Vikan - 04.11.1976, Blaðsíða 38
DJÖFULLINN O.FL.
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi fyrir stuttu siðan mjög
sérkennilegan draum og ef þú getur fundið
eitthvað út úr honum þá bið ég þig innilega
að birta hann fyrir mig. Hann hljóðar svo:
Fyrst fannst mér ég vera í sundi með fleiri
krökkum. Síðan stóð ég í búningsklefanum,
búin að klæða mig, og uppgötvaði allt í einu
að ég hafði gleymt bikininu mínu í kirkjunni,
sem mér fannst vera í næsta herbergi við
búningsherbergið. Ég þoröi ekki að fara ein
inn í kirkjuna og bað þvi stelpu að koma
með mér. Stelpan hálf dró mig inn (
kirkjuna, því þegar ég gekk inn þá birtist
mér djöfuls-andlit likt og eitthvað skrímsli.
Það birtist mér og rak upp öskur, hvarf svo
en kom aftur á víxl. Ég æpti og öskraði, en
stelpan hélt áfram að draga mig (hún hélt (
hægri hönd mína) og mér fannst sem hún
sæi þetta, en ekki einungis ég, Viö hliðina á
þessari djöfulsmynd var einfaldur kross,
upplýstur og hjá þessum krossi var litil kona
(huldukona) aö labba. Hún sneri baki í mig
og var klædd eins og konur á dögum afa og
ömmu. Mér íunnst sem þessi kona væri að
gera eitt af sínum daglegu verkum, en um
leið og ég sá hana, hugsaöi ég: ,,Nú þaö er
þó alltaf einhver i kirkjunni". í sömu svipan
og ég hugsaði þetta var ég að beygja mig
eftir bikininu mínu. Þá endaði draumurinn.
Ég vil segja þaö, að áður en ég sótti
sundfötin þá höfðum viö krakkarnir, sem
vorum i sundi, verið með ólætin f kirkjunni.
Mér fannst sem ég væri f Bústaðakirkju.
Krossinn var aiveg eins og krossinn þar.
Jæja draumráðandi. Ég vona að þú birtir
þetta fyrir mig. Með fyrirfram kæru
þakklæti.
Tóta.
/ draumnum koma fram uggvænleg tákn
og fyrirborðar alvarlegra atburöa. Þú veröur
á einhvern hátt óheppin og þaö hefur / för
meö sér slæmar breytingar lllfi þtnu. Innan
há/fs árs muntu veröa fyrir mik/u mót/æti
eða áfa/H. Ginnandi freistingar eöa þung-
bær reynsla mun veröa á vegi þínum og þú
munt þurfa á öllum þínum styrk aö ha/da til
að láta ekki bugast. Einhver persóna mun
þó óvænt veröa þér til hjálpar (huldukonan /
draumnum) og gæti breytt gangi mála.
Þessi óvænti bjargvættur er eldri en þú sjálf
og þú ættir því aö beina athyglinni að eldri
kynslóðinni. Á endanum mun samt allt fara
vel og þegsr þú ert laus úr þessum
ógöngum mun framtíöin veröa bjartari.
MEÐ TRÚLOFUNARHRING Á HENDI.
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi um daginn mjög svo skýran
draum, sem mig langar til að þú ráðir fyrir
mig. Draumurinn er á þessa leið:
Mér fannst ég vera að labba úti með
strák, sem ég var með fyrir löngu, og mér
fannst hann aka grænum barnavagni (það
var ekkert barn í honum). Það rigndi mikið.
Mér fannst hann vera klæddur bláum og
rauöum jakka og búinn aö láta klippa sig
mjög stutt. Allt ( einu fannst mér ég vera
stödd í aftursætinu á einhverjum bíl og mér
fannst ég vera að kyssa þennan strák mjög
ákaft. í draumnum fannst mér ég vera á
föstu (en ég er nýhætt með strák). Mér
fannst ég skyndilega vera komin til vinkonu
minnar og varð mér litið á hægri hönd mína.
