Vikan


Vikan - 27.07.1978, Blaðsíða 14

Vikan - 27.07.1978, Blaðsíða 14
=*$-= í vor komu hingað til landsfjórir Englendingar, sem voru í breska hernum á íslandi. Blaðamaður Vikunnar átti stutt spjall við þá, og í framhaldi af því, leitaði hann til fleiri aðila og bað þá að rifja upp þessa sögulegu tíma. Við höldum okkur einkum við Mosfellssveitina í þessari frásögn okkar, sem við verðum að deila niður á tvö eða þrjú blöð. Okkur hefur tekist að útvega allmargar myndir frá þessum tíma, sem ekki hafa birst annars staðar, og við birtum líka myndir af stríðsmenjum, sem enn er að finna í Mosfells- sveitinni. Við vonum að lesendur hafi bæði gagn og gaman af Viö og við koma hingað til lands erlendir ferðamenn, sem eru bundnir landinu á annan hátt en flestir aðrir ferðamenn. Það er fólk, sem dvaldi hér á stríðsárunum, og kemur svo hingað aftur til að sjá hvernig hér er umhorfs á friðartímum. Ég hef hitt einn slíkan hóp, bandarískar hjúkrunar- konur, sem flestar höfðu starfað í Helga- fellskamp í Mosfellssveit, sem var stærsti hermannaspítali hérlendis. Ég á reyndar margar minningar þaðan, þar sem ég seldi blaðið Daily Post þar sem barn. FJÓRIR BRESKRIHERMENN í HEIMSÓKN í apríllok frétti ég af tilviljun, að hér á landi væru staddir ásamt konum sínum fjórir Englendingar, sem dvöldu hér á stríðs- árunum. Ég fór á fund þeirra, en hann var alltof stuttur, þar sem ekki var nema ein klukkustund til brottfarar. Á þessum stutta tíma rifjaðist margt upp frá þessum árum, og mér datt í hug, að lesendur Vikunnar kynnu að hafa gaman af dálitlu spjalli um þessa tíma. Englendingarnir fjórir, sem ég hitti, heita Vernon Milne, Cyril Amos. Donald Collick og Kenneth Masters. Þeir voru á aldrinum 20 til 23ja ára þegar þeir komu hingað til lands á tímabilinu september, október árið 1940. Einn var i kamp við Baldurshaga, tveir í kamp við Álafoss og einn í kamp i Borgarnesi. Þeir hafa allir verið í samtökum fyrrverandi hermanna síðan stríði lauk, og hittist 100 til 120 manna hópur á hverju ári til að minnast þessa tima. Af þessum hópi eru 30-4Q sem voru á íslandi. Fjórmenningarnir eru frá Suður Englandi, nánar tiltekið frá héruðunum Canterbury og Ashford. Donald Collick, sem var fararstjóri í þessari ferð, er bóndi, Vernon Milne er eigandi að bílaverkstæði, Cyril Amos er símvirki og Kenneth Masters er rafvirki. HÉLDU AÐ ÞEIR VÆRU AÐ FARA TIL MIÐJARÐARHAFSLANDA „Við vorum góðir og hugrakkir her- menn,” sögðu þeir brosandi, „og þegar við vorum skráðir í herinn, þá bjuggumst við við að verða sendir til Miðjarðarhafslanda. Við gengum um borð í herflutningaskip í Skotlandi, léttklæddir og i góðu skapi, því við héldum einhvernveginn að ferðinni væri heitið til Ítalíu. Þegar við komum um borð var okkur afhentur kuldaklæðnaður, en samt vissum við ekki enn hvert ferðinni var heitið. Okkur grunaði samt hvað var í vændum. Þegar við komum hingað vorum við vissulega á framandi slóðum, og ekki er hægt að segja að okkur hafi verið vel tekið í byrjun, enda stóð málakunnátta kannski helst í vegi fyrir því. íslendingar voru samt ekki óvingjarnlegir, en einhvern veginn var erfitt að ná sambandi við flest fólkið. Við fréttum svo síðar, að skipið, sem flutti okkur til íslands, var skotið í kaf á leiðinni til baka af þýskum kafbáti.” Donald Collins, fararstjórinn, sagðist fyrst hafa verið gripinn óskaplegri heimþrá. Hann sagðist alltaf muna eftir því er hann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.