Vikan - 27.07.1978, Side 41
POPPFRÆÐIRIT VIKUNNAR: HALLDÓR ANDRÉSSON
O
GRACE SLICK:
Jefferson /Airplane
Starship
II. HLUTI
Grace Wong fæddist í Chicago 30. október 1939. Grace hafði gifst
kvikmyndagerðarmanninum Jerry Slick 1964 og verið ljósmyndafyrirsæta,
áður en þau stofnuðu hljómsveitina Great Society í ágúst 1965 ásamt
Darby Slick (gítar), David Minor (gítar) og Peter Vandegilder (bassagítar).
Great Society sendi frá sér eina litla plötu hjá North Beach, „Somebody
To Love”/„Free Advice,” en eftir að hljómsveitin hætti i september 1966
komu út tvær plötur hjá Columbia: „Conspicious Only In It’s Absence,"
sem kom út i mars 1968, og „How It Was”, sem kom út í september 1968.
í október kom trommuleikarinn Spencer Dryden, en hinn eftirsótti
stúdiótrymbill Earl Palmer mælti með honum.
Spencer Dryden fæddist i New York 7. apríl 1938. Dryden var upp-
haflega jasstrymbill með jassistum á borð við Charles Loyd, en stofnaði
hljómsveitina Ashes 1965 og lék með henni, þar til hann var kallaður til
liðs við Jefferson Airplane, en Ashes breytti skömmu síðar nafni sinu í
Peanut Butter Conspiracy og náði nokkrum vinsældum.
1 janúar 1967 fór Jefferson Airplane i fyrsta sinn í hljómleikaferð til
austurstrandar Bandarikjanna, og i júni ’67 sló hún i gegn i Montrey
Festival. Skömmu siðar tók Bill Graham, eigandi Fillmore húsanna, við
umboði fyrir hljómsveitina af Matthew Katz, en vék nokkru síðar fyrir
Bill Thompson, sem hafði verið aðstoðar-umboðsmaður þeirra. Velgengni
með lögum Grace Slick, „Somebody To. Love” og „White Rabbit” í mai
’67 og september ’67 hafði þau áhrif, að dró úr æftngum og rifrildi upp-
hófst við RCA.
Breiðskifur þeirra voru hafnar upp til skýjanna: „Surrealistic Pillow” i
febrúar 1967 með lögum eins og „Somebody To Love,” „White Rabbit"
og „Plastic Fantastic Lover”, „After Bathing At Baxters,” sem kom út í
desember 1967 með lögum eins og „Martha” og „Ballad Of You & Me
& Poone,” i september 1968 kom svo „Crown Of Creation” með lög eins
og „Lather,” „Triad,” og „Greasy Heart,” og í mars 1969 kom út hljóm-
leikaplatan „Bless It’s Pointed Little Head” með nokkrum af vinsælustu lögum
þeirra.
Haustið 1968 byrjuðu Jorma Kaukonen og Jack Casady að koma fram
undir samheitinu Hot Shit, sem RCA mótmælti harðlega, og þeir urðu að
breyta seinni helmingnum í Thuna, svo úr varð Hot Tuna. Hot Tuna var
i fyrstu bara þeir tveir, en þar sem þeir léku annað hvort á undan Jef-
ferson Airplane á hljómleikum, eða léku sem innskot, var liðskipan mjög
flöktandi, og meðal meðlima fyrstu mánuðina voru Marty Balin, Paul
Ziegler (gítar), Will Scarlett (munnharpa) og Joey Covington (tromm-
ur). í mars 1970 hætti Spencer Dryden í Jefferson Airplane eftir rifrildi
við Marty Balin um aukalög og peninga, en hann var að auki per-
sónulegur umboðsmaður Grace Slick. Dryden gekk til liðs við New
Riders og the Purple Sage sem trymbill þeirra, en er nú umboðsmaður
þeirra.
í stað Drydens kom Joey Covington, sem hafði þá leikið með Hot
Tuna nokkurn tíma, svo hann þótti tilvalinn i stólinn. Covington hafði
áður verið í hljómsveit, sem hét TSONG, og þar áður hafði hann gefið
litla sólóplötu með hjálp Kims Fowley („Boris The Spider”) Auk þess
hafði Covington leikið á slagverk í „Volunteers” og á litlu plötunni
„Have You Seen The Saucers.” Þegar Jefferson Airplane komu til
Bretlands 1970, voru vinsældir hljómsveitarinnar orðnir allverulegar
þar, og viðtöl við meðlimina þöktu síður poppfrettablaðanna. Eitt
viðtalanna við Grace Slick hefur siðar orðið frægt meðal aðdáenda
hljómsveitarinnar fyrir setningar eins og: „Fyrirsætustarfið var
þreytandi, þvi ég þurfti eiliflega að hafa áhyggjur af tönnunum mínum,”
„Ég er ómöguleg í íþróttum, einu íþróttirnar, sem ég er góð i eru þessar
sem maður gerir liggjandi,” „Áður en viö stofnuðum „Great Society,
gerðum við Jerry kvikmyndir og ræktuðum dóp úti i garði og „Ég hélt, að
það gæti verið gaman að lauma „sýru út í teið hjá Triciu Nixon.”(Grace
og Tricia voru saman í skóla).
í nóvember 1970 komu út tvær plötur frá Jefferson Airplane: „The
Worst Of Jefferson Airplane,” samansafn nokkurra hornsteina í tónlistar-
ferli þeirra fram til þess tíma, þó án „Mexico” og „Have You Seen The
Saucers?’ ’ og sólóplata Pauls Kantner (& Jefferson Starship): „It’s A
Fresh Wind That Blows Against The Empire.” Á henni eru allir meðlimir
Jefferson Airplane sem gestir, auk nokkurra annarra West Coast lista-
manna undir samnefninu Jefferson Starship. — Platan fjallar einmitt um
Jefferson geimfarið, sem er svar hans við líffræðilegum vandamálum
heimsins. Platan var tilnefnd til Hugo verðlaunanna, sem veitt ern
30. TBL.VIKAN 41