Vikan


Vikan - 29.03.1979, Qupperneq 18

Vikan - 29.03.1979, Qupperneq 18
Ég vinn alia daga á bókasafhi, og mér þætti mjög vænt um, cf þið gætuð verið mcð einhvcrn hávaða hér á kvöldin. A KROSSGÖTUM „Við skulum bjóða henni virkilega fintútað borða." „Nei, við skulunt frekar bjóða þér." Emma hristi höfuðið. „Nei. Mig langar í kampavín.” Emilía lagði frá sér ntatseðilinn. „Þetta er allt svo dýrt," hvíslaði hún. „Þetta er nú lika sérstakt tilefni." Emnta lyfti kantpavínsglasinu. „Þina skál." „Já, skál fyrir þér," sagði Deedee. „Nei,” sagði Emilia sent naut alls þessa, naut þess að vera í þessunt fallega sal. Henni hafði verið sagt að Balan- chine snæddi hér oft kvöidverð og þarna var hann einmitt ásamt tveim ungunt og mjög laglegunt dönsurum. Og þarna voru lika Baryshnikov, Gelsey Kirkland og Sevilla með Englendingnum sem hafði flogið hingað til að hitta hana sér- staklega. „Ég vorkenni Carolyn,” sagði Emilía. „Meinarðu vegna þess að hún þarf að feta i fótspor Sevillu?” spurði Emma. „Já, kannski, en mest vegna þess að hún fær ekki Yuri sem mótdansara. Hann er svo dásamlegur." Hún roðnaði. „Sem dansari meina ég. Hann er besti dansari sem ég hef séð á ævi minni. Besti karldansarinn á ég við,” sagði hún í flýti og leit á Emntu. „Horfðirðu á hann i kvöld?” spurði Deedee. „Ó, já!" Augu Emiliu Ijóntuðu. „Ég stóð út við sviðsbrún, hvenær sem ég gat. Ég ætlaði að fylgjast nteð Sevillu — eins og þú sagðir mér að gera,” sagði hún við Ernntu, „en ég gat ekki annað en horft á hann. Það er eins og þetta sé allt svo auðvelt hjá honum. Hann er svo sterkur en samt — en samt er eins og hann svífi. Stundum þegar Ijósið glantpar á hári hans — eða þegar hann teygir handleggina i áttina til manns — eða þegar maður sér allt í einu augu hans — þá er hann alveg dásamlegur." Hún heyrði sjálf hvernig þetta hljómaði og leit niður fyrir sig. Móðir hennar og guðmóðir litu hvor á aðra. „Nú já,” sagði Deedee lágt, það rifj- aðist ýmislegt upp fyrir henni og eins og Entrnu fannst henni hún vera orðin hundgömul. Tveir dagar liðu. Lífið gekk sinn vana- gang. Það var hlýtt en ekki heitt og Deedee leið allt í einu eins og ungri stúlku. Unt morguninn hitti hún Ade- laide og hún fékk sitt langþráða kennslu- starf við ballcttskólann. Seinna um dag- inn fór hún með Emilíu og Ethan í kjall- arann hjá Bloomingdale til að gera sér dagamun. Þau voru á leið heim þegar ntaður sent liktist helst stórum bangsa kom askvaðandi út af einni kaffistof- unni. læddist aftan að Deedee, lyfti henni i loft upp og sneri henni í hring. Hún æpti upp yfir sig og krakkarnir störðu á þau gapandi af undrun. Bangs- inn setti hana niður og leit á hana og Ijómaði af ánægju. „Rosie!” „Hver annar gat það verið?” spurði hann. Hann var kontinn með yfirvaraskegg og hár hans var farið að þynnast. En hann var enn jafn kæruleysislegur i klæðaburði og það var sama hlýjan i augnaráði hans og verið hafði fyrir tuttugu árum. Hún kynnti hann fyrir börnunum og reyndi að útskýra hver Joe Rosenfeld væri meðan hann hneigði sig fyrir Emiliu og heilsaði Ethan eins og hann væri trúður i sirkus. Þeim fannst hann haga sér eins og kjáni en gættuþess vel að hann yrði þess ekki var; hann var auðsæranlegur og eins og þarfnaðist verndar. „Rosie var hljómsveitarstjóri balletts- ins þegar við pabbi ykkar vorunt að dansa," útskýrði Deedee. „Hann var sá albesti." „Það er ég enn,” sagði Rosie. „En núna stjórna ég bara söngleikjum. Það er nteira upp úr því að hafa." Hann blikkaði Emiliu sem reyndi að hlæja kurteislega svo hann yrði ánægður. „Hvert ertu að fara, sætust allra?” spurði hann Deedee. „Við búum héma ofar í götunni.” Hann tók af henni innkaupapokann, tók undir handlegg hennar og lagði af staðupp götuna. „Hvað er að frétta af konunni þinni?” spurði hún hátt og skýrt svo það væri öruggt að það færi ekki fram hjá Ethan og Emilíu. „Hverri þeirra? Ég hef verið giftur tveim í viðbót síðan við sáumst síðast.” „Af þeim öllum þremur þá.” „Vonandi allt gott. Ég hitti þær aldrei. En hvað með manninn þinn?” „Hann er heima í Oklahoma ásamt hinni dóttur okkar. Ég verð hérna bara í sumar.” „Stórkostlegt!” Hann þrýsti henni fastar að sér svo hún varð alveg dásamlega taugaóstyrk. Hún hefði meira að segja líka orðið það þó börnin hefðu ekki verið með. „Hérna verðum við að yfirgefa þig,” sagði hún. Þau voru komin aðdyrunum. „Allt í lagi,” þrumaði Rosie. „Ég er á lausu!” Hann gekk inn með henni og hélt á innkaupapokanum eins og þetta væri ferðataskan hans. Emilía og Ethan fylgdu á eftir eins og tveir varðhundar, þau vissu ekki lengur hvern þau áttu að vernda. Það voru ekki margir nemendur frá ríka hverfinu í Nichols Hills, sem sóttu 18 Vikan 13. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.