Vikan - 04.11.1976, Blaðsíða 11
*
Tveir innbrotsþjófar voru búnir
að velja sérálitlegt hústil að brjótast
inn í. Annar stóð vakt fyrir utan,
meðan hinn fór inn til að afla fanga.
Sá kom út eftir nokkra stund, súr á
svip.
„Náðirðu í nokkuð? spurði sá,
sem úti var.
,,Nei, ég held nú síður, sagði
hinn. „Bölvuð blókin, sem hérna
býr, er lögfræðingur."
„Ljóta ólánið," sagði hinn.
„Tapaðirðu nokkru?"
★ ★ ★
— Nei, nei, ég hef ekki tlma til
þess að koma inn núna — en
áfram með söguna.
Skömmu eftir að Al Smith var í
fyrsta sinn kosinn borgarstjóri I
New York, fór hann í heimsókn í
Sing Sing fangelsið. Eftir að hafa
skoðað húsakynnin, varð hann I
lokin að halda smá tölu yfir
föngunum.
Hann var kvíðinn og tauga-
óstyrkur, þegar til kom, og ekki
batnaði, þegar hann byrjaði meö
orðunum: „Kæru samborgarar —
og mundi þá, aö refsifangar í USA
hafa ekki borgararéttindi. Hann
reyndi I skyndi að leiörétta villuna,
en ekki tók betra við: „Kæru
afbrotamenn," stamaði hann.
Þegar honum varð Ijóst, að þetta
var ekki heldur viðeigandi ávarp,
reyndi hann í þriöja og síðasta sinn:
„Nú jæja, það gleður mig að sjá
ykkur svo marga hér saman-
komna."
★ ★ ★
— Foreldrar mlnir eru komnir á
versta aldur. Þau halda að þau
hafi alltaf rétt fyrir sér.
,,Ég er svo gullheppinn að vinna við málaralistina alla
daga, og það er dásamlegt, — en það er hægt að
þreytast á því eins og öðru. Þessvegna er það oft svo,
að þegar ég kem heim eftir langan vinnudag, þá sest ég
við hljóðfærið. Þar get ég haldið áfram að mála, en ég
hefi þá breytt um aðferð og mála í tónum.” Þetta segir
Sigfús Halldórsson meðal annars í viðtali, sem birtist í
næstu VIKU við þennan vinsæla listamann, sem málar
og semur tónlist af hjartans lyst og er innilega sáttur
við allt og alla. Og þar birtist einnig í fyrsta sinn nýtt
lag eftir Sigfús við ljóð eftir Tómas Guðmundsson.
I NÆSTU VIKU
SIGFÚS HALLDÓRSSON LISTAMAÐUR
HÁRGREIÐSLUMEISTARINN FRÁ OSLÓ
Perry Vangsmo hárgreiðslumeistari frá Osló er hrifinn
af íslandi og íslensku hárgreiðslufólki. ,,Ég vinn
afskaplega vel á Islandi”, segir hann. „Það er landið og
litimir, sem verka svo vel á mig, og það sama kemur
alltaf fyrir mig í Finnlandi. Mér finnst líka finnar og
íslendingar eiga svo margt sameiginlegt annað en
fallegt kvenfólk.” 1 næstu VIKU birtist viðtal við
Perry og myndir af átta stúlkum, sem hann greiddi
fyrir VIKUNA.
BOÐORÐIN TÍU VIÐ BARNAUPPELDIÐ
Dr. Gustaf Jonsson er jafn þekktur í Svíþjóð og
uppeldisfræðingurinn dr. Spock er í Bandarikjunum.
Hann hefur haft meiri áhrif en nokkur annar skandinavi
á álit manna og samfélags á börnum, uppeldi þeirra og
vandamálum. Hann hefur gengið fram af mörgum með
skoðunum sínum, en alltaf stendur hann með
börnunum. Gustaf Jonsson hefur mótað reynslu sína af
börnum og barnauppeldi í tíu boðorð foreldrum og
öðrum uppalendum til hliðsjónar. Sjá nánar í næstu
VIKU.
SVONA EIGA BÍLAR AÐ VERA
Eflaust eru einhverjir óánægðir með það, að þátturinn
Á fleygiferð fellur niður í þessu blaði. En í næsta blaði
birtist þeim mikil sárabót, því þar lýsir Árni reynslu
sinni af Volvo 343, sem hann fékk nýlega að prófa.
Allur öryggisútbúnaður þykir ákaflega vandaður í
þessari tegund, og hafa til dæmis bandaríkjamenn
keypt nokkra bíla af þessari gerð til þess eins að prófa
öryggisútbúnaðinn og læra af því. Ámi er mjög hrifinn
af bílnum, eins og sjá má af fyrirsögninni: Svona eiga
bílar að vera.
VIKAN Útgefandi: Hilmir h.f. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Ðlaðamenn: Guðmundur Karlsson,
Sigurjón Jóhannsson. Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Jim
Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjóm, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing Siðumúla 12.
Simar 35320-35323. Pósthólf 533. Verð i lausasölu kr. 300. Áskriftarverð kr. 3.350 fyrir 13 tölublöð
ársfjórðungslega, kr. 6.320 fyrir 26 tölublöð hálfsárslega eða kr. 11.700 i ársáskrift. Áskriftarverð greiðist
fyrirfram. Gjalddagar: nóvember, febrúar, mai, ágúst.
45. TBL. VIKAN 11