Vikan - 29.01.1976, Qupperneq 48
DREYMT í TVÍGANG.
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig að ráða fram úr draumi, sem
mig hefur dreymt tvisvar í röð. Draumurinn er á þessa
leið:
Mér fannst ég vera ófrísk eftir strák, sem ég er búin að
vera með á föstu nokkuð lengi. Þegar ég sagði honum,
hvernig komið var, vildi hann ólmur trúlofast mér. Ég
sagði, að það væri allt í lagi, en fyrst þyrftum við að
segja foreldrum frá þessu, en í því vaknaði ég.
Með fyrirfram þökk fyrir ráðningu. H K Ó
Þessi draumur er eintóm óskhyggja.
í BLEIKUM KJÓL í KIRKJU.
Kæri draumráðandi!
Mig langar til að biója þig að ráða fyrir mig draum, sem
mig dreymdi fyrir nokkru.
Hann var á þá leið, að mig dreymdi ég væri að ganga
inri kirkjugólf. Ég var klædd síðum kjól, bleikum á litinn.
Kirkjan var öll skreytt litlum bleikum blómum.
Mömmu rriína dreymdi draum fyrir stuttu. Hana
dreymdi mig í síðum, bleikum kjól með rósum, og fannst
fienni ég vera orðin miklu stærri en ég er.
Ég vona, að þú ráðir þessa drauma fyrir mig.
Kær kveðja. Jóhanna.
Þessi draumur er fyrir einhverjum veikindum, sennilega
þrálátum sjúkdómi, en ekki mjög alvarlegum.
GIFTING.
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi, að ég væri að fara að gifta mig. Ég var í
mjög fallegum hvítum kjól. Ég stóð utan við kirkju. Pabbi
kom til mín og sagði við mig, að ég ætti að gifta mfg í
þessari kirkju, annars væri það aldrei gert, heldur væri
aðeins skírt þar. Ég beið þarna um stund, en svo komu til
mín maður og kona, og með þeim var stelpa. Konan segir
við mig, að blómvöndurinn sé í bílnum þeirra. Þá segist
ég ekki vita, hvaða bíl þau eigi. Ég þekkti ekki þetta fólk.
Eftir stutta stund kom konan aftur með þennan líka
fallega blómvönd með löngum borða. Þvi næst var öllum
boðið vín.
Rétt á eftir komu tvær stelpur í brúðarskarti og tveir
strákar með þeim. Þau komu dansandi og í miðjunni var
strákurinn, sem ég á að giftast. Þegar hann kemur til mín,
finnst mér hann alveg ofsalega Ijótur. Ég þekki hann ekki
í raunveruleikanum.
Þegar ég ætlaði svo að taka blómvöndinn upp, voru
borðarnir krumpaðir og voru orðnir svartir og hvítir á
litinn.
Draumurinn varð ekki lengri.
Með fyrirfram þakklæti fyrir ráðnmguna.
(Ég er hvorki gift né með strák.)
G.M.
Þessi draumur er fyrir léttúð og miklum skemmtunum.
Þú skalt fara varlega í að skemmta þér á næstunni og
gættu þín alveg sérstaklega á því að drekka ekki of mikið.
TVEGGJA ÁRA DRAUMUR.
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig að ráða draum, sem frænku
mína dreymdi fyrir tveimur árum. Hún sendi drauminn til
ráðningar þá en fékk ekki svar, en þar sem ég hugsa svo
oft um þennan draum, mátti ég til að senda hann á ný í
von um, að ráðning birtist í þetta skipti. Ég bið þig að
sleppa öllum nöfnum úr draumnum og eins því, sem er
innan sviga.
Og þá er best að snúa sér að draumnum:
..., sonur minn og... og... voru í heimsókn hjá mér.
Þau sátu í sófanum, en þar var bunki af bleyjubuxum,
sem mér fannst ...hafa sniðið, en þurfti að láta sauma, og
ég var að mælast til þess að ...sáumaði þetta. ...var
klæddur stuttbuxum. Þær voru lillabláar með fjórum'
gylltum tölum. Öllum fannst buxurnar reglulega fallegar,
og mér líka, nema hvað mér fannst þær heldur stuttar
upp.
Allt í einu vorum við öll komin út á götu. ...við spurðum
...hvar hún væri, en hann svarar því til, að hann viti
ekkert um það. Þá göngum við niðureftir og ...kemur á
eftir okkur. Við sjáum Ijós í svefnherberginu, sem okkur
fannst vera lampaljós. Þetta sögðum við... Þá fór hann
inn í húsið...
Ég vona, að þú ráðir þennan draum.
Ennfremur langar mig að spyrja fyrir hverju það sé að
dreyma mann með ákaflega svera handleggi og hendur.
Draumurinn var eiginlega ekkert annað en þessi maður,
sem kom og sýndi mér handleggi og hendur, sem mér
fundust vera óskaplega sverar. Þessi maður er grannur í
raunveruleikanum.
Með kærri kveðju. *^.K.
Eins og þú hefur rekið þig á, hefur draumráðninga-
þátturinn ekki nærri nógu mikið rúm í Vikunni til þess
unnt sé að svara öllum bréfum, sem berast. Sumir hafa
bent á þá lausn að birta aðeins svör við draumunum, en
þannig missti þátturinn allt gildi sitt, nema fyrir þá fáu,
sem fengju drauma sína ráðna. Hinir hafa þó altént
ánægjuna og vonandi nokkurn fróðleik af því að fylgjast
með ráðningum draumanna, eins þótt þeir sendi aldrei
drauma til ráðningar.
Þar sem þið vinkona þín hafið beðið svona lengi eftir
svari, ætlar draumráðandi að nota tækifærið og láta þess
getið, að hann velur á engan hátt úr draumunum, svo það
er nánast alger tilviljun, hvaða draumar éru birtir og
hverjir ekki. Það er því ágætt fyrir þá, sem ekki fá drauma
sína birta í fyrstu atrennu, að skrifa aftur og vita, hvort
ekki tekst betur til næst.
Það er um drauminn að segja K.K., að hann er ekki fyrir
því, að þetta unga fólk taki saman aftur — að minnsta
kosti ekki í bráð. Hitt er annað mál, að svo virðist sem góð
vinátta takist með þeim á ný — hvort úr henni verður
eitthvað meira með tímanum, þorir draumráðandi ekki að
segja um.
Maðurinn með sveru handleggina verður áreiðanlega
heppinn í peningamálum á næstunni.
18 VIKAN 5. TBL.