Vikan - 04.11.1976, Page 6
okkur inn á milli trjánna og blóm-
anna. — Hér er ekki erfitt að hafa
fallegan garð, sagði Doddý, og
nógu heitt til þess að rækta tómata
og agúrkur til búbótar. Annars
getur orðið ansi hvasst héma á
sumrin, og í sumar kom hífandi rok
á meðan við vorum heima á Islandi
i fríi. Við komumst að raun um það,
þegar við komum til baka og sáum,
að eitt stærsta tréð í garðinum
hafði fallið. Ekki löngu eftir að við
fluttum hingað var tilkynnt um
hvirfilvinda á þessu svæði, svo að
við biðum öll niðri í kjallara þar til
hættan var liðin hjá dauðskelkuð,
auðvitað. En ekkert alvarlegt gerð-
ist, sem betur fer, því að aðqins
var um smárok að ræða. Hvirfil-
vindar eru algengir á þessu svæði
vegna þess að hér eru allsstaðar
sléttur og engin fjöll til að draga úr
veðravindum.
Við fómm í tveggja vikna útilegu
i sumar og heimsóttum m.a. íslend-
ingabyggðir i Wisconsinfylki, þar
sem enn em íslensk örnefni. Það var
reglulega gaman, og okkur þótti
margt nýstárlegt bera fyrir augun
í ferðinni.
— Er ekki dýrt að lifa hér?
— Nokkuð dýrt, en vöruúrvalið
og verðmismunur eftir gæði vör-
unnar er það mikill, að hér er vel
hægt að lifa mjög ódýrt. Miðað við
dýrtíðina heima, er hægt að fá
meira hér fyrir sömu laun. Hér er
hægt að spara heilmikið með þvi að
versla á útsölum og kaupa vömr á
niðursettu verði. Hér em
útsölur mjög algengar, og meira að
segja brennivínið fer á útsölu.
Mjólkin er það eina, sem er dýrara
hér en heima, og kjöt er hér nokkuð
dýrt. En bensinið er á gjafverði.
— Talar fólk mikið um pólitík?
Gunnar: — Nei, ég er hræddur
um ekki. Fjöldamargir forðast það,
en beina spjótum sínum aftur á
móti að persónulegu líferni stjórn-
málamannanna, en leggur ekki
alltaf dóm á skoðanir þeirra. Þjóð-
félagið gerir lítið sem ekkert til þess
að ýta undir áhuga almennings á
stjórnmálum, en það er vel séð um,
að hann hafi um nóg annað að
hugsa. Hér er ekkert vandamál að
kaupa hús, því að lánafyrirgreiðslur
em mjög góðar. En það er undir
tekjum manna komið, hvernig hús
hver og einn getur keypt. Maður,
sem ekki hefur háar tekjur á ekki
möguleika á að kaupa nema mjög
ódýrt hús, lánastofnanir sjá um
það. En bilar em bæði ódýrir og
endingargóðir, og það er næstum
því á hvers manns færi að eiga
góðan bíl.
— Það er enginn vandi að láta sér
líða vel hér, því að hér fæst allt til
alls, en hugsunarháttur og smekkur
bandaríkjamannsins er ólíkur
evrópubúans, og það tekur sinn
tima að aðlagast aðstæðum hér eins
og annars staðar. Þegar veðrið er
gott heima er hvergi dásamlegra að
vera. Það hefur verið þroskandi að
búa hér, og við höfum mikið á því
lært og munum læra i framtíðinni.
Á.K.
*
GJAFRJORUR
í ÚRMLI
Mikið og vandað vöruúrval.
Handskorinn, mótaður og litaður
kristall.
Glervörur — Onix vörur Keramik
styttur og margt fleira.
Ef þig vantar gjöf, líttu við í
TÉKK-KRISTAL.
Vörur fyrir alla. — Verð fyrir alla.
lbl>K-
KltlSTlII
Laugaveg 15 sími 14320
6 VIKAN 45. TBL.