Vikan - 04.11.1976, Qupperneq 13
TH þess aö geta hafið nám í 1.
bekk Stýrimannaskólans þarf að
hafa gagnfræðapróf eða hlið-
stæða menntun og 24 mánaöa
starfstíma sem háseti eftir 15 ára
aidur á skipi yfir 12 rúmlestum.
Þeir, sem ekki hafa gagnfræða-
próf, geta stundað eins vetrar
nám við undirbúningsdeild skól-
ans, áður en þeir setjast í 1. bekk,
og þurfa þá að hafa 17 mánaða
hásetatíma. Auk þess þarf að
leggja fram vottorð um góða sjón
og eðlilegt litaskyn. Það hlýtur að
vera mögulegt fyrir dug/egan 16
ára ungling að komast á loðnuver-
tíð. Skriftin er ekki sem verst og
bréfið villulaust.
FERLEG VANDRÆÐI.
Ágæti Póstur!
Ég á í ferlegum vandræöum
með foreldra mína. Viltu segja
mér, hvað þú telur réttast af mér
að gera.
Ég rífst daginn út og inn við
foreldra mína, sérstaklega
mömmu. Sem dæmi ætla ég að
nefna eftirfarandi: Ef ég fæ þá
hugmynd að baka köku, eða
prjóna eitthvað, verður mamma
alveg æf og segir, að ég vilji allt
gera, en geti ekkert. Ég verð
náttúrlega reið og sár og byrja að
mæla í móti, en þá fæ ég að
heyra, að ég sé frek og ókurteis.
Þetta hefur í eitt skipti endað með
slagsmálum. Síðan fór mamma
beint til pabba og byrjaði að
predika yfir honum, hvað ég væri
orðin hræðilega óviöráðanleg og
hvað í ósköpunum ætti að gera
við mig. Þetta gerist um það bil
tvisvar á dag, og það finnst mér
ansi mikið.
Þau segja, að ég sé löt og nenni
ekkert að gera. Það er aö vísu
satt, en það stafar af því, að ég er
alltaf full af hatri og viðbjóði á
þeim.
Mér finnst bara alls ekki hægt
að lifa í þvílíku ósamlyndi við
foreldra sína. Mér líður svo skratti
illa, að ég fæ aöallega þrjár
hugmyndir. Sú fyrsta er að æða út
til vinkonu minnar og gista hjá
henni, án þess að láta þau vita.
Eða þá að drekkja mér einfaldlega.
Það er mjög hentugt, því að
sjórinn er hér rétt hjá. Þriðja
hugmyndin er sú að skera mig á
púlsinn og láta fóikið finna mig í
blóði mínu. Þú sérð, að ég er langt
leidd. Stundum sit ég langtímum
saman, stari út í loftið og hugleiði
róttækar aðgerðir til þess að koma
móður minni af stóli.
Ekki segja mér að ræða málin
við foreldra mína, því að slíkt er
ekki mögulegt. Þau myndu þá
bara segja mér að þegja og fara út
eða upp í herbergi.
Elsku Póstur, finndu eitthvað
gott ráð. Á ég að hætta að hugsa
um þetta, fara aö heiman eða
grenja af stingandi sársauka innra
með mér á hverjum degi.
Með von um birtingu.
Þín Snúlla.
P.S. Hve gamla telurðu mig
vera?
Pósturinn er alveg í öngum
sinum út afþessu ástandi á heimili
þínu. Í öl/um bænum farðu ekki að
gera neina vit/eysu. Það er varla
um annað að gera fyrir þig en að
fara að heiman. Þú iætir verið i
burtu um tíma og komið svo aftur
heim svona til reynslu. Þú gætir
líka reynt að fá einhverja aðra til
þess að tala við foreldra þina fyrir
þig, fyrst þú getur það ekki sjálf.
Þú ert sennilega 15 ára eða þar um
bil. Vonandi stendur þetta allt til
Lára K. Albertsdóttir, Naustabúð
13, He/lissandi, óskar eftir að
komast í bréfasamband við stelp-
ur og stráka á aldrinum 13—15
ára. Sjálf svarar hún öllum bréfum
sem henni berast.
LHja Bára Guðbjartsdóttir, Nausta-
búð 6, Hellissandi óskar eftir að
komast í bréfasamband við stelpur
og stráka á aldrinum 10—12 ára.
Sjálf er hún 10 ára og svarar öllum
bréfum, sem henni berast.
Elfa Björk Guðbjartsdóttir,
Naustabúö 6, Hellissandi, óskar
eftir að komast i bréfasamband
við stelpur og stráka á aldrinum
11—13 ára. Sjálf er hún 11 ára og
svarar öllum bréfum, sem henni
berast.
Bestu kaupin eru heimilistæki frá
Urvals norsk heimilistæki frá KPS einum
stærsta heimilistækjaframleiðanda á Norður-
löndum.
3 litir: Hvitt, Avocado, Grænt og tízkuliturinn
Karry gulur
Einstaklega lágt verð.
P. 351 3hellna e/davélarfhvítu .... kr. 87.510,-
P. 351 3 hellna eldavélar ilit ..... kr. 93.420.-
P. 461 4 hellna eldavélar ihvítu ....kr. 102.600
P. 461 4 hellna eldavélar I/it...... kr. 108.860.-
Eigum einnig á lager kæliskápa, gufugleypa og
uppþvottavélgr í sömu litum. Greiðsluskilmálar.
Skrifið eftir myndalista
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI „? A.
SÍMI 1 6995.
FAXASftÁfAft
ÓDYRIR OG HENTUGIR
I mörgum stærðum og gerðum
Sendum hvert á land sem er.
Biðjið um myndalista.
STÍLrHÚSGÖGN
AUDRf'l KKU b3 KOPAVuG, ^fvVi-iö.hO
45. TBL. VIKAN 13