Vikan - 04.11.1976, Qupperneq 28
SfKÍin gildirfrá fimmtudegi til miðvikudags
HRÚT'JRINN 21. mars - 20. april
Þú verður mikið heima á kvöldin og lætur
þér ekki leiðast, þvi að þú ert nýbúinn að
finna þér drjúgt heimaverkefni. Gættu þess
vandlega að móðga engan.
tm
NAUTIÐ 21. aoril — 21. maí
Einþykkni þin hefur fælt frá þér persónu
___ sem þér þykir mjög vænt um. Reyndu að fá
hana til þess að sættast við þig aftur.
^ » Happalitur þinn er appelsínugult.
TVÍBURAPNIR 22. maí - 21. júní
Yfirleitt má segja að heildarútkoma vikunn-
ar verði jákvæð, þó þú verðir að vísu fyrir
nokkrum skakkaföllum. Þú verður að taika
sjálfstæðar ákvarðanir i vissu tilfelli.
£oS'
KRABBINN 22. júni - 23. júli
Varastu að tala of mikið um nánustu sam-
starfsmenn útávið, það gæti verið að
einhver væri á hnotskóg eftir þessum um-
sögnum um þá. ^
i r- Þú lendir i dálitiili klípu en úr henni rætist
^ ._. KÍ samt á besta veg ef þú heldur fast við þitt.
í? Það eru ýmsir hlutir sem þú verður að láta
ganga fyrir hvað sem hver segir.
MEYJAN 24. ápúst — 23. sept.
Að líkindum verður eitthvað um lasleika á
heimili þinu eða i kringum þig á vinnustað.
Þú hefur nokkrar áhyggjur af því að geta
ekki afkastað verkefnum þínum.
VOGIN 24. sept — 23. okt.
Kunningi sem þú hefur oft rétt hjálparhönd
sýnir þakklæti sitt í verki. Þér verður boðið
á skemmtistað þar sem nokkuð óvænt ber
fyrir sjónir. Heillalitur er rauður.
SPORÐDREKINN 24. okt. - 23. nóv.
Þú gerir nokkrar tilraunir til þess að fá svar
við spumingu sem hefur valdið þér nokkr-
um ónotum. Þú færð fréttir af vinum
þínum.
t BOGMAÐURINN 24. nóv. - 21. des.
Vegna utanaðkomandi áhrifa verðurðu að
draga ýmsar persónulegar framkvæmdir.
Þér er best að hætta að hugsa um væntan-
lega aðstoð vissrar persónu.
STEINGEITIN 22. des. -20. ian.
Nokkrar óveðursblikur eru á lofti. Þú ættir
að forðast allar rökræður og stælur, þótt þér
finnist hallað á rétt þinn. Notaðu eitthvert
kvöldið til kunningjaheimsóknar.
VATNSBERINN 21. jan. - 19. febr.
Það er eins og vissir hlutir í eigu þinni reyn-
‘ý-it'jf ist þér alltaf jafnilla, hversu oft sem þú
skiptir um. Reyndu að læra eitthvað af
reynslunni og þiggja ráð af öðrum.
FISKARNIR 20. febr. - 20. mars
Þér verður mun meira úr fjármunum þínum
en þú hafðir þorað að vona. Kunningi þinn
tekur þig með sér í stutt, en mjög skemmti-
legt ferðalag. Þú kynnist nýju fólki.
STcJÖRNUSPfl
Hann leit yfir öxl sér á sofandi
börnin og lækkaði róminn.
,,Það er Celia — hún fór út ein
hvem tíma í kvöld og hefur ekki
komið aftur.”
Abby hristi höfuðið. ,,En hvenær
komstu hingað Jonah? Klukkan er
aðeins níu. Hún getur ekki hafa
farið langt. Hún er heima, það er ég
viss um, og hugsar um hvert þú
getir hafa farið með börnin á svona
hráslagalegu kvöldi.”
Hann tók hendur hennar i sínar
og sagði hratt ,,Ég veit að ég hef
ástæðu til að vera áhyggjufullur,
Abby, þú þekkir hana ekki. Hún
hefur aldrei verið fjarverandi á
kvöldmáltíðum allan þann tíma sem
við höfum verið hér. Hún heldur að
enginn nema hún hafi vit til að ráða
fram úr vandamálum, ég er
áhyggjufullur.”
„Allt í lagi, Jonah” sagði hún
rólega. „Ef þú trúir að þú hafir
ástæðu til að vera áhyggjufullur,
tek ég þátt í því með þér. En hvað
viltu að ég geri?”
„Börnin” sagði hann strax.
„Viltu hafa þau hér hjá þér þar til
égfinnCeliu...?” Rödd hans titraði.
„Þú finnur marga leiguvagna á
endastöðinni, þar sem strætisvagn-
arnir snúa við. Sendu mér orð á
morgun, og segðu mér hvað hefur
gerst. Og hafðu ekki áhyggjur af
bömunum, ég skal líta vel eftir
þeim.” sagði Abby.
Hann kyssti hana á kinnina,
næstum innilega. „Þú ert allra
systra best, Abby. Líf mitt væri
alveg óbærilegt án þín, held ég.”
Þar með var hann farinn.
Þegar henni og Ellie hafði tekist
að hátta Phoebe og koma henni
fyrir í litla herberginu inn af her-
bergi ungfrú Miller og með ákafri
hjálp Fredericks höfðu háttað
Oliver og látið hann í rúm Freder-
icks, fór hún inn í sitt eigið her-
bergi, að niðurlotum komin. Hún
háttaði sig, og fór í bað, í stóra
baðkerinu, sem Ellie hafði haft til-
búið fyrir framan logandi arininn,
og lét þreytu og erfiði dagsins líða
úr sér.
Það var ekki fyrr en hún var
komin upp úr baðinu og i sloppinn
að Ellie kom með bréf til hennar.
„0, frú, mér þykir svo leitt, en í
öllum æsingnum í kvöld, stein-
gleymdi ég þessu. Hr Gideon var
hér í næstum allan dag, fullur af
spumingum um hvar þú værir og
vildi ekki þiggja neina hressingu,
nema einn tebolla. Hann virtist
utan við sig, og svo varð hann
skyndilega- að fara. En hann skildi
þetta eftir handa þér, frú, og sagði,
að ég ætti að láta þig fá þetta um
leið og þú kæmir inn. Og svo gleymi
ég öllu saman. Mér þykir það leitt,
frú, en þú gætir ekki kallað þetta
neitt venjulegt kvöld, er það? Mér
þykir það svo leitt— ”
Og hún dró upp úr vasanum á
stórri svuntunni, stórt ferkantað
bréf.
Þegar Abby var loksins ein,
braut hún upp litla innsiglið, opnaði
bréfiðoglas.
„Kæra Abby, ég er að missa
vitið. Þeir sögðu í verksmiðjunni
að þú værir farin, og vissu ekkert
meira. Kæra, kærasta Abby, ég
elska þig svo mikið. Þú veist það,
ég þarf ekki að segja þér það, en
hvað hefur þrá með það að gera?
Mig langar til að segja þér — ég
verð að segja þér, að ég bíð aðeins
eftir þér til að segja mér tilfinn-
ingar þínar, þvi þú getur ekki leynt
því lengur.
Ég veit, eins og hver maður sem
elskar, að þú elskar mig eins og ég
elska þig. Ég sá þig í stúkunni,
bjarminn frá kertunum lék um
höfuð þitt eins og geislabaugur, og
ég vissi að birtan kom frá þér
sjálfri. Það var eins og þú hrópaðir
til mín frá stúkunni, að þú vissir
hvað væri í hjarta mínu.
Og ég veit hvað er í þínu, ég er
viss. Ég veit að þetta bréf er mgl-
ingslegt, og vissulega heimskulegt,
en ég er svo fullur af áhyggjum og
þrá eftirþér.
Viltu, um leið og þú kemur heim
senda mér skilaboð.
Þú veist ekki, hve ég þrái þig.
Kæra Abby, ég elska þig mjög
heitt.”
Hann hafði aðeins skrifað stórt
G undir bréfið, stutt óljóst pár, eins
og tilfinningar hans til hennar hefðu
allt í einu orðið öllu yfirsterkari.
Hún hugsaði vandlega og hratt,
að venju, og tók skjóta ákvörðun.
hún fór niður, skrifaði stutt bréf og
lokaði því vandlega áður en hún fór
út til að ná í leiguvagn til að flytja
það á ákvörðunarstað.
Hún sagði reiðilega: „0, hvers
vegna komstu? Ég bað þig í bréfinu
— þvi að gera þetta svo miklu erfið-
ara fyrir okkur bæði? Nei, vertu þar
sem þú ert. Ef þú kemur nær, þá
get ég ekki hugsað. ”
Abby hafði setið við borðið þegar
hurðin hafði opnast, hún hélt að það
væri aðeins Ellie, stúlkan hennar,
komin til að kveikja á lömpunum.
Skyndilega fann hún handleggi
hans utan um sig, og andardrátt
o'a
Ódýrar
og hentugar
peningaskúffur
30 VIKAN 45. TBL.