Á einn fingurinn var ég komin með
trúlofunarhring og fannst mérfingurnir vera
orðnir litlir og feitir. Hringurinn var mjór
meö skorum, sem voru skærar og innan í
hringnum stóð þinn X (köllum hann X), en
ég er nýhætt með honum. Mér fannst ég
rétta fram höndina og segja: „Ætlið þið
ekki að óska mér til hamingju". Enginn vildi
þaö nema ein stelpa, sem ég bara kannast
við, en þekki ekkert. Hún rýkur á mig og
faðmar mig. Þessi stelpa heitir Sigríður.
Draumurinn var ekki lengri. Viltu ráða
hann fyrir mig.
Með fyrirfram. þökk.
Kær kveðja,
S.G.J.
P.S. Þessi draumur var mjög skír, þó
sérstaklega þegar ég var með trúlofunar-
hringinn.
Llklega er þessi gamli vinur þinn ennþá
hrifinn af þér. Það bendir allt til þess aö
hann vi/ji gjarna vera meö þér aftur. Þú
munt sennilega auðgast eitthvaö á næst-
unni, en varla mjög mikiö. Þú veröur aö
heyja haröa baráttu við sjá/fa þig vegna
þessa stráks, en ættir að hitta á réttu
lausnina i þeim efnum. Trútofunarhringur-
inn er mjög skýrt og einfa/t tákn um giftingu
þina. Þú veröur fyrir einhverjum vonbrigö-
um, en hjónabandiö á samt aö veröa
farsæ/t.
MYND AF STRÁK.
Kæri draumráöandi!
Mig langar til þess að biðja þig að ráða
fyrir mig draum, sem mig dreymdi i nótt.
Hann var svona:
Mér fannst ég koma inn í herbergið mitt
og þá eru þar nokkrir krakkar, þar á meðal
strákur sem ég var með í allt fyrrasumar.
Þegar ég sé hann segi ég: ,,Nei komdu
sæll". ,,Hver ert þú?" spyr hann. Hann
þekkti mig sem sagt ekki. Ég sagði honum
ekki strax hver ég væri. Svo fer hann fram á
gang að tala við mömmu og pabba og ég
heyri að hann er að skila kveðju frá sínum
foreldrum. Ég segi við hann þegar hann
kemur inn: „Hvernig þekkir þú mömmu og
pabba?" En hann svarar því ekki. (Þetta var
ekki hér á staðnum, sem við vorum saman
og hann hefur aldrei séð mömmu og
pabba). Svo var ég að pæla í því hvað hann
væri oröinn ferlega feitur, ja, nógu var hann
feitur fyrir.
Svo fórum við eitthvað út og þá segi ég
við hann: „Þú ert kannski búinn að gleyma
öllum ánægjustundunum, sem við áttum í
fyrrasumar?" Þá fattar gaur hver ég er. Svo
tekur hann utan um mig og segir: „Heyrðu,
ég á fullt af myndum. Viltu ekki koma niður
í bát og velja þér eina af mér?" Ég varð ofsa
ánægð því ég átti enga mynd af honum, en
báturinn lá bara alls ekki við bryggju hér,
heldur var það lítill bátur, svo ég hugsaði,
að ég yrði að fara til Akureyrar til að fá
myndina og fór að pæla í hvernig ég ætti að
komast þangað. Ég man ekkert hvernig ég
komst þangað, nema allt i einu er ég komin
þangað og sé að vinkona min er farin að
vinna um borð i bátnum. Þá vaknaöi ég.
3933 -7274.
P.S. Mig langar mjög mikið til að fá
þennan draum ráðinn. Sérstaklega af því að
ég hef ekki séð náungann í heilt ár og svo
var ég og hef ekkert verið að hugsa um
hann.
Einhver sem þú þekkir nokkuö ve/ mun
reynast þér ákaflega eftirlátur. Þú munt
kunna aö meta þaö og verður mjög ánægö.
Þaö er hugsanlegt að þessi piltur, sem þú
talar um komi hér viö sögu, en þó engan
veginn fullvlst. Vertu vet á veröi gagnvart
öðrum vinum þlnum, því að þeir munu
reynast þér heldur ótryggir.
MIG BREYMEH
40 VIKAN 45. TBL.