Vikan - 04.11.1976, Side 18
Það er langt síðan ég hef
skemmt mér svona vel í leikhúsi,
sagði einn leikhúsgesta að lokinni
annarri sýningu á Stórlöxum eftir
Ferenc Molnár í Iðnó. Vikan tekur
undir þessi orð og fleiri af því tagi,
sem látin voru falla frammi á
anddyrinu eftir þá sýningu, og
telur óhætt að ráðleggja fólki að
láta ekki þessa skemmtun fram hjá
sér fara, þótt gagnrýnendur dag-
blaðanna hafi ekki lokið neitt
sérstöku lofsorði á Stórlaxa þeirra
leikfélagsmanna.
Hér er ekki um eitt samfellt
leikrit að ræða, heldur tvo skylda
leikþætti. Fyrri þátturinn nefnist
Einkalíf og gerist í fínni veislu á
heimili virtra bankastjórahjóna.
Síðbúinn gestur kemur því til
leiðar, að við fáum að skyggnast
undir grímu yfirborðskurteisinnar
og vináttunnar.
í síðari þættinum fylgjumst.við
með því, hvernig tötralegur eigna-
leysirgi er dubbaður upp í höfð-
inglegan stóreignamann á rúmum
klukkutíma, og má þá nærri geta,
að það er handagangur ( öskjunni.
Það sem trúlega verður flestum
minnisstæðast er leikur Þorsteins
Gunnarssonar í báðum þáttunum,
svo gjörólík hlutverk, sem hann
hefur þar á hendi. í fyrri þættinum
bregður hann upp svipmynd af
þjóni, gömlum hrjáðum og gleði-
vana, svipmynd, sem allir muna,
bótt hann segi svo sem ekki neitt.
HfiNDfiQfiNQaR
í síðari þættinum fer hann með
hlutverk bankastjóra, sem ekkert
er ómögulegt, jafnvel ekki að
skapa nýjan mann úr litlu efni.
Þótt ekki væri til annars, er
ómaksins vert að fara og sjá
Þorstein leika þessi hlutverk.
Aðrir leikendur er níu, og hver
þeirra fer með fleiri en eitt
hlutverk, sumir með mörg, og
væri eflaust ekki síður skemmti-
legt að horfa á hamaganginn að
tjaldabaki, þegar verið er að skipta
um gervi.
Vigdís Finnbogadóttir leikhús-
stjóri þýddi Stórlaxana á íslensku,
Jón Hjartarson leikstýrði, og
Steinþór Sigurðsson gerði leik-
myndir.
K.H.
Læknisskoöun er eitt af því, sem
Siguröur Karisson má gangast
undir, áður en hann er gerður aö
heidri manni. Kjartan Ragnarsson
ieikur iækninn.
í ÖSKJUNNI
LEIKHÚSGESTIR
í vetur getíb þii) byrjab Leikbúsferbina hjá okkur. pví um
belgar. á f'mtud'úgum. lattgard'ógum og sumiudögum tmtntm
vib optta kl. 18.00. sérstaklega fyrir Leikhúsgesti. Njótib þess
ab fá góbati mat og góba pjónustu í rólegu umhverft ábttr en
pib farib í Ijtikbúsib.
HÓTEL
HOLT
Sími 21011
^mmmmmam^^^mmammmmmmmmmmmmM
Þegar bankastjórinn loks gefur sér tima til að spjalla við fulltrúann, á
sá síðarnefndi erfitt um mál. Karl Guðmundsson, Þorsteinn Gunn-
arsson.
18 VIKAN 45. TBL.