Vikan - 27.07.1978, Síða 6
Hvort hefur réttinn?
PÓSTIRIW
Að vera ungur og ]
ástfanginn... yf\
Kærí Póstur.
Ég œtla að biðja þig að reyna að svara fyrir mig einni
spurningu, sem virðist afar einföld, en engum bersaman
um svar við henni (af þeim, sem ég hef spurt). Þannig er
mál með vexti að ég á barn með strák, sem ég var með í
smátíma. Við vorum hvorki trúlofuð eða gift, og slitum
sambandinu skömmu eftir að ég varð ófrísk. Hann hefur
lítið sem ekkert gert til að hafa samband við barnið, en
núna er hann stöðugt að hringja til mín og hóta að taka
barnið af mér. Getur hann gert það? Fer ekki móðirin með
foreldravaldið þegar barnið er óskilgetið? Ég vona að þú
getir svarað þessu. Með fyrirfram þakklœti.
VN.
Mál sem þessi hafa verið til endurskoðunar hjá löggjafar-
valdinu nú um nokkurn tíma og hafa verið gefnar út nýjar
reglugerðir í því sambandi. Má örugglega segja, að fjallað sé
sérstaklega um hvert mál fyrir sig, en Pósturinn þorir að
fullyrða, að í þessu sambandi fengi barnsfaðirinn ekki
umráðarétt yfir barninu, þ.e.a.s. ef þú átt nána ættingja á lífi.
Kæri Póstur!
Mérfinnst þetta nú bara ekki
hægt. Ég skal segja þér að þú
birtir ekki síðasta bréf mitt.
Jœja, svo er nú mál með vexti,
að ég er með strák, sem er
alveg æðisgenginn. Hann er 15
ára. En það eru tveir strákar,
sem ég elska líka og báðir hafa
beðið mig að koma á fast. Þeir
eru 15 og 17 ára. En ég veit
varla hvern ég vil. Á ég að
taka alla eða halda mig við
einn, og hvern þá? Bæ, bæ,
Ein alveg ga ga.
Elsku Póstur
Ég er mjög spæld yfir því að
þú skyldir ekki birta síðasta
bréfið mitt. Og ég vonast til að
þú birtir þetta bréf. Jæja, það
er best að koma sér að efninu.
Fyrir um það bil hálfu ári var
ég með strák, sem ég var mjög
hrifin af. En þegar við vorum
búin að vera saman í tvo
mánuði, þá frétti ég að hann
væri með annarri stelpu líka.
Ég varð auðvitað öskuvond, og
sagði honum upp. Núna er ég
með öðrum strák á föstu og er
búin að vera lengi. En fyrir
stuttu hitti ég gamla gæjann,
sem sveik mig forðum daga.
Hann var þá ekki með neinni á
föstu og spurði mig, hvort ég
vildi vera með sér. Ég veit að
hann er mjög hrifinn af mér.
Ég er líka alveg ofsalega hrifin
af honum, en núna veit ég
ekki, hvortégáað hætta við
þann, sem ég er með, eða
gleyma hinum. Elsku Póstur,
viltu hjálpa mér. Hvort á ég að
gera? Ekki segja mér að gleyma
þeim báðum, því það get ég
Kæri Póstur!
Best að koma sér strax að
efninu. Það er þannig að ég er
með strák á föstu og er búin að
vera með honum nokkuð lengi.
Hann er sífellt fiktandi í öðrum
stelpum, og talar stundum ekki
I // lf
Kv firei
við mann heilu kvöldin. En svo
er hann líka stundum mjög
almennilegur. Hvað á ég að
gera? Ekki segja mér að segja
honum upp.
Rut.
Kæri Póstur!
Við erum hér tvær vinkonur,
sem erum alltaf saman, sem
sagt algjörar samlokur. Við
höfum aldrei skrifað þér áður,
en nú langar okkur að biðja
þig um að reyna að hjálpa
okkur við að leysa smá vanda-
mál. Við þekkjum tvo stráka,
sem eru ofsalega góðir vinir, og
eru þremur árum eldri en við.
Annar þeirra er í sama íþrótta-
félagi og við, og við þekkjum
hann þar af leiðandi mjög vel.
En hinn þekkjum við sama og
ekki neitt. Hann er með stelpu.
Við vitum að þetta eru mjög
finir strákar og langar okkur til
þess að kynnast þeim betur, en
við vitum ekki, hvernig við
eigum að fara að því. Hvað
myndir þú halda að við ættum
að gera?
XX44
Hæ, hæ, kœri Póstur!
Við erum hérna tvær
stelpur, sem eru báðar hrifnar
af sama stráknum, ?n erum svo
feimnarað við þorum ekki að
tala við hann. Við erum ekki
með sömu krökkum og hann
(klíkunni) því við kærum okkur
ekki um að vera reykjandi og
drekkandi úti á kvöldin, eins og
þau. Við erum í íþróttum.
Hann kemur stundum og talar
við okkur, en þá förum við
alltaf í burtu, því við erum svo
feimnar. Hann er hættur að
reykja og segist sjá eftir því að
hafa byrjað. Hann er duglegur
í skólanum, en er oftast með
„klíkunni." Góði Póstur, hvað
■ eigum við að gera?
Tvær ástfangnar.
Fimm ofanrituð bréf eru aðeins
lítill hluti af öllum þeim bréfum,
sem Póstinum berast í sam-
bandi við ástarmál unglinga.
Pósturinn er að vísu allur af
vilja gerður að hjálpa, en þar
sem hann treystir sér ekki til að
ráða öllum heilt á þessu sviði,
væri gaman að fá nokkrar línur
frá lesendum varðandi þessi
málefni. Oft á Pósturinn erfitt
með að setja sig inn í málin, þar
sem honum finnst oft vanta
nánari upplýsingar, en kannski
sjá lesendur betur en Pósturinn,
hvað best er að gera. Því gæti
verið gaman ef lesendur vildu
leggja orð í belg, því þessi bréf
eru svo keimlík.
Gagnrýni á
Vikuna
Kœri Póstur.
Mig langar að spyrja þig
nokkurra spurninga.
1. Hvenœr á Vikan afmæli á
þessu ári? 2. Erekki hægtað
hafa krossgátu í Vikunni, sem
er ekki svona létt eins og
barnakrossgátan, og ekki eins
erfið og fullorðinskróssgátan,
heldur á milli, t.d. fyrir
unglinga? 3. Er ekki hægt að
hafa Vikuna fjölbreytilegri en
vanalega, t.d. að hafa meira af
smásögum og viðtölum, sleppa
Jóni forstjóra og Labbakút-
unum og hafa eitthvað nýtt,
t.d. auglýsa þetta og hitt og
svoleiðis? Ég ætla ekki að
spyrja þig meira að sinni, en ég
vona að ég fái svör hjá hinum
háttvirta Pósti, og ég óska
honum alls hins besta.
Með kærri kveðju,
Ein kvefuð
P.S. Ég vona að Pósturinn
móðgist ekki, þótt ég segði þetta
um Vikuna, en þetta er mín
skoðun. Mér finnst margt vanta,
þó kaupi ég hana alltaf og mun
gera, ef hún batnar.
Pósturinn og við öll hin erum
ekkert á móti því, að lesendur
láti í sér heyra um efni og upp-
setningu Vikunnar, þvert á
móti er það okkur kærkomið að
heyra gagnrýnisraddir. Það er
þetta með krossgátuna. Við
erum lengi búin að velta
einhverjum slíkum möguleika
fyrir okkur, en eins og þú sérð,
6 VIKAN 30. TBL.