Vikan


Vikan - 27.07.1978, Page 27

Vikan - 27.07.1978, Page 27
Ja, það er nú það. Er hún útúrdúr eða í réttu samhengi? Það er náttúrlega allt annað efni, sem tekið er fyrir. Ég vil eiginlega ekkert fullyrða um samhengið. Þessi plata var ákaflega lærdómsrík, — ég er margs visari eftir að hafa uhnið að henni. Ef af næstu plötu verður, þá virkar hún örugglega í réttu samhengi við Á bleikum náttkjólum. Næsta plata segirðu. Já, hún á að verða heilt verk á tveimur plötum. Við höfum sótt um að fá Þjóðleikhúsið til afnota tvö kvöld í september og taka verkið upp þar. Vegna sífelldra frestana á fundum Þjóðleikhús- ráðs hefur dregist að við fáum svar og nú er svo komið að ídean er að falla um sjálfa sig vegna tímaskorts. Segðu mér meira frá verkinu. Það er alveg fullbúið til flutnings, hvert einasta lag á sinum stað. Hefur ekkert af þessum lögum komið út á plötum áður? Nei. Ég hef þó flutt nokkur þeirra opinberlega. Hugmyndin að verkinu er frá því um 1973. Síðan hef ég bætt nokkrum lögum inní. Það er vel þekkt erlendis að músíkantar séu með gömul lög á dagskrá. Samanber Bítlarnir til að mynda. Þetta eru ekki alltaf glæný lög þegar þau koma fyrir eyru fólks. Það er annar íslenskur tónlistarmaður, sem sendir dálítið frá sér af gömlum lögum, Jóhann Helgason. Ekki ber á öðru en að þau standist tímans tönn. Nú er það já. Já, lög halda alveg gæðum sínum. En þegar maður er kominn í stúdióið þá endurnýjast þau. Maður fær ákveðna músíkanta og er þá ekki að ignorera þeirra tillögur. Hvernig hljómsveit á að leika undir hjá þér í verkinu? Ég er með ákveðna tónlistarmenn í huga, en ekki er vert að vera að nafn- greina þá, þar sem óvíst er að af þessu verði. Ég get þó nefnt að Karl Sig- hvatsson er búinn að gangast inn á að verða tónmeistari hjá mér. Ætlarðu að hafa blástur? Ég held naumast að hægt verði að koma því við. Að vísu eru þarna eitt eða tvö lög, sem blástur er í, en fyrst þau eru ekki fleiri held ég naumast að ástæða sé til að vera að kosta þvi til að hafa blásara með á hljómleikunum. Það er jú alltaf hægt að bæta blásturshljóðfærunum inn eftir á, en stefnan er sú að hafa plöturnar alveg eins og þær koma fyrir á hljóm- leikunum. Ég hefði nú helst viljað gera tvær útgáfur á verkinu, bæði í stúdíói og á hljómleikum. En því fylgir allt of mikill kostnaður. Ef það verður tekið upp í Þjóðleikhúsinu fara engir þrjú hundruð tímar i það. Um hvað á verkið að fjalla? Ja. (Dálítil þögn). Það svona byrjar á hálfgerðum hundingshætti, en síðan eru í skemmtilegu og óvenjulega hreinskilnu viðtali við Ásgeir Tómasson, blaðamann, rrfjar Megas upp fyrri tið, greinir frá verkum sínum og segir frá framtíðarverkefnum. áheyrendur dregnir niður í alveg botn- laust svað ömurleika og örvæntingar. Tvö lög eru meira að segja sungin af dauðum manni. Svo fer það að lyftast svona þegar komið er aðeins yfir á plötu númer tvö. Verkið endar svo á mjög hressilegu og bjartsýnu lagi. Hvaða lag er það. ? Það heitir Hvell-Geiri. Hver er dauði maðurinn, sem syngur lögin tvö í svaðinu botnlausa? Það er ég. Ertu að semja Paradice Lost upp á nýtt eða eitthvað svoleiðis? Þetta er frekar Paradísarheimt. Já, það má segja að hvort tveggja komi fyrir, Paradísarmissir og Paradísarheimt. En þú ert ekki að feta í fótspor Miltons, er það? Eeeee — neeei (hikandi). Textagerðin er slang. Það er voða mikið slang í þessu. Fyrsta lagið á plötunni er, lagið þarna, Ef þú smælar framan i heiminn ... Efþú smælar fram í heiminn þá smælar heimurinn framan í þig. Yrkirðu þetta samkvæmt eigin reynslu? Ja, þetta er eins og ég sagði áðan, hundingsháttur. Annars er þetta í annað skiptið, sem ég er spurður út í þetta. Það voru krakkarnir á Upptökuheimilinu í Kópavogi, sem spurðu fyrst. Það er nú eiginlega hálf skritið að aðrir skuli ekki hafa haft orð á þessu. Fólk telur það sjálfsagt að þú sért að fara með öfugmæli þarna. Já. Svo er nú líka annað að orðið að smœla hefur allt aðra merkingu en að brosa. Nú er ég klæddur og kominn á ról er fyrsta platan þín, þarsem þú syngurekki eigin Ijóð og lög. Hefurðu hug á að gera aðra slíka? Sjálfur hefurðu samið einhver reiðinnar býsn, sem þú hefur enn ekki komið frá þér. Já, já. Ég á talsvert mikið af lögum, sem ég hef samið við annarra ljóð. Svo hef ég áhuga á að syngja lög eftir aðra, en kannski ekki í nálægri framtíð. Hvað ætlarðu að taka fyrir á þeirri plötu? Sveitarómantík í skólaljóðastíl? Ég er nú lítið byrjaður að hugsa fyrir slíkri plötu. Ég reikna þó með þvi að gamlir slagarar verði fyrir valinu, þegar þar að kemur. Framhald á bls. 30. 30. TBL.VIKAN 27

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.