Vikan - 08.03.1979, Page 62
PÓSTIRIW
Þær eru báðar
hrifnar af mér
Kæri Póstur!
Þetta er í fyrsta sirm sem ég
skrifa þér, og ég vona að þú
svarir mér fljótlega. Þannig er
mál með vexti, að ég er hrifinn
af tveimur stelpum og þær eru
báðar hrifnar af mér! — Hvað
lestu úr skriftinni og hvað
heldur þú að ég sé gamall?
7949-9368
Hvert er vandamálið? Hjartan-
lega til hamingju með velgengni
þína á þessu sviði og reyndu að
gæta þess að vera ekki með þeim
báðum í einu, nema þær
samþykki. Skriftin er svo
ómótuð að úr henni er ekkert
hægt að lesa og þú ert enn á
barnaskólaaldri.
Frosin á tánum
Kæri Póstur!
Ég skrifaði þér fyrir stuttu,
en bréfið mitt hefur ekki enn
birst í Vikunni. Mig langar að
spyrja þig um eitt, sem ég vona
að þú getir gefið mér svar við.
í skólanum finnst mér dálítið
ósanngjarnt að í frímínútunum
þurfum við að fara út í mikið
frost, þótt við séum ekki klædd
til þess að vera úti. Um daginn
voru nokkrar stelpur I mínum
bekk inni í frímínútunum því
þær sögðu að þær vœru lasnar,
en það held ég ekki því þær
komu allar I skólann daginn
áður. Ég var bara I þunnum
sokkum og varð að fara út, en
mér var nú kalt, því hér er
mjög mikill snjór. Ég varð
blaut og var alveg frosin á
tánum og mér lá við gráti. En í
næstu frímínútum varð mér
ennþá kaldara. Finnst þér þetta
ekki ósanngjarnt? Ég veit að ég
átti að vera í ullarsokkum, en
ég gleymdi að fara I þá í þetta
skiptið. Ég vona að bréfið mitt
fari ekki I hina frægu Helgu
bréfakörfu, þótt skriftin sé ekki
góð.
Ein frosin á tánum.
Líklega er það alveg rétt hjá þér
að þú hefðir átt að vera betur
klædd, fyrst það er skylda að
fara út i fríminútum í þínum
skóla. Satt að segja hefur
Pósturinn aldrei skilið nauðsyn
þess að skylda nemendur fremur
en kennara til þess að fá sér
frískt loft í frímínútum gegn
vilja sínum. Æskilegast væri að
hans mati að nemendur fengju
að dæma um þörf sína fyrir
frískt loft sjálfir, því þeir hljóta
manna best að finna, hvort þeim
sjálfum er orðið óþægilega heitt
eða kalt.
Nokkrar
spurningar
Kæri Póstur.
Mig hefur lengi langað til að
skrifa þér, svo ég ákvað að
gera það nú. — Hér eru
nokkrar spurningar og ég vona
að þú hafr svör við.
1. Er það rétt að Meat Loaf sé
látinn
2. Hvað er (var-hann gam-
all?
3. Getur þú sagt mér hvar
heilsurœkt Jowetts er til húsa í
Reykjavík og hvaða símanúmer
er þar?
4. Hvað á ég að vera þungur
ef ég er 1.79 sm og stórbein-
óttur?
5. Hve oft á maður að skipta
um olíu á gírkassa í bíl og hve
oft á að láta smyrja bíl?
6. Hvaða sjampó er best við
feitu hári (mjög feitu)?
7. Hvað þýðir Uriah Heep?
Ég verð nú að fara vinur,
LIFÐU HEILL!
Fiskur
Hinn vinsæli Meat Loaf var enn
á lífi, síðast þegar Pósturinn vissi
og við bestu heilsu. Heilsurækt
Jowetts tókst Póstinum ekki að
finna neinar upplýsingar um, en
ef til vill getur einhver lesandi
hjálpað í því efni? Samkvæmt
þyngdartöflunni okkar átt þú að
vera 82-84 kiló, ef þú ert mjög
kraftalegur, annars aðeins
léttari. Skipting á olíu á girkassa
fer mikið eftir bíltegundum, svo
þú ættir að fara á smurstöð og fá
þar nákvæmar upplýsingar og
þá einnig um það, hversu oft á
að smyrja. Aðalreglan mun i því
síðarnefnda vera eitthvað i
kringum 2000 km. Sjampó fyrir
feitt hár eru til í tugatali og ættir
þú að fara í næstu snyrtivöru-
búð og spyrja afgreiðslustúlk-
urnar ráða. Þú getur búist við að
þurfa að reyna fleiri en eina
tegund og reyndar er fólki
ráðlagt að skipta oft um i því
efni. Uriah Heep er nafn á
frægri sögupersónu úr bókinni
David Copperfield eftir Charles
Dickens og Uriah var ein af
ógeðfelldustu manngerðunum.
