Vikan - 04.11.1976, Side 12
DÝRALÆKNISFRÆÐI.
Kæri Póstur!
Við erum tvær stelpur og okkur
langar til að fá að vita hvar við
getum lært dýralæknisfræði og
hvað við yrðum lengi að læra
hana. Hvernig fara vatnsberi
(stelpa) og Ijón (stelpa) saman?
En tvær vatnsberastelpur? Að
lokum. Hvað lestu úr skriftinni
og hvað heldurðu að ég sé gömul?
Tvær heimskar.
Dýralækningar eru ekki kenndar
hér á iandi og það þarf stúdents-
menntun til þess að geta lagt
stund á þær. Íslenskir dýralæknar
hafa flestir numið fræði sín á
Norðurlöndunum. Algengt er að
námið taki sex ár.
Vatnsberi og Ijón eiga agætlega
saman og einnig tveir vatnsberar,
þótt þeir geti stundum verið
ósammála.
Úr skriftinni les ég atorku og
áhugasemi. Þú ert svona 11 ára.
VERTÍÐ Á VESTFJÖRÐUM.
Kæri Póstur!
Við erum hérna tvær 15 ára
stelpur og okkur langar til að biðja
þig að svara nokkrum spurningum
fyrir okkur.
1. Er hægt að komast á
fiskvertíö á Vestfjöröum?
2. Ef svo er, hvert á maður þá
að snúa sér?
3. Hvernig eiga saman hrúts-
stelpa og nautsstrákur? En nauts-
stelpa og vatnsberastrákur?
4. Hvað lestu úr skriftinni?
Please ekki láta bréfið okkar I
hina heimsfrægu, þvl við hættum
ekki að skrifa þér fyrr en þú hefur
svarað því.
Tværað noröan.
Pósturinn telur ekki miklar llkur á
þvi aö þið getir komist á fiskvertfð
á Vestfjörðum. Þið gætuð samt
reyntað skrifa tilþeirra staða, sem
þið hafið áhuga á og spurt eftir
þessu.
Margir halda, að samband
hrútsstelpu og nautsstráks bless-
ist ekki, en það er ekki rétt, þau
eiga oftast vel saman. Nautsste/pa
og vatnsberastrákur eiga aftur á
móti ekki vel saman, þvi að þau
eru svo ól/k í sér. Úr skriftinni les
ég sjálfselsku og ævintýraþrá.
EÐLILEGT EÐUR El.
Kæri Póstur!
Takk fyrir allt gamalt og gott
bæði í Póstinum og Vikunni í
heild.
Þannig er mál með vexti, að ég
er hrifin af strák eins og flestar
aðrar stelpur. En hann hefur bara
áhuga á kynlífi þ.e.a.s. að sofa
hjá. Ég er bara þannig gerð, að ég
hef ekki neinn einasta áhuga á því
að hleypa upp á mig. Mér finnst of
snemmt að byrja á þvl. Ég vil
vináttu á milli stráks og stelpu. Er
þetta óeölileg hugsun? Á ég að
láta hann lönd og leiö eða reyna
að halda I hann? Er óeðlilegt að
vera 173 sm. á hæð og 63 kg?
Hvað heldurðu, aö ég sé gömul,
og hvað lestu úr skriftinni? Hvern-
ig fara tveir hrútar saman? En
hrútur og vatnsberi?
Jæja, vertu blessaður og sæll.
Með fyrirfram þökk fyrir birting-
una vona ég, að ruslafatan verði
södd eftir birtinguna á þessu bréfi.
Ástarþakkir.
HrúturTvíburason (samt kvk.).
Póstinum finnst þú a/veg full-
komlega eðlileg. Þú skalt fara eftir
þvi sem þér sjálfri finnst, en ekki
því sem aðrir vi/ja. Ef strákurinn
getur ekki sætt sig við þaö ættir
þú bara að láta hann fiakka. Þú
mættir ef tii vi/l vera tveimur
kllóum léttari. Þú ert 15 ára og úr
skriftinni /es ég hreinskilni, en
dálítið óöryggi.
Tveir hrútar eiga annaðhvort
mjög vel eða mjög illa saman.
Samband hrúts og vatnsbera ætti
að b/essast.
STÝRIMANNASKÓLINN.
Kæri Póstur!
Ég ætla aö biðja þig aö svara
nokkrum spurningum fyrir mig.
1. Hvað þarf maður að vera
gamall til þess að komast I
Strýrimannaskólann?
2. Er nóg að fara beint úr 3.
bekk gagnfræðaskóla?
3. Er erfitt fyrir 16 ára ungling
að komast á bát, sem fer á loönu I
vetur?
Hvernig er skriftin og stafsetn-
ingin? Og svo enga útúrsnúninga.
Með þökk fyrir hjálpina.
R.K.
6 30