Vikan


Vikan - 27.07.1978, Page 26

Vikan - 27.07.1978, Page 26
„Alltafmá lœra eitthvað afHallgrími Péturssyni ” (Megas glottir viö tönrí) & ég finn þessa fjöld af fótum smá feta létt undur létt um líkama minn læöast svo ég vær ekki vakni & ég læt sem mig langi lítið til langi í fátt afar fátt sem fengið gæti ég hér —fráleitt því mér býðst síst neitt betra þar spáðu í mig grannskoða hug minn — ég hverf hugleiddu að ég er ekki nú ég var mundu að ég aðeins var & ég mun vera því ég er ekki ég égerannar* Nýtt útlit þitt, Megas, hvítföt, slifsi, skyrta í stíl og háhælaðir skór. Ertu þar ekkiþúsjálfur, heldur einhver annar? Ég myndi nú heldur tengja þetta nýja útlit mitt síðasta laginu á plötunni Á bleikum náttkjólum. Vögguljóð á tólftu hæð. Hvernig þá? í fyrsta lagi er þar mjög einfaldur undirleikur. Og textinn er ekki nema la la la. Það er barnalag. Vögguljóð. Hvar fléttast þá tauið inn í nýjustu plötuna, Nú er ég klæddur og kominn á ról. Ertu bara að túlka nafn plötunnar? Nei, ekki endilega. Fyrst í stað átti platan alls ekki að heita þessu nafni heldur í grænni lautu. Þegar til kom þótti nafnið of líkt nafni annarrar plötu, sem Iðunn gaf út. Við vorum búnir að ákveða nýja útlitið áður en nýja nafnið kom til. Hvers hugmynd var hún? Það var Jóhann Páll (Valdimarsson)... ... sem ætlaði þá að dressa þig upp i stælinn? Ja, þetta er nú ekki beinlínis stællin, sko. Þetta er ekki tískan, sem viðgengst í dag, nema kannski háhæluðu skórnir. Það er annað sem kemur til. Yfirleitt hafa umslögin á plötunum mínum verið heldur grimmdarleg. Nema kannski á Milli- lendingu. Myndin á henni var dálítið sæt, frekar hippaleg. Svona flower power, Ég geri því skóna að umslögin hafi heldur orðið til þess að draga úr sölunni frekar en hitt. Það er kannski óþarfi að fara öllu meira út í þessa sálma. Fyrst og fremst hefur það vakað fyrir okkur að koma fólki á óvart. Ég reikna með því að þegar •Fátækleg kveðjuorð (til—) (t) Maunús Þ6r Jftnsson Iðunn næsta platan mín kemur út, verði um- slagið utan um hana í hinum stílnum, skilurðu. Ef ég verð búinn að ná á mitt band ákveðnum hópi þá, má búast við því að þeir verði farnir að lita mig aðeins öðrum augum en áður. Þó að ég segi sjálfur frá, þá er söngurinn mjög fallegur á Nú er ég klæddur og kominn á ról. Einmitt. Ef við snúum okkur frá umbúðunum að efninu, þá valdir þú öll lögin á plötuna, ekki satt? Mmmm. Jú. Hvernig varsíðan verkaskiptingu við útsetningu háttað? Náttúrlega hefur fiðlungurinn veg og vanda af tónlistinni. Ég gaf Guðnýju ákveðna línu. Ef mörg vers eru til að mynda í lagi, þá spilar hún laglínuna með mér í fyrsta versinu og síðan impróviserar hún. Svo er einnig að finna á plötunni ótal útsetningar, sem Guðný skrifaði sjálf. Scott Gleckler var gifurlega mikið í útsetningunum. Þess vegna varð langtum meiri vinna við plötuna en áætlunin sagði í upphafi. — En þetta er fyrst og fremst eins konar Odysseifskviða i gegnum dag hjá krakka. í upphafi valdi ég þau lög, sem ég þekkti þegar ég var krakki sjálfur. Síðan bar ég það val undir unga fólkið til þess að athuga hvort nokkuð af því væri orðið úrelt. Það reyndist bara hreint ekki vera. Þetta gengur enn? Já, þetta gengur enn. — Sko, valið hjá mér miðaðist aðallega við að setja á vinýl sem sagt ófínu barnalögin. Og er mjög heiðarlegur með melódíur og sem til að mynda ekki nema eitt lag sjálfur. Það er við Piss, piss og pelamál. Mér tókst ekki að finna neitt lag við það. Er það eins konar verndunarsjónarmið, sem ræðurþví að þú velur óflnu barna- lögin? Nei, engan veginn. Hvernig er uppbyggingu plötunnar háttað? í raun og veru er uppbyggingin af- skaplega einföld. Platan skiptist í fjóra kafla eins og sinfóníur. Hún hefst að morgni dags. Síðan fer barnið út í öðrum þætti. Þriðji þátturinn er leiksöngvar og loks er fjórði þátturinn helgaður kvöldinu með átta klukkuslögum og löggan kemur þar inn í. Afi gamli kemur þar til sögunnar og hræðir barnið og loks endar platan á Bí bí og blaka. Þessi plata verður sennilega ekki spiluð mikið í útvarpinu, því að hver kafli er svo langur. En maður vonar að nýja ímyndin ýti eitthvað undir söluna og geri manni kleift að koma einhverju hressilegu út með haustinu. Þú hefur nú sungið inn á flmm stórar plötur og eina litla. Er Nú er ég klæddur og kominn á ról í samhengi við þær plötur sem þú hefur samið tónlistina á sjálfur? 26 VIKAN 30. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.