Vikan - 27.07.1978, Qupperneq 32
Einfaldur svefn-
setbálkur
í&SmSM: "v"
* S'ý-'r-ií'. •». +
«*
, , !
■■
. . , ■
Efniskaup:
Furuborð, hefluð eða óhefluð eftir ykkar
ósk.
1" x 5” 10 stk., lengd 3.60 m (í fætur.
gafl- og rúmfjalir).
1" x 5” I stk„ lengd 4.20 m (hliðar-
borðin).
I pakkid gross) 2" x 10 „undirsinkaðar"
skrúfur.
Nauðsynleg áhöld:
Sög
Skrúfjárn
Tommustokkur eða málband
Vinkill
E.t.v. borvél og 5 mm bor „undir-
sinkaður”.
Gott rúmstæði er mikið þarfaþing i
öllum hýbýlum, og ekki ætti að væsa um
þá. sem fá afnot af þessum skemmtilega
bálki.
Eins og myndirnar bera með sér. er
smiðin leikur einn fyrir alla, sem áhuga
hafa.
Dýnur og púða má láta skera úr
svampi eftir máli, og ef þið eruð leikin á
saumavélina. þá sparið þið ykkur drj-
úgan skilding með því að sauma sjálf
utan um svampinn. En að sjálfsögðu er
einnig hægt að fá það gert, þar sem
svampurinn er keyptur.
Svona bálkur hentar ágætlega, þar
sem húsrými er litið. og getur þjónað
sem borð jafnframt til dærnis i herbergi
unglingsins, í fyrstu ibúðina eða í sumar-
bústaðinn.
Vinnulýsing:
Málin, sem hér eru gefin, eru bara
viðmiðun, og þið getið breytt þeim eftir
eigin þörfum.
Þið byrjið á þvi að saga niður efni i
fæturna. og eins og sést á teikningunni,
er hver fótur gerður úr tveimur 40 sm
stykkjum. Stykkin eru sett í vinkil og
skrúfuð þannig saman.
Hliðar- og gaflborðin eru skrúfuð
utan á fæturna, takið eftir, að hliðar-
borðin ganga út yfir fæturna og endann
á gaflborðunum. Hliðarborðin eru
■ skrúfuð á breiðari hluta fótanna. Þetta
sést vel, ef þið skoðið teikninguna.
Tilhagræðis er rétt að gera pappamót af,
hvar skrúfugötin koma á borðin, og
þarf þá ekki að mæla nema eii.u sinni
fyrir skrúfugötunum. Heppilegast er. að
tveir hjálpist að við að setja grindina
saman. og heldur annar þá á móti, þegar
skrúfaðer.
Þegar komið er að þvi að skrúfa rúm-
fjalirnar ofan á, skuluð þið byrja á að
sníða eitt borð i nákvæmlega réttri lengd