-
menninga í Pelican.
Herbert Guðmundsson er
mættur heima hjá Babbli til við-
tals. Það er annar í jólum, og
Babbl ber þess glögg merki. Og
auðvitað bjóðum við kappanum
upp á veitingar. Te og piparkökur?
Nei, ekki er það svo gott. Bara
kaffi og smáklípa af brauðtertu og
rjómaköku. En áfram með við-
talið:
BYRJAÐI 1969.
Ég byrjaði í bransanum ein-
hverntíma á árinu '69, man ekki
nákvæmlega hvenær. Það eru því
7 ár síðan ég byrjaði. 7 er heilög
tala. Ef maður skoðar nöfnin á
þeim hljómsveitum, sem einhverj-
um frama hafa náö, þá kemur í
Ijós, að flestallar hafa heitiö
nöfnum, sem hafa 7 stafi. Þess
vegna lagði ég allt kapp á að finna
gott 7 stafa nafn á nýju grúppuna
mína, og til varð nafnið DÍNAMÍT.
GLAUMBÆJAR-
TÍMABILIÐ.
,,Ef ég á að draga eitthvert
ákveðið tímabil út úr mínum ferli,
þá er það tvímælalaust glaum-
bæjartímabilið. Það er langeftir-
minnilegast. Þá var ég með hljóm-
sveitinni Tilveru. Maður var ung-
ur, og við áttum marga góða að-
dáendur, og allt gekk okkur í
haginn. Annars held ég, að ég hafi
hlotið mesta reynslu af veru minni
í Pelican. Þetta var tími mikilla
átaka og gagnrýni. Einhvern veg-
inn var það svo, að við áttum
sífellt í vök að verjast. Samt sem
áður var líka mikið að gerast, og
við unnum mikið, þó ekki hafi allt
um það komið fram í pressunni."
PLOTTIÐ.
„Auðvitað var plottað, áður en
ég fór yfir í Pelican. Er ekki alltaf
plottað, þegar menn skipta svona
um pláss? Annars er svolítið
merkilegt á bak við þetta. Mig
nefnilega dreymdi fyrir þessu. Það
var tveim dögum áður en Ómar
Óskarsson kom og talaði við mig.
Ég var á báðum áttum. Var búinn
að drífa upp skemmtilega hljóm-
sveit, sem átti framtíðina fyrir sér,
það er að segja Eikina, og óneitan-
lega var ekki allt á hreinu með
Pelican og framtíðina þar, það
gerði ég mér alveg Ijóst, því ég
vissi eins og margir aðrir, hverjum
vinsældum Péturátti að fagna. Ég
var lengi vel að hugsa um að leita
til konu sem ég var hjá í sveit,
þegar ég var yngri, og fá hana til
að spá fyrir mér. Hún er nefnilega
skyggn. Hún hefureinu sinni spáð
fyrir mér og konunni minni, og
það stóð allt heima, sem hún
sagði. Ómar kom til mín viku áður
en Pétur var formlega rekinn.
Annars var þetta búið að liggja í
loftinu nokkurn tíma. Lengi vel
stóð til, að ég færi með til Banda-
ríkjanna þegar Litla flugan var
tekin upp. Meiningin var að, taka
upp 2 laga plötu með lögum eftir
mig, þarsem Ómar, Ásgeir, Jonni
og Bjöggi ætluðu aö spila undir.
Hugmyndin bak við þessa plötu
var sú að ná upp þessum gamla
móral, sem var í Ástarkveðju. En
þetta lognaðist einhvern veginn út
af í fæðingunni."
HNIGNUN.
„Já, það er alveg rétt, það
gekk allt á afturfótunum í Pelican,
eftir að Pétur hætti. Ég er kannski
ekki rétti maðurinn til aö segja
hvers vegna. En varðandi ástæð-
una fyrir því, að upp úr slitnaði
milli mín og þeirra, vil ég segja
þetta: Þeir sáu flísina í auga
náungans, en ekki bjálkann í auga
sjálfs sín. Annars er svo margt,
sem spilar þarna inn í. Til dæmis
fannst mér ekki nógu vel haldið á
spilunum, hvað hljómsveitina
snerti."
42 VIKAN 5.TBL.