Vikan - 27.07.1978, Qupperneq 45
■’f*
n
Túnfiskur de Luxe'
2 dósir túnfiskur
200 gr rækjur
1 dós strengbaunir
3 tómatar
100 gr mæjones
1-2 msk. rjómi
Paprika
Salt / pipar
2 harðsoðin egg
Svartar olífur eða papriku-
ræmur úr dós.
Plokkið túnfiskinn í sundur og
leggið á fat, raðið rækjum,
baunum og tómötum i kring.
Hrærið mæjonesið með rjóma
og kryddið með papriku, salti og
pipar. Breiðið sósuna yfir
túnfiskinn og skreytið með
eggjum, svörtum olífum eða
paprikuræmum. Berið ristað
brauð eða snittubrauð með.
Sumarreitur á
svölunum
Þessi mynd sýnir svo ekki verð-
ur um villst, að auðveldlega má
gera litinn sumarreit á svöl-
unum, jafnvel þótt litlar séu.
1. Svona mottur hafa fengist í
Gjafahúsinu, Skólavörðustíg,
Hver ferningur er sa. 30 x 30.
Hér eru notaðir 4 ferningar í
breidd og 10 í lengd.
2. Stóllinn er þægilegur, með
þykkri bólstraðri dýnu. Þið getið
jafnvel notað gamlan stól og
útbúið dýnuna sjálf. Annars fást
víða i verslunum, sem versla
með útilegu- og sumarvarning,
allskonar gerðir af stólum, litlum
og stórum, sem henta á svalir og
í garða.
3. Karfa, sem sérstaklega er
notuð til að hafa með út á svalir
á góðum sumardegi. í körfunni
er það, sem við hugsanlega
þurfum á að halda allan daginn,
svo ekki er þörf á að hlaupa
alltaf inn til að ná í þetta og hitt,
því sólin sést svo sjaldan að við
viljum ekki missa af henni.
4. Lampi á svölum, þegar fer
að skyggja og veður er gott, því
ekki að kveikja á kertaljósi eða
lampa og fá sér kaffi úti á svöl-
um?
5. Gamlar krukkur og krúsir
eru hér notuð undir margskonar
gróður.
6. Fallegt er að láta plöntur
vaxa upp eftir veggjum á
svölunum. Hér er um að ræða
tómatplöntu.
7. í staðinn fyrir venjulega
sólhlíf, er notuð kínversk
pappírssólhlíf, sem er lakkborin.
8. Borðiðer úrfuru.
Drekktu vítamínin
Fáðu þér styrkjandi ávaxta- eða
grænmetisdrykk, ef þú ett þreytt
og illa uplögð. Allskonar slíkir
drykkir fást i verslunum, að vísu
frekar dýrir, en hollir og góðir.
Það er heilmikið vítamín í
gulrótasafa.
30. TBL.VIKAN 45