Vikan - 27.07.1978, Qupperneq 25
mitt og náði i ljósmyndina, sem Engles
hafði látiðmigfá.
Þær voru mjög likar. En ég var ekki
viss. Myndin var gömul og máð, og
stúlkan, sem hafði skrifað sig Cörlu, var
með styttra hár. En þetta var sami
svipurinn. Ég leit aftur upp. Hún var
með mikið dökkt hár, sem féll fagurlega
niður á axlir hennar. Það var eitthvað
dýrslegt við hana. Hún var ekki ung og
heldur ekki sérlega falleg. Hún var með
heldur þykkar varir og með hrukkur í
augnakrókunum. En samt var hún
töfrandi. Hún vakti einkennilega til-
finningar i brjósti minu. Hún horfði á
mig. Hún virtist horfa á mig, vegna þess
hún hafði ekki annað að gera, eins og
dýr, sem er að leita sér að einhverju til
þess að leika sér að.
„Góði nei,” sagði Joe og klappaði mér
á öxlina. „Ertu að reyna að afklæða
þessa með augunum, eða hvað?”
„Svona nú, engan ruddaskap,” sagði
ég. Ég hálfskammaðist min. Joe var
alltof enskur I sér. „Hversvegna þarftu
nú að vera svona ruddalegur — og í
svona góðu veðri.”
„Þú leist á hana, eins og þú ætlaðir að
éta hana upp til agna,” svaraði hann.
.Þessi Valdini er víst kærastinn hennar.
Þetta er hættulegt fólk. Þetta er ekki sið-
menntað fólk. Mér líst ekkert á þennan
karl.” Hann hafði rétt fyrir sér.
Maðurinn, sent sat andspænis henni, var
Valdini. Hann sneri við okkur baki.
„Láttu nú ekki svona, Joe," sagði ég.
Síðan sýndi ég honum myndina, en hélt
þumalfingrinum yfir því, sem skrifað var
á hana. „Er þetta sama stúlkan?” spurði
ég.
Hann starði á myndina. „Hmmm.
Gæti verið. Hvar náðirðu í þessa
mynd?”
„Þetta er itölsk leikkona,” laug ég.
„Ég kynntist henni i Napoli. Það er bara
ekki víst, að þetta sé sama stúlkan.”
„Ég veit ekki," svaraði hann. „Og satt
að segja, kæri vinur, er mér alveg sama.
Það er liklegast best að spyrja hana að
þv:”
Auðvitað skildi Joe ekki vandann.
Engles hafði sagt, að ég ætti ekki að gera
neit. En ég varð að vita vissu mina. Það
var eitthvað einkennilegt, að hún skyldi
einmitt koma þangað þennan sama dag.
En ég var næstum viss um.að þetta væri
sama stúlkan. Ég herti upp hugann og
stóð á fætur. „Þú hefur rétt fyrir þér. Ég
ætla að ganga úr kugga um þetta.”
„Passaðu þig að stiga ekki ofan á lík-
þornin á honum þessum. Mér list ekkert
á hann.”
Hún hafði séð, að ég var risinn á
fætur, og hún horfði á mig ganga i áttina
til sin. Valdini leit upp, þegar ég kom að
borðinu. „Afsakið,” sagði ég, „en ég er
næstum viss um, að við höfum sést
áður.”
Það varð löng þögn. Hún horfði á
mig. Valdini líka. Síðan brosti hún til
mín. „Það held ég ekki,” sagði hún á
ensku. Rödd hennar var djúp og mjúk.
Eins og malandi köttur. „En mér list vel
á yður. Setjist niður og segið mér,
hvernig við kynntumst.”
Valdini, sem hafði horft á mig fullur
tortryggni, stökk nú á fætur. Hann náði
í stól handa mér.
„Jæja,” sagði hún, þegar ég var
sestur, „hvar hittumst við fyrst?”
Ég hikaði. Augu hennar voru myrk,
og hún horfði á mig og virtist skemmta
sér prýðilega. ,;Ég held þér heitið Carla,”
sagði ég.
Augu hennar urðu allt í einu köld.
Einsogá myndinni.
„Ég er hrædd um, að þér hafið rangt
fyrir yður,” sagði hún kuldalega.
Valdini reyndi að bjarga henni. „Má
ég kynna ykkur. Þetta er Forelli
greifynja. Þetta er herra Blair. Hann er
frá ensku kvikmyndafyrirtæki.” Ég velti
þvi fyrir mér, hvernig hann hefði komist
að því og hversvegna hann hefði gert
sér það ómak að komast að þvi.
„Ég biðst afsökunar,” sagði ég. „Ég
hélt, aðeftirnafn yðar væri Rometta.”
Ég var sannfærður um, að hún greip
andann á lofti. En það var ekki að sjá á
augum hennar. Hún virtist alveg eðlileg.
„Jæja, þá vitið þér, að þér hafið rangt
fyrir yður, herra Blair,” sagði hún.
Ég var enn ekki viss. Ég náði í
myndina og sýndi henni. „Þetta er að
minnsta kosti mynd af yður,” sagði ég.
Ég hélt þumalfingrinum yfir skriftinni.
Hún hallaði sér áfram. „Hvar náðuð
þér í þessa mynd?” Rödd hennar var
harðneskjuleg. Síðan sagði hún blíðlega.
„Nei, þér sjáið, að þetta er ekki mynd af
mér. En þetta er einkennilegt. Þetta er
mjög líkt mér. Leyfið mér að sjá mynd-
ina.” Hún rétti höndina i áttina til mín.
Framhald i nœsia blaði.
ERTHJ
VATNSBERI?
Eða notarþú ferska vatnið í krananum heima?
í
l
i
Hvers vegna þykkni?
Floridana appelsínuþykknið losar þig við
allan óþarfa vatnsburð og sparar þér
geymslupláss.
Þú blandar því fersku vatninu í
þykknið þegar þér hentar. Útkoman úr 1/4
lítra af þykkni verður 1 lítri af ódýrari,
hreinum og svalandi C-vítamínríkum
appelsínusafa.
Þú gerir létt og hagkvæm innkaup til langs
tima með FLORIDANA þykkni!
Floridana appelsínuþykknið er G-vara
sem tryggir fersk bragðgceði og varðveislu
C-vítamínsins mánuðum saman.
ENGUM SYKRI, LIT EÐA ROTVARNAR-
EFNUMERBÆTTÍ FLORIDANA.
MJÓLKURSAMSALAN í REYKJAVÍK
30. TBL.VIKAN 25