Vikan - 04.11.1976, Side 23
sagði hann við Irinu, ,,og sæki um
leið eitthvað handa okkur að borða.
Ég verð ekki nema tíu mínútur
i burtu. Er þér nokkuð il)a við að
bíða á meðan?”
„Þóþað væru tuttugu mínútur,”
sagði hún og hló. „Hafðu engar
áhyggjur ástin min. Ég gæti ekki
verið öruggari. Þetta er alveg
yndislegur staður,” sagði hún,
sparkaði af sér skónum og fleygði
sér á rúmið. Hann hallaði sér yfir
hana og kyssti hana. „Þó væri
hann enn yndislegri, ef þú þyrftir
ekki að hringja.”
Hálftíma seinna fór hann að
hringja. Það er slæmt að þurfa að
lifa samkvæmt þessari skeiðklukku
hugsaði hann, en hann var samt i
góðu skapi. Frau Hartmann truflaði
þau á engan hátt. Ef marka mátti
glamrið i pottunum, var hún önnum
kafin frammi í eldhúsi. Sama gilti
um Franz, sem leit sem snöggvast
upp frá vinnu sinni og spurði.
„Er ekki allt í fína?”
„Jú,” sagði David og hringdi á
Hótel Bristol. Honum var strax
gefið samband við Krieger.
„Þvi ertu svona seinn?” sagði
Krieger. „Og hvar ertu?”
,,Við erum i Merano. ”
„Vonandi ekki á leið hingað.”
„Nei. Við erum búin að útvega
okkur herbergi.”
„Hérna nálægt?”
„Rétt fyrir utan gamla bæjar-
hlutann.”
„Á stóru hóteli eða gistihúsi?”
„Nei, í litlu húsi á bak við bíla-
geymslu.”
„Jæja. Það er alla vegana frum-
legt og vonandi öruggt líka. ”
„Ég held það.”
„Eini gallinn er sá, að Jo á
kannski erfitt með að finna það. Ég
vil ekki að þú nefnir nein götu-
heiti.”
„Þekkir hún þennan hluta bæjar-
ins?”
„Ég geri það.”
„Noguvel?”
■ „Já. Og ef þú treys'tir ekki minni
minu, þá er ég hér með götukort.
Enþú?”
„Já. Manstu eftir Gullna emin-
um?”
Það varð smá þögn. „Ég veit
hvar hann er.”
„Það hafa orðið eigendaskipti og
þar er nú komið kaffihús. Bila-
geymslan er þar við hliðina. Franz
Hartmann heitir eigandinn. Hann
mun vísa Jo leiðina að húsi móður
hans. En hvers vegna viltu senda
hana?”
„Við tveir þurfum að hittast.”
Nú varð aftur þögn, en því næst
eitthvert óskiljanlegt muldur. Jo
hlaut að vera þama hjá Krieger,
hugsaði David, hann er sjálfsagt að
segja henni undan og ofan af
málinu. En hvers vegna skyldi
liggja svona mikið á? „Ertu þama
enn?” sagði Krieger og rödd hans
varð nú greinileg.
„Já,” sagði David og reyndi að
virðast þolinmóður.
„Þú ert aðeins fáeinar minútur
að komast að bogagöngunum í
garrfla bæjarhlutanum. Hittu mig í
Rauða Ljóninu. Það er á vinstri
hönd, ef gengið er upp götuna.
Leggðu af stað undir eins."
„Ég legg af stað um leið og Jo
kemur hingað.”
„Mér fannst þú segja að staður-
inn væri öruggur,” sagði Krieger
óþolinmóður.
„Hann er það. En ég þarf að ná í
eitthvað að borða handa okkur. Við
höfum ekkert borðað síðan snemma
í morgun.”
„Jæja, en farðu varlega.”
David fannst Krieger leggja
óvenju mikla áherslu á orð sin.
„Eru átök i uppsiglingu?”
„Já, rustarnir þrír em mættir.”
„Hérna?”
„Já. Og því fyrr sem við hitt-
umstþví betra.”
„Segðu þá Jo að flýta sér.”
„Og það sama gildir um þig,”
sagði Krieger og lagði tólið á.
„Jo kemur þá og þegar,” sagði
David við Irinu er hann kom aftur
í herbergið. „Þú ættir að klæða þig,
ástin mín. Ég kom með svolítinn
mat, sem ætti að halda okkur gang-
andi.” Hann dró upp brauðhnúða
og þunnt skornar skinkusneiðar og
nokkrar ofvaxnar ferskjur og flösku
af Chianti. „Svo sem ekkert
sérstakt,” sagði hann og skar í
sundur tvo brauðhnúða með vasa-
hnifnum sinum, „en smánæring
engu að siður.” Hann hellti víni i
vatnsglas, smakkaði á því og sagði.
„Við getum vist ekki verið að fárast
út af vínárgöngum núna. Ég vona
samt að þetta sé ekkert eitur. Ég
tók það fyrsta nothæfa, sem ég sá á
kaffihúsinu.”
Hann er að breiða yfir eitthvað
með þessu létta hjali sínu, hugsaði
Irina. Hann er áhyggjufullur, en
vill ekki láta mig finna það.
„Hvernig var hljóðið í Krieger?”
Hún klæddi sig í kjólinn og greiddi
sér.
„Ég verð að fara og hitta hann
strax og Jo kemur.”
„Nújá.” Hún tók samlokuna
sína, sem lá á náttborðinu. „Þetta
lítur ágætlega út. Auk þess er ég
banhungruð.” Svo bætti hún við.
„David, hvað um minnisbækumar?
Ætlarðu að segja Krieger frá
þeim?”
„Því ekki það?”
Hún fékk sér bita af saklokunni
og brosti að sjálfri sér um leið. Er
hún var búin að kyngja sagði hún.
„En ef hann vill fá þær? Ætlarðu
þá að láta það eftir honum?”
„Nei.”
„Viltu ekki geyma þær fyrir
mig?”
„Nei, það er öruggara að þú
geymir þær, en þó ekki i handtösk-
unni.”
Framhald í næsta blaði.
★
®
Concorde
krefst fyitsta
öryggis og
notar þvi
hfólbarda
Kléber
Vetrarhjólbaröar
nýkomnir
STÆRÐIR:
145 X 10
133 X 13
145 X 13
145 X 14
175 X 14
185 X 14
135 X 15
165 X 15
HAFRAFELL HF.
CRETTISGÖTU 21
SlMI 23511.
45. TBL. VIKAN 23