Vikan - 04.11.1976, Page 26
Rit Stjórnunar
félagsins:
NÚTÍMASTJÓRNUN eftir Peter Grope er
líklega útbreiddasta stjórnunarbók á Norður-
löndum um þessar mundir. Höfundurinn gefur
íbókinnigottyfirlityfirstjórnunarfræðin. Hann
leggur áherzlu á að lýsa starfsemi skipulags-
heilda, þ.e. fyrirtækja og stofnana, og dregur
fram sameiginleg einkenni þeirra, sem stjórn-
endur þurfa að kunna skil á.
FJARMÁLASTJÓRN FYRIRTÆKJA eftir
Árna Vilhjálmsson prófessor kom fyrst úr árið
1965. Bókin hefur verið ófáanleg um árabil en
hefur nú verið endurprentuö vegna mikillar
eftirspurnar. Höfundurinn gerir grein fyrir
tegundum fjármuna og fjármagnsog atriðum,
semráðavali milli fjármagnstegunda. Þáfjallar
hann um fjárhagsleg vandamál við rekstur, og
að lokum er fjárfestingarreikningum lýst.
ATVINNULÝÐRÆÐI eftir Ingólf Hjartarson
fjallar á hlutlægan hátt um þann þátt í stjórnun
atvinnufyrirtækjanna sem hvað mest hefur
verið í sviðsljósi umræðna í nágrannalönd-
unum. Auk skilgreiningar á hugtakinu gerir
höfundurinn grein fyrir þróun atvinnulýðræðis
í Noregi, Danmörku, V-Þýzkalandi og Júgó-
slavíu og vegur og metu kosti þess og galla.
Stjórnunarfélag íslands
v.
Hún stansaði andartak við þrepin
sem lágu upp að dyrunum. Undar-
leg þögn ríkti á staðnum. Dymar
voru kyrfilega lokaðar og hún varð
ekki vör við neina hreyfingu, þó að
ljós lýsti í gluggunum.
Hún rýndi upp í gluggana og sá
skugga bregða fyrir. Eitthvert líf
virtist vera inni í byggingunni, og
hún lyfti pilsunum og gekk ákveðin
upp þrepin.
Bréfmiði var festur á hurðina, en
á honum stóð eitt orð: BANNAÐ.
Hún hristi undrandi höfuðið. Þetta
virtist i meira lagi dularfullt. Hún
bankaði á dyrnar og heyrði þrusk
fyrir innan.
Dymar opnuðust hœgt, og
þreytuleg rödd sagði: , .Bannað.
Aðgangur er bannaður. Staðnum
er lokað”, og svo átti að skella aftur
hurðinni.
En Abby ýtti á móti, og henni
tókst að opna dyrnar. Hún stóð nú
augliti til auglitis við konuna, sem
hafði reynt að vama henni inn-
göngu. Hún hélt á kertastjaka og
riðaði örlitið til, þar sem hún stóð
þarna í anddyrinu. Hún horfði
þreytulega á Abby.
„Aðgangur er bannaður,” sagði
hún. „Það er best að þú farir
aftur.”
„Þetta er sjúkrahús Abels Lack-
lands, er það ekki?” spurði Abby.
„Hann hefur aldrei lokað dyninum
á þá, sem leita hjálpar hjá honum.
Hvað hefur breyst?”
„Þekkir þú hr. Abel?”
„Já, égþekki hann.”
„Þú ert ekki að leita lækninga?”
„Nei. Ég vil ná tali af hr. Lack-
land.”
„Það er gott, þvi að við gætum
ekki hjálpað þér, þótt þú værir sjálf
drottningin. Og ef þú ert skynsöm,
þá snýrð þú við og hittir hr. Lack-
land á heimili sínu, þegar hann
kemst þangað. Ég bið þig sjálfrar
þín vegna að fara núna.”
Einhver kom niður stigann með
eitthvað þungt á bakinu, og Abby
sá í daufu skini kertaljóssins, að
það var lík.
Maðurinn gekk hægt yfir að
bakdyrunum. „Opnaðu dymar
Nancy,” tautaði hann, og konan
flýtti sér með kertastjakann í
hendinni og opnaði dymar, sem
vom í skugganum.
„Svona hr. Snow,” sagði hún.
„Varaðu þig. Ég skal fvlgja þér
eftir með ljósið.” Ómurinn af rödd-
um þeirra fjaraði út um leið og þau
hurfu. Það fór hrollur um Abby.
Eftir andartaks hik gekk hún
ákveðin upp stigann. Upp á stiga-
pallinum var bjartara, kerti stóðu á
hillum meðfram veggjunum. Tvær
stórar hurðir stóðu í hálfa gátt, hún
gekk að þeim og opnaði aðra þeirra
og fór inn. Þetta var stórt herbergi
og fullt af fólki. Rúm stóðu þétt
meðfram veggjunuxn, og flatsæng-
um var komið fyiir ó miðju gólf-
inu. öll rúmin vom nýtt.
Þrjár vemr vom á hreyfingu
meðfram rúmunum, og Abby pírði
augun til að sjó hverjar þær væm,
óp heyrðist frá einu horninu.
Ein veranna fór frá einu rúmanna
og gekk eins hratt og leyfði að horn-
inu, og Abby greindi nú að þetta
var kona, lítil og grönn og mjög
ákveðin i hreyfingum, og næstum
án þess að hugsa sagði hún „Ung-
frú Ingoldsby!”
Ungfrú Ingoldsby, sem hafði
verið kennslukona þeirra og ráðs-
kona á Gower Street.
Litla konan starði á Abby, og
sagði því næst eins eðlilega og þær
hefðu verið samvistum siðastliðin
tíu ár. ,Gott kvöld Abby, pabbi
þinn er — ” hún snéri höfðinu „já
þarna er hann, i horninu.”
EINNI & PINNI
28 VIKAN 45. TBL.