Vikan


Vikan - 31.03.1977, Page 54

Vikan - 31.03.1977, Page 54
STJÖRNUSPÁ llrtílurinn 2l.mars 20.apríl Ttiburarnir 22.maí 2l.júni Barátta, sem þú stendur í, getur haft slœmar afleiðingar, ef þú nærð ekki yfirhöndinni. Smá- ástarævintýri, sem þú áttir endur fyrir löngu, gæti blossað upp á ný. Ennþá hefurðu ekki eygt þá lausn, sem hentar þér best, en ef þú fylgist vel með, hvað samstarfsmenn þínir hafa til mál- anna að leggja, gæti ræst úr hjá þér. Hlutir heimavið geta gert þér lífið afskap- lega hvimleitt. Reyndu að sýna eldri persónu þolinmæði. Taktu ekki stór- ákvarðanir varðandi framtiðina að svo komnu máli. kr;«hhinn 22.júní 23.júlí Vinur, sem þú hefur ekki séð óralengi, skýtur skyndilega upp kollinum og bið- ur þig einkennilegrar bónar. Visaðu hon- um ekki á bug, þú munt fá þennan greiða endurgoldinn. Ljóni*') 24.júlí 24.;ii»ús( Fjármálin eru í hættu hjá þér, ef þú varar þig ekki. Eyddu ekki of miklu i góðgerðarstarfsemi. Eitthvað óvænt mun henda þig á sunnu- dag. Ættingi, sem hefur dvalist erlendis um langt skeið, mun koma á heimili þitt, og færir það þér mikla gleði. Þú munt eignast nýjan, lang- þráðan hlut. Þú verður óhjá- kvæmilega að sinna hvimleiðum skyld- um. Reyndu að nota frítíma þinn til að heimsækja góðan vin, sem þú hefur vanrækt lengi. SporAtlrckinn 24.»kl. 2J.nó\. Persóna, nokkru yngri en þú, gerir þig að trúnaðarmanni sinum í máli, sem varðar hana mjög miklu. Reyndu að hjálpa henni eftir fremsta megni. HntJniHAurinn 24.n»%. 21.dcs>. Þú munt hitta gaml- an vin, sem hefur verið þér ofarlega í huga lengi. Endur- fundirnir verða ekki eins og þú bjóst við, en láttu ekki hug- fallast. SlciniJcilin 22.dcs. 20. jan. Bréf, sem þér berst, mun færa þér mikla gleði. Reyndu að ljúka verkefni, sem þú hefur dregið að sinna. Happatala er 12. Talnftbcrinn 2l.jan. V). fchr. Hlutur, sem þú tald- ir þig ekki geta eignast næstu árin, mun skyndilega verða þin eign. Farðu gætilega í um- ferðinni. Fiskarnir 20.fchr. 20.mars Gestur, sem þú færð á laugardag, mun valda þér mikilli gremju. Vertu samt kurteis og láttu ekki á neinu bera. Þér munu berast óvænt skilaboð. „Fyrirgefðu, en ég átti ekki von á því að sjá..að sjá þennan bil.” „Við skulum fá okkur kaffisopa,” sagði Rapa og leiddi mig inn á lögreglustöðina og þar inn í mannlausa skrifstofu. Því næst yfirgaf hann mig, sennilega til þess að sækja kaffi, en einnig, að ég held, af nærgætni. Þegar hann kom aftur var ég búin að jafna mig það mikið, að ég var reiðubúin að svara spumingum. En hann lagði enga fyrir mig, sagði einungis: „Bíl föður þíns hafði verið lagt nálægt höfninni við Xlendiflóa. Hann hlýtur að hafa siglt í kringum eyjuna og síðan lagt bátnum við festar hjá Ramla. Mér fannst það hyggilegast að taka bílinn í okkar umsjá. Ég minntist raunar á það við þig, að við værum með hann og nú höfum við lokið við að rannsaka hann.” Komið var með sterkt kaffi, og mér leið betur eftir að hafa drukkið einn bolla. „Hvers vegna hefur rannsóknin tekið svona langan tíma?” spurði ég. „Við þurftum að taka bílinn í sundur. En hafðu engar óhyggjur, við höfum ágæta bílaviðgerðar- menn í okkar þjónustu.” „Af hverju voruð þið að leita?” Rapa yppti öxlum; „Við vitum það eiginlega ekki, ungfrú Prescott. „Kannski eiturlýfjum?” sagði ég þreytulega. „Hversvegna heldurðu það?” „Eru það ekki alltaf eiturlyf nú til dags? Gefa þau ekki mest 1 aðra hönd og er ekki auðvelt að fela þau í bifreið?” „Heldurðu að faðir þinn hafi verið flæktur í eiturlyfjasmygl?” spurði lögregluforinginn. „Ég efast um, að faðir minn hafi smyglað nokkru um ævina, svaraði ég beisklega. „Ég býst heldur ekki við því,” sagði Raspa. „En hvers vegna þá allt þetta umstang?” „O, einungis venjubundin leit,” svaraði hann og yppti enn á ný öxlum. „Það hlýtur að vera fremur ovenjulegt að taka heilan bíl meira eða minna í sundur.” „Ekki endilega. Smygl er ávallt vandamál á svona eyju.” „Já, en þú sagðist ekki halda að faðir minn hafi verið smyglari.” 54VIKAN 13. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.