Að lokum: Hvert fórstu?
En ég tek ekki pilluna ..
Kæri Póstur!
Nú á ég í vandræðum, eins og getur komið fyrir besta
fólk. Strákurinn, sem ég hef verið með um tíma, er orðinn
eitthvað svo einkennilegur í viðmóti. Núna er eins og hann
vilji mig ekki eða að einhver misskilningur sé á milli okkar.
Við höfum verið talsvert mikið saman undanfarnar vikur.
Hann hefur ekki beðið mig um að vera með sér á föstu, en
samt erum við saman, þegar við hittumst. Hann býður mér á
bíó og böll og ýmislegt fleira skemmtilegt og þá höfum við
alltaf haft það gott saman. Hann veit að ég er mjög hrifln
af honum og segir mér að hann sé hrifmn af mér. Ef ég
geng úti á götu og hann á leiðframhjá I bíl býður hann mér
alltaf far og okkur líður vel í návist hvors annars. En síðast
þegar við vorum saman kom upp smávandamál á milli
okkar. Við ætluðum að sofa saman, en ég tek ekki pilluna
og nota enga vörn. Hann hafði ekki smokk og við urðum
sammála um að gera ekki neitt, og ég var mjög ánægð að
hann skyldi skilja þetta svo vel og hélt að allt væri í lagi á
milli okkar. Hann sagðist ætla að verða sér úti um smokk
og þá væri allt í lagi. Síðan þetta var hefur hann varla yrt á
mig og ef hann ekur framhjá mér þykist hann ekki sjá mig.
Ég get varla lýst því, hvað ég er sár og undrandi. Heldur
þú, Póstur góður, að hann sé vondur út í mig, eða þá að
hann haldi að égsé vond út íhann? Nú hugsa ég mikið um
þetta, því mér þykir svo vænt um hann og vil ekki missa
hann. Finnst þér að ég ætti að tala við hann eða láta kyrrt
liggja? Viltu helst bara birta svarið en svaraðu mér samt
sem fyrst og reyndu að hjálpa mér, því mér líður
mjög illa. Tryppa
Því miður er það regla að birta ekki aðeins svörin heldur lika
bréfin, sem berast, því með því móti er ef til vill hægt að
aðstoða aðra, sem eiga við svipuð vandamál að stríða og bréf-
ritari. Pósturinn tók það ráð að birta því bréfið þitt og sleppa
ýmsum smáatriðum í þvi, svo ekki reynist unnt að geta sér til
um, hver þú ert og vonar að þér þyki ekki miður. Þú ert
örugglega ekki ein um að hafa áhyggjur af svipuðu atviki og
ættir að taka þessu með mestu rósemi. Hann hefur örugglega
ekki orðið vondur út í þig og þið hafið þama gert það eina rétta
í þessu tilviki. Hins vegar er það einnig eðlilegt að hann grípi
feimni, þegar honum er orðin kvöð að verða sér úti um varnir.
Þá finnst honum ef til vill að hann komist alls ekki hjá því að
vera með þér á þennan hátt næst þegar þið hittist og hefur þá
áhyggjur af þvi hvort allt fari nú eins og það á að gera eða
hvort hann klúðri þessu ef til vill öllu. Þá hræðist hann
ef til vill líka að eitthvað leki í eyru kunningjanna, sem myndu
nú ekki láta slíkt tækifæri framhjá sér fara og erta hann með
því eins lengi og kostur er. Þetta jafnar sig yfirleitt með
tímanum. Það eina sem þú getur gert er að biða róleg og þú
ættir ekki að reyna að ræða þetta við hann, nema til þess
gefist alveg sérlega hagstætt tækifæri.
62 Vikan 10. tbl.