Vikan - 04.11.1976, Síða 36
SJORfENINGJfl-
FJfÍRSJÓÐURINN
EFTIR AKSEL SANDEMOSE
Það er eins og síðan séu hundrað
ár.
Lassi, Jonni og ég lékum okkur í
þurrum lsekjarfarvegi með háum
sandöldum til beggja hliða. Sólin
skein, við grófum I sandinn og
vorum í paradís.
Ég var dálítið frá hinum og
hamaðist, svo að svitinn draup. Ég
veit ekki af hverju við grófum þessar
holur, en við gerðum það og vorum
saelir.
Þá gerðist undrið. Blikkdós kom
upp úr sandinum, og hún var full af
peningum. Ég rak upp gleðióp,
áður en ég fengi hugsað mig um.
Lassi og Jonni sáu hana.
Það er vissulega einsog hundrað
ár séu síðan, en ennþá man ég
ofsalegan hitann í blóðinu. Ég hafði
fundið fólginn fjársjóð!
Ég var bálreiður við Lassa og
Jonna. Hefði það bara verið Lassi,
hefði ég slegið hann utanundir og
hjaupið burt með milljónina. En
Jonna var ekki haegt að losna við,
hann var fjórtán ára, fimm árum
eldri en ég.
Við lögðum af stað. Lassi og
Jonni gerðu hvor um sig kröfu til
þriðjungs. Mér lá við gráti. Af
hvcrju eigið þið að fá svona mikið af
því, sem ég hef fundið?
,,Við verðum þá bara að segja frá
þessu”, sagði Jonni kæruleysislega.
Þetta þaggaði niður í mér. En ég
vildi þá að minnsta kosti opna
dósina sjálfur og sjá fyrstur, hvað í
henni væri. Því það var ég, sem
hafði fundið hana.
,,0, þá snuðar þú okkur bara”,
hrópaði Lassi.
,,Við skulum heldur segja frá
þessu”, sagðijonni.
Ég hélt dauðahaldi um dósina og
óskaði, að þessir tveir bófar dyttu
dauðir niður. Nú skildi ég alla
sjóræningjanna, sem vildu eiga allt
sjálfir, kaptein Kid og Morgan og
alla þá....
Ég fékk örvæntingarfulla hug-
mynd: ,,Ha ha, þarna gabbaði ég
ykkur laglega. Það var ég sjálfur,
sem lét dósina þarna, og hún er full
af ryðguðum nöglum.”
En í sömu andrá stóð ég eins og
negldur niður. Hvílík skelfileg
hugsun. Auðvitað var ekki annað
en naglar I dósinni.
Jonni kom fast að mér með
soltin, gráðug augun. Ég gafst upp.
í dósinni voru fjórar krónur,
níutíu og tveir aurar I koparskild-
ingum — líklega til að sem mest
færi fyrir fjársjóðnum. Þetta var
Uka álitlegur auður. Það var mcira
en ég vann mér inn á má:.uði með
blaðasölu, og þá peninga fékk
pabbi auðvitað.
A meðan við sátum og töldum
milljónirnar, uppgötvaði ég, að það
var bréf á botni dósarinnar. Seðlar?
Nei, reyndar ekki. Það var blóð-
flekkað plagg, með hauskúpu og
krossleggjum og djöfullegum hót-
unum.
Við skilduro nú raunar, að þetta
var ekki mjög hættulegt, en við
tókum þátt I leiknum og töluðum
hvíslandi um Kid kaptein... og við
gutum augunum hver á annan eins
og sannir stórbófar og hugleiddum
morð til að tryggja yfirráð okkar yfir
fjársjóðnum.
En undirniðri var eitthvað, sem
nagaði mig. Nei, það var ekki
hugsunin um vesalings drenginn,
sem misst hafði fjársjóðinn sinn.
Börn væru ekki jafn aðlaðandi, ef
þau fyndu til sársauka með öðrum.
Það liðu mörg ár, þangað til ég gat
gert mér hugmynd um hina óbæru-
legu sorg, sem hann hefur orðið
fyrir, þegar hann kom og sá, að
fjársjóðurinn var horfinn. Hver veit,
ef til vill voru þessir fáu skildingar
afraksturinn af áralöngu erfiði og
sjálfsafneitun... og svo draumurinn
um sjóræningjafjársjóðinn...
Það er talað um að grafa pund
sitt I jörðu. Drottinn minn dýri.
Þarna hefur litli sjóræninginn legið
langa sumardaga I dæld við lækinn,
vopnaður trésverði og prýddur fjað-
urskreyttum pappírshatti og haldið
vörð um fjársjóðinn. Og svo,
einmitt þegar Morgan kapteinn sté
á land, var hin vlgreifa hetja I
skólanum.
Þetta hugsaði ég ekkert um. Það
sem kvaldi mig var allt annars eðlis.
Hefðu Lassi og Jonni ekki verið með
I spilinu, hefði ég getað fengið bæði
smásjá og bókastoðarfugla og átt
peninga afgangs. Stóra verðskráin
frá vöruhúsinu var mín kærasta
lesning, eins og hún var reyndar
lika mörgum fullorðnum. Þar mátti
finna allt, frá kvenkjólum til
músagildra. Það var vart hægt að
hugsa sér bók, sem hafði að geyma
annað eins efni fyrir hugmynda -
flugið. t henni var lika mynd, sem
mér fannst verðúgt takmark lifs-
baráttu langrar ævi: Smásjá á níutlu
aura.
Nú skil ég raunar, að vöruhúsið
hefur verið nokkuð flott I nafngift-
inni. Smásjáin var stækkunargler.
En þó ég hefði gert mér grein fyrir
muninum, hefði það engu breytt.
Bókafuglaparið var lika hægt að fá I
borginni og kostaði tvær krónur.
Ef við hefðum skipt peningunum
strax, hefði ef til vill eitthvað
bjargast. En ég gat ekki fengið af
mér að sleppa peningunum. tJr því
það var ég, sem hafði fundið
fjársjóðinn, gátu þeir að minnsta
kosti leyft mér að kaupa handa þeim
lika. Að lokum féllust þeir á það,
og Jonni setti upp fullorðinssvip.
,,Þá verður þú líka að gæða okkur á
límonaði.”
Ég féll fyrir þessu eins og sveskja.
Límonaði hafði enginn okkar fengið
nema á jólatrésskemmtuninni I
stúkunni — og drekka það svo um
mitt sumar. ,,Og svo kostar það
engin ósköp”, sagði Lassi. Aðeins
fimmtán aura á mann, ef við skilum
flöskunum.
Við fengum snert af stór-
mennskubrjálæði við þá tilhugsun,
að fimmtán aurar væru svo sem ekki
neitt. Við örkuðum inn í kaupstað-
inn og upp aðalgötuna, litum
hæðnislega á aðra drengi, blótuð-
um og skyrptum: Víkið úr vegi.
Aldrei hefur þeim Alexander
mikla, Sesari, eða Djengis Khan og
Napóleon fundist þeir eins miklir
kallar. Enginn gat efast um, að hér
komu menn framtíðarinnar. Eng-
inn gat séð, að hjarta eins drengj-
anna var kramið af kvíða: Smásjáin,
smásjáin. Heitut drengshnefi læstist
um koparskildingana, sem þyngdu
buxnavasann. Smásjáin. Nú gat
maður loks fengið að sjá, hvernig
flugufótur leit út, og allar smáver-
urnar, sem kennarinn sagði, að
væru allstaðar. Fló hlaut að verða að
minnsta kosti eins stór og fíll að sjá.
Ég mundi enn eftir smásjánni, er
við stóðúm í húsasundi og drukkum
okkur fulla af limonaði. Við urðum
I raun og veru ölvaðir. Við vissum,
að menn drukku sig fulla, og nú
urðum við það, og ég held við
höfum kannað öll þekkt stig ölv-
unarinnar, uns algleymi tók við.
f ölvímunni gleymdi ég smá-
sjánni, eins og menn gleyma konu
og börnum og skóm, sem þarf að
sóla. ÉJr því hægt er að gleyma
rafmagnsreikningi, kaupmanni og
húsaleigu, var ekki mikið, þó ég
gleymdi bókafuglum.
Fólk heldur, að skáld ljúgi, en
skáld eru þeir einu, sem I það
minnsta reyna að segja satt. Ég hef
einu sinni eitrað fyrir mann með
hálfum asperínskammti. Við höfð-
um setið I veitingahúsi og gætt
okkur á kaffi. Þar eð við höfðum
ekki efni á öðru og meira, urðum
við að láta okkur nægja að tala um
eiturlyf. Við töluðum um kókaín.
38 VIKAN 45. TBL.