Vikan


Vikan - 08.03.1979, Page 12

Vikan - 08.03.1979, Page 12
Hreint, hvað sem það kostar? Loksins er hún komin, bókin, sem á að frelsa okkur frá slæmri samvisku sem húsmóður. Hún heitir: „Hreint, hvað sem það kostar" og kemur frá sænsku neytendasamtökunum. Nú á þvottafatan að standa í skápnum, þangað til okkur langar til að nota hana. Annars eigum við að gera það sem okkur langar til: Lesa bækur, heimsækja vini, fara í bíó, í stuttu máli — allt sem við höfum hingað til ekki gefið okkur tíma til. Þurfi að ræsta á öll fjölskyldan að hjálpa til. Konur verða að læra að gera kröfur. Ekki aðeins til fjölskyldunnar, heldur líka byggingarmeistara, húsgagna- og efna- framleiðenda og markaðsstjóra. í viðbót við þetta munum við héðan í frá gagnrýna alla, sem reyna að fá okkur til að trúa því, að tandurhreint hús sé velheppnað heimili. Það er þreytandi og leiðinlegt að ræsta. Þetta er álit flestra þeirra 110 heimilismanna, sem sænsku neytendasamtökin töluðu við. Könnunin sýndi lika að enn fer alveg jafnmikill tími til heimilisstarfa og í kringum 1950 þrátt fyrir að nú eru mun meiri möguleikar á að létta heimilisstörfin og spara þannig tíma. Ástæðan fyrir þessari tíma- eyðslu getur verið uppgjöf. Hafi konan ekki tækifæri til að starfa utan heimilisins, stunda skóla- göngu eða önnur áhugamál — af hverju á hún þá að einfalda og skipuleggja heimilisstörfin? Það er konan, sem þrífur Könnunin sýndi að tíminn sem karlmenn eyða við hrein- gerningar er þrítugasti partur af þeim tíma sem konur eyða við sömu störf. 13% af öllum heimilisstörfum konunnar voru ræstingar. Þrátt fyrir að flestum þættu þær leiðinlegar höfðu aðeins 23% reynt að einfalda þær. Þær konur er tóku þátt i könnuninni eyddu yfirleitt átta tímum á dag til heimilisstarfa og þremur timum í vinnu utan heimilis. Um það bil helmingur þessara kvenna stundaði vinnu utan heimilisins. Karlmennirnir eyddu sjö tímum á dag í vinnu utan heimilisins og tveimur timum til heimilisstarfa. Útivinnandi konur notuðu um 25% minni tíma til heimilis- starfa en konur sem ekki unnu úti. Þetta má að hluta til skýra með því, að það er minna að gera á heimilinu ef heimilisfólk er svo lítið heima. (Minni uppþvottur, minni þrif og minni barnagæsla, ef barnið er í leikskóla). Útivinnandi konur vinna einnig ef til vill skipulegar að heimilisstörfunum, og þær neyðast til að leggja minni áherslu á útlit heimilisins. Hvað karlmennina snertir skipti litlu sem engu máli hvort konan vann úti eða var heima. Sérstakir erf iðleikar Ein af spurningunum í könn- uninni var, hvort eitthvað væri í íbúðinni sem erfitt væri að halda hreinu. Næstum 70% sögðu að þær litu á vissa staði sem sér- staklega erfiða: Það var erfitt að komast til að þrífa bak við elda- vélina og einnig var erfitt að þrífa loftræstinguna fyrir ofan hana. Fituleifar voru alls staðar til vandræða í eldhúsinu, en þó sérstaklega kringum eldavélina vegna slæmrar loftræstingar. í baðherberginu var erfitt að þrífa undir baðkerinu og i hornunum á salernisskálinni. Plast í dyra- og gluggalistum, glerhurðir, eldhússkápar, sem ekki ná alveg upp i loft, húsgögn, sem erfitt var að flytja til, eða svo lág að vont var að ná undir, voru líka til trafala við ræstingu. Þeir sem höfðu reynt að ein- falda heimilisstörfin höfðu kastað mottunni undir eldhús- borðinu og mottum sem ló kom úr, sett smáhluti og skrautmuni inn í skáp, alltaf notað inniskó og gengið hart eftir því að allir fjölskyldumeðlimir þrifu eftir sig. Hvers vegna ræstum við? Flestar þær konur sem náð hafa fullorðinsaldri hafa átt mæður sem gerðu alla íbúðina hreina frá hólfi til gólfs tvisvar á ári. Þær lærðu, að ræsting væri dyggð — þvílík skömm að eiga óhreint heimili. Þar sem lífið snerist svo mikið um fullkomið heimili var líka tekið vel eftir hvernig það var hjá öðrum. Væri íbúðin ekki tandurhrein var talað um sóðaheimili. Stúlkunum var snemma kennt að sjá um heimilisstörf. Bræður þeirra sluppu aftur á móti alveg við það, að ekki sé nú minnst á feðurna. Og við höfum fært þessa hefð yfir á okkar eigin heimili. Samt hefur heimurinn breyst og nú eru gerðar nýjar — og langtum fleiri kröfur til kvenna. Auk þess að vera góð móðir og húsmóðir á konan lika að fylgjast vel með þjóðfélagsmálum, taka virkan þátt í skólastarfi barna sinna og leggja visst af mörkum til áhugamála þeirra, eins og skóla- hljómsveitarinnar, skátahreyf- ingarinnar, íþróttafélagsins, ballettsins, barnakórsins o.s.frv. í viðbót við allt þetta starfa svo margar konur utan heimilis. Er þá nokkuð undarlegt að konur fái streitu vegna heimilis- starfanna? Að mörgu leyti eru kjör kvenna verri en þau voru áður fyrr. Þá þurftu þær bara að ræsta. Nú ræsta þær, en berjast samt við sektartilfinningu af því að þær hafa ekki krafta til að gera það eins vel og þær vildu, af því að þær eru í stöðugu .kapphlaupi við tímann og af því að heimilið lítur ekki út eins og auglýsing í tímariti. Hversdagslega striða þær við brauðmola og sand á gólfinu, bletti á hurðum og veggjum, óhreina glugga, og útiföt, bæði sinna barna og annarra, á tvistri um allt anddyrið. Og líti einhver inn, fá þær strax samviskubit: Ekki líta í kringum þig, hér er allt í drasli. Ég hef ekki haft tíma til að þvo gluggana í þessari viku, o.s.frv. Fyrir hverja ræstum við? Sektartilfinningin, sem stafar af uppeldinu, veldur því að konum finnst þær skyldugar til að vera uppruna sínum trúar. Könnunin sýnir að þær reyndu þess vegna að þrífa sérstaklega vel ef von er á mömmu eða tengdamömmu i heimsókn. Þeim finnst þær líka skyldugar til að halda heimilinu tandur- hreinu vegna vina og nágranna. Auðvitað þrifa þær líka svo að þeim liði sjálfum betur. Það er vissulega ánægjulegt að virða fyrir sér tandurhreint hús. Þær varpa öndinni léttar — og verða léttari í skapi. Þess vegna neyða konur sig til að stunda sömu 12 Vikan 10. